23.08.2022 1047989
Dúfnahólar 4
111 Reykjavík
33 myndir
74.900.000
521.951 kr. / m²
23.08.2022 - 59 dag á Fastanum - Fjarlægt þann 21.10.2022
4
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
143.5m²
Fermetrar
Tegund
FjölbýliByggingarár
1974Fasteignamat
49.900.000Inngangur
SameiginlegurFastanúmer*
2048561Byggingarnúmer*
1003919Brunabótamat
52.220.000Verðmat Fastans
Reiknar verðmat...
Staðsetning
Tenglar
Lýsing
Lýsing á eigninni frá fasteignasölu
SMELLIÐ HÉR FYRIR SÖLUYFIRLIT
Birt stærð séreignar er 143,5 fm samkvæmt Þjóðskrá Íslands sem skiptist í íbúð 116,7 fm og bílskúr 26,8 fm.
Fyrirhugað fasteignamat 2023 er 62.100.000kr.
Nánari lýsing:
Forstofa/hol er mjög rúmgott, innbyggðar hillur, harðparketi á gólfi. Þetta rými var áður skipt niður í tvö var þá sjónvarpshol í öðru og eru því allar tengingar til staðar.
Eldhús er með eikarinnréttingu, tveir bakaraofnar í vinnuhæð, keramik helluborð, innbyggður kælir, innbyggð uppþvottavél, svart granít á borðum, borðkrókur, harðparket á gólfi.
Stofa/borðstofa er opin og björt með stórum gluggum, útgengt út á yfirbyggðar svalir í vestur þar sem útsýnið er stórkostlegt.
Baðherbergi er flísalagt með rúmgóðri hvítri innréttingu, baðkar með sturtugleri, handklæðaofn, tengi fyrir þvottavél.
Hjónaherbergi er með fataskápum úr eik, harðparket á gólfi.
Barnaherbergi I er með litlum innbyggðum skáp úr eik, harðparket á gólfi, búið er að taka niður vegg þannig að í dag er þetta opið rými.
Barnaherbergi II með fataskápum úr eik, harðparket á gólfi.
Barnaherbergi III er með harðparket á gólfi.
Bílskúr er með rafmagni, heitu og köldu vatni, nýlega klæddur að utan og nýlegt þak. Gluggi er lélegur en nýr gluggi fylgir með. Hurð er orðin léleg.
Á jarðhæð er sérgeymsla með hillum, sameiginlegt þvottahús og þurrkherbergi ásamt sameiginlegri hjóla-og vagnageymslu.
Snjóbræðsla í stéttum.
Eignin hefur fengið gott viðhald og miklar endurbætur gerðar í gegnum árin að sögn eiganda, til að mynda var íbúðin nánast öll endurbætt að innan árið 2008 en þá var eldhús allt endurnýjað, innrétting, granít á borðum, tæki og rafmagn. Skipt var um allar innihurðar og gólfefni, ofna og rafmagnstengla. Þá var baðherbergi endurnýjað að hluta en það var sett nýtt klósett, borðplata, vaskur og handklæðaofn. Öllum sólbekkjum var skipt út fyrir svart granít nema í svefnherberjum.
Að utan var skipt um alla glugga í húsinu (2021), flísar á gólfi í sameign endurnýjaðar (2020) og járn á þaki endurnýjað (2019).
Í húsinu eru tvö starfandi húsfélög sem eru mjög vel rekin og góð staða á þeim báðum.
Húsgjöld íbúðar eru 32.253 á mánuði en þá er allur almennur rekstur húsfélags innifalinn, allur hiti og rafmagn í sameign sem og einnig húseigendatrygging, framkvæmdasjóður, þrif á sameign og þrif á sorpgeymslu. Staða hússjóðs er 8.257.140kr. Húsgjöld íbúðar í framkvæmdasjóð á ytra byrði hússins eru 25.665 á mánuði og er staða framkvæmdasjóðs 19.536.306 kr.
Frekari upplýsingar veitir Þórey Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali / B.Sc. í viðskiptafræði í síma 663 2300 eða [email protected] og Freyja Rúnarsdóttir, löggiltur fasteignasali / B.Sc. í viðskiptafræði í síma 694 4112 eða [email protected]
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. LANDMARK fasteignamiðlun bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 69.900.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK fasteignamiðlunar
Fáðu frítt sölumat á eignina þína HÉRNA
Ljósmyndir
Verðmat Fastans
Söguleg þróun á verðmati eignarinnar frá 2006
Þinglýstir kaupsamningar
Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð
Pnr. | Heimilisfang | Kaupverð | Stærð | Fermetraverð | Tegund | Fastan. | Dags. | Noth. |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|
23.600.000 kr. | 143.50 m² | 164.460 kr./m² | Fjölbýli | 2048561 | 22.06.2006 | ✅ | ||
47.500.000 kr. | 143.50 m² | 331.010 kr./m² | Fjölbýli | 2048561 | 30.06.2017 | ✅ | ||
75.000.000 kr. | 143.50 m² | 522.648 kr./m² | Fjölbýli | 2048561 | 02.10.2023 | ✅ |
Fastinn geymir kaupsamninga aftur til 2007
Sótt frá Þjóðskrá
Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum
loading
Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum
Eigindi auglýsingar
Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna
Eignanúmer : 1047989
Einnota auðkenni fyrir hverja eign.Verð : 74.900.000
Ásett verð eignarinnar í krónum.Brunabótamat : 52.220.000
Brunabótamat eignarinnar samkvæmt síðasta mati.Áhvílandi : 0
Heildarfjárhæð áhvílandi á eigninni.Fasteignamat : 49.900.000
Opinbert fasteignamat eignarinnar.Verð á fermetra : 521.951
Verð eignarinnar á hvern fermetra.Fermetrar : 143.5
Stærð eignarinnar mæld í fermetrum.Dagsetning skráningar : 23.08.2022
Dagsetningin þegar að auglýsingin var gefin út.Staða auglýsingar : 21.10.2022
Dagsetningin þegar að auglýsingin var fjarlægð.Skráningardagur :
Dagsetningin þegar eignin var skráð opinberlega.Póstnúmer : 111
Póstnúmer þar sem eignin er staðsett.Heimilisfang : Dúfnahólar 4
Fullt heimilisfang eignarinnar.Tegund eignar : fjolb
Tegund eignarinnar, t.d. íbúð, einbýlishús, fjölbýlishús.Byggingarár : 1974
Ár þegar bygging eignarinnar var fullgerð.Herbergi : 5
Heildarfjöldi herbergja í eigninni.Svefnherbergi : 4
Fjöldi svefnherbergja í eigninni.Stofur : 0
Fjöldi stofa í eigninni.Salerni : 1
Fjöldi salerna í eigninni.Inngangur : Sameiginlegur
Lýsing á aðalinngangi eignarinnar.Bílskúr : 1
Hvort eignin hafi bílskúr (satt/rangt).Heitur pottur : 1
Hvort eignin sé með heitum potti (satt/rangt).Verönd : 1
Hvort eignin hafi verönd (satt/rangt).Auka íbúð : 1
Hvort eignin innihaldi auka íbúð (satt/rangt).Sýnileg : 1
Hvort eignin sé sýnileg á vefsíðum eða öðrum miðlum (satt/rangt).Heiti heimilisfangs : Dúfnahólar
Heiti eignar eða byggingar.Húsnúmer : 4
Húsnúmer eignarinnar.
Fasteignaskrá
Eignir í sömu byggingu og upplýsingar þeirra
Samskiptasaga byggingar
Atriði af fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur er varðar eignina
Engin samskiptasaga fannst á þessari eign.
Byggir aðeins á útgefnum fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur á milli 1997 - 2024 ( júlí ).