29.08.2022 1048985
Funafold 52
112 Reykjavík
57 myndir
175.000.000
552.050 kr. / m²
29.08.2022 - 11 dag á Fastanum - Fjarlægt þann 09.09.2022
4
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
317m²
Fermetrar
Tegund
EinbýliByggingarár
1986Fasteignamat
95.750.000Inngangur
Margir inngangarFastanúmer*
-Byggingarnúmer*
1005984Brunabótamat
88.000.000Verðmat Fastans
Reiknar verðmat...
Staðsetning
Tenglar
Lýsing
Lýsing á eigninni frá fasteignasölu
LANDMARK FASTEIGNAMIÐLUN KYNNIR Í EINKASÖLU einstaklega fallegt einbýlishús á sjávarlóð við Grafarvoginn. Húsið er steypt á tveimur hæðum ásamt innbyggðum bílskúr, í rólegum botnlanga. Stutt í sundlaug og Foldaskóla, sem er margverðlaunaður grunnskóli upp í 10 bekk, leikskóli er við enda botnlangans. Húsið afhendist við kaupsamning.
Arkitekt: Ormar Þór Guðmundsson
Rafmagns og ljósahönnun: Helgi Kr. Eiríksson í Lúmex
Innanhússarkitekt: Þóra Birna Björnsdóttir
Arin: Jón Eldon Logason, arinsmiður
Í Grafarvoginum innan brúar og fyrir framan húsið eru ósnertar leirur sem rætt hefur verið að vernda enda fóstra þær fjölskrúðugan hóp vaðfugla og eru einn helsti viðkomustaður þúsunda farfugla, vor og haust, þá eiga selir það til að koma inn voginn og lax gengur oft og leikur listir sýnar fyrir framan húsið. Húsið er því hannað þannig að útsýni er til sjávar úr öllum herbergjum og ekki svalir sem skyggja á nærútsýnið.
Garðurinn er mjög skjólgóður og gróinn með heitum potti og palli að sunnanverðu. Þar er mikil veðursæld og góð gróðurskilyrði. Hægt er að fara beint út úr garðinum inn á göngu og hjólastíga borgarinnar. Stutt í allar áttir og nánast engin hækkun frá miðborginni. Framan við hús er hellulagt bílastæði með snjóbræðslu.
Birt stærð eignarinnar samkvæmt fasteignamati er 227 fm., en þar að auki eru ca. 50 fm þar sem um er að ræða af 25 fm stækkun á stofu á efri hæð og 25 fm herbergi á neðri hæð sem auðvelt væri að breyta í tvö herbergi. Viðbyggingin er frá 1992 og var teiknuð af arkitekt hússins, samþykkt og tekin út, en birtist ekki í fasteignamati. Einnig eru ca 40 fm óskráðir undir bílskúrnum, án drenlagnar undir bílskúrnum, en þar er þvottahúsið, geymsla og vinnuherbergi. Húsið er því samtals 317 fm.
Eignin skiptist í; forstofu, eldhús, arinstofu, borð- og setustofu, 4 svefnherbergi, sjónvarpsherbergi/fjölskyldurými, 2 baðherbergi, gestasnyrtingu, þvottahús, innangengt í tvöfaldan bílskúr. Möguleiki er á að bæta við tveimur herbergjum. Tvennar svalir eru á húsinu, í austur og vestur.
Allar nánari upplýsingar um eignina og bókun á skoðun hjá Bryndísi Báru lögg. fasteignasala á [email protected] eða í síma 848-3113 eða
Þórarinn Thorarensen lögg. fasteignasali á [email protected] eða í síma 770-0309
Nánari lýsing
Efri hæð/aðalhæð
Forstofa rúmgóðir skápar með speglum á hurðum. Höganäs flísar á gólfum.
Geymsla fyrir skó og yfirhafnir á milli forstofu og bílskúrs
Arinstofa með panóramaútsýni yfir sjóinn. Parket á gólfum.
Borð- og setustofa mjög rúmgóð og hátt til lofts, einnig með góðu útsýni til sjávar. Parket á gólfum.
Eldhús hvít afar vönduð og tímalaus hönnun frá 2009. Dökkar steinborðplötur, innfelldur vaskur, tvöfaldur ísskápur með klakavél, uppþvottavél, ofn, örbylgjuofn og eyja með span helluborði. Gengið er út á hálfyfirbyggðar svalir
Tvö rúmgóð herbergi með horngluggum, hátt til lofts og útsýni til sjávar, annað herbergið með svölum
Baðherbergi sturta, ný hvít innrétting og vaskur, upphengt salerni, opnanlegt fag á glugga, flísar á veggjum
Bílskúr tvöfaldur, mjög góð vinnuaðstaða/langborð með vaski, geymsluloft, lakkað gólf. Innangengt frá efri hæð og beint um gryfjuop og stiga í geymslurými á neðri hæð.
Steyptir bitar skipta loftinu þannig að ýmist er mjög hátt til lofts og halli á lofti eða lægra. Hljóðvist er því góð og loftstrúktúrinn fallegur. Loftklæðning er úr hvíttuðu greni.
Steyptur parketlagður stigi milli hæða
Neðri hæð
Fjölskyldurými/sjónvarpsherbergi rúmgott, útgangur út í garð, möguleiki á að útbúa herbergi úr hluta rýmisins. Parket á gólfi.
Hjónaherbergi rúmgott með fataherbergi, baðherbergi inn af herbergi með sturtu, hornbaðkari, upphengdu salerni, rúmgóðri innréttingu, flísar á veggjum, parket á gólfi.
Þvottahús mjög rúmgott, gluggi með opnanlegu fagi, lakkað gólf. Möguleiki á að setja upp stóra línskápa auk vinnuborða. Gæti einnig verið handverkstæði ásamt vinnuherbergi inn af þvottahúsinu.
Vinnuherbergi og geymsla inn af þvottahúsi, geymsla tengist beint bílskúr, stigi og gryfjuop í bílskúrsgólfi, gluggi á fremra herbergi, lakkað gólf
Geymsla hillur og fatahengi, parket á gólfi
Gestasnyrting vaskur, upphengt salerni
Hol gengið þaðan út á pall
Herbergi 25 fm sem nú er að hluta skipt upp með léttum vegg í unglingastúdíó með tveimur rýmum, auðveldlega hægt að skipta í tvö rúmgóð herbergi með stórum horngluggum, eða opna alveg í eitt stórt rými. Höganäsflísar á gólfum.
Um er að ræða mjög vandað og vel staðsett hús sem hefur fengið gott viðhald alla tíð.
Nýjustu framkvæmdir, í maí 2022:
Húsið málað að innan og utan
Þak og þakkantur yfirfarið, málað og endurnýjað, m.a. skipt um allt járn og pappa
Ný rafmagnstafla
Parket slípað og lakkað
Útihurðir og bílskúrshurðir málaðar
Gólf í bílskúr lakkað, skipt um blöndunartæki
Ný blöndunartæki í eldhúsi
Ný innrétting í baðherbergi á efri hæð.
Fasteignamat fyrir árið 2023 er 128.650.000 kr.
Húsið stendur við útivistarsvæðið við Grafarvog, gott fjölsylduhús með möguleika á aðlögun eftir því sem börnin stækka, enda einn eigandi í 34 ár.
-Vegna mikillar sölu undanfarið þá vantar allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og ég kem og met eignina þína þér að kostnaðarlausu.
-Bryndís Bára Þórðardóttir gsm: 848-3113 eða [email protected]
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. LANDMARK fasteignamiðlun bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 69.900.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK fasteignamiðlunar
Fáðu frítt sölumat á eignina þína HÉRNA
Ljósmyndir
Verðmat Fastans
Söguleg þróun á verðmati eignarinnar frá 2006
Þinglýstir kaupsamningar
Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð
Engir þinglýstir kaupsamningar fundust á þessari eign
Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum
loading
Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum
Eigindi auglýsingar
Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna
Eignanúmer : 1048985
Einnota auðkenni fyrir hverja eign.Verð : 175.000.000
Ásett verð eignarinnar í krónum.Brunabótamat : 88.000.000
Brunabótamat eignarinnar samkvæmt síðasta mati.Áhvílandi : 0
Heildarfjárhæð áhvílandi á eigninni.Fasteignamat : 95.750.000
Opinbert fasteignamat eignarinnar.Verð á fermetra : 552.050
Verð eignarinnar á hvern fermetra.Fermetrar : 317
Stærð eignarinnar mæld í fermetrum.Dagsetning skráningar : 29.08.2022
Dagsetningin þegar að auglýsingin var gefin út.Staða auglýsingar : 09.09.2022
Dagsetningin þegar að auglýsingin var fjarlægð.Skráningardagur : 29.08.2022
Dagsetningin þegar eignin var skráð opinberlega.Póstnúmer : 112
Póstnúmer þar sem eignin er staðsett.Heimilisfang : Funafold 52
Fullt heimilisfang eignarinnar.Tegund eignar : einb
Tegund eignarinnar, t.d. íbúð, einbýlishús, fjölbýlishús.Byggingarár : 1986
Ár þegar bygging eignarinnar var fullgerð.Herbergi : 6
Heildarfjöldi herbergja í eigninni.Svefnherbergi : 4
Fjöldi svefnherbergja í eigninni.Stofur : 0
Fjöldi stofa í eigninni.Salerni : 3
Fjöldi salerna í eigninni.Inngangur : Margir inngangar
Lýsing á aðalinngangi eignarinnar.Bílskúr : 1
Hvort eignin hafi bílskúr (satt/rangt).Heitur pottur : 1
Hvort eignin sé með heitum potti (satt/rangt).Verönd : 1
Hvort eignin hafi verönd (satt/rangt).Auka íbúð : 1
Hvort eignin innihaldi auka íbúð (satt/rangt).Sýnileg : 1
Hvort eignin sé sýnileg á vefsíðum eða öðrum miðlum (satt/rangt).Heiti heimilisfangs : Funafold
Heiti eignar eða byggingar.Húsnúmer : 52
Húsnúmer eignarinnar.
Fasteignaskrá
Eignir í sömu byggingu og upplýsingar þeirra
010101
Íbúð á 1. hæð
227 m²
Fasteignamat 2025
146.750.000 kr.
Fasteignamat 2024
140.250.000 kr.
Samskiptasaga byggingar
Atriði af fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur er varðar eignina
Engin samskiptasaga fannst á þessari eign.
Byggir aðeins á útgefnum fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur á milli 1997 - 2024 ( júlí ).