Söluauglýsing: 1039468

Hulduland 9

800 Selfoss

Verð

99.900.000

Stærð

175

Fermetraverð

570.857 kr. / m²

Tegund

Einbýli

Fasteignamat

64.600.000

Fasteignasala

Heimili Fasteignasala

Símanúmer

hero

Þessi auglýsing hefur verið fjarlægð, hún var inni í 60 daga.

Staðsetning

Auglýsing

Lýsing

Lýsing á eigninni frá fasteignasölu

 

*** HÚSIÐ ER SELT  *** og fengu færri en vildu
Þetta glæsilega einbýlishús stoppaði stutt í sölu enda mikil eftirspurn eftir fasteignum á Selfossi og erum við því með fólk á skrá sem enn leitar eftir sérbýlum á Selfossi. 
Bókið frítt verðmat  á ykkar fasteign í síma 898-2017 eða [email protected]

Heimili fasteignasala kynnir í einkasölu glæsilegt og skipulagt einbýlishús á einni hæð með bílskúr í fjölskylduvænu og eftirsóttu hverfi á Selfossi, nánar tiltekið við Hulduland 9.


Frekari upplýsingar veitir Anna Sigurðardóttir, löggiltur fasteignasali, sími 898-2017 netfang [email protected]

Einstaklega fallegt  nýtt einbýlishús byggt árið 2020. Þrjú bílastæði eru við húsið og inngangur yfirbyggður. Eignin er skráð 175 fm að stærð, þar af bílskúr 46 fm. Eignin skiptist í anddyri,  rúmgott og bjart alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi og útgengi á stóra afgirta  verönd, rafmagnspottur fylgir með sem þarfnast aðhlynningar.  Glæsilegt baðherbergi, þrjú svefnherbergi.  Innangengt er úr húsi  í bílskúr með þvottahúsi og geymslu.  Eignin er öll hin glæsilegasta með aukinni lofthæð, hita í öllum gólfum og hitastýringu fyrir hvert rými.  Eignin er ekki fullkláruð.  Möl í innkeyrslu og  búið er að tyrfa lóðina sem er 663 fm.

Anddyri:  Flísalagt gólf með stórum steingráum flísum og hita í gólfi, rúmgott fatahengi.  
Alrými:  Bjart og skemmtilegt með gólfsíðum gluggum og rennihurð út á afgirta verönd.  Rúmgóð stofa og borðstofa og glæsilegt eldhús, tæki frá Bosch, innbyggð uppþvottavél og innbyggður ísskápur með frysti, bakarofn á vegg og combi ofn á vegg.  Borðplata frá Fanntófelli.  Eyja með spanhelluborði og miklu borðplássi.
Svefnherbergi:  Bjart og rúmgott með góðum fataskáp.
Barnaherbergin:  Tvö rúmgóð  barnaherbergi eru í húsinu annað  með fataskáp.
Baðherbergi:  Glæsilegt baðherbergi með glugga.  Flísar á gólfi og veggjum 60 cm x 60 cm. Upphengt salerni. Grohe blöndunartæki, sturta og baðkar, vaskur í innréttingu, handklæðaofn.
Bílskúr þvottahús og geymsla:   Innangengt er í bílskúrinn sem er sparslaður og málaður með vinnurafmagni.   Mjög rúmgott þvottahús með innréttingu og glugga er innst í bílskúr og léttur veggur á milli.  Geymslan er ekki stúkuð af. 

Almenn efni og gerð hússins:
Sökklar eru úr steypu, botnplata staðsteypt, einangruð með gólfhita í.  Útveggir eru gerðir úr timbri, krossviðsklæddir með 9 mm krossvið og klæddir með liggjandi silfurlituðu bárujárni að utan og hvítu timbri í bland, síðan einangraðir að innan.  Þak er niðurtekið kraftsperruþak og er þakið borðaklætt, pappaklætt og síðan kemur bárujárn.  Gluggar og hurðir eru úr timbri, gler í gluggum tvöfalt K- einangrunargler.  Allar útihurðir (hurðarflekar) eru 900 mm að breidd.  Allar innihurðir (hurðarflekar) eru 800 mm að breidd.  

Hér er um að ræða glæsilega eign sem vert er að skoða.  Sjón er sögu ríkari.
Frábær staðsetning í rólegu umhverfi í ört stækkandi metnaðarfullu bæjarfélagi.  Hverfið er fjölskylduvænt með afbrigðum, örstutt í alla þjónustu, leik- og grunnskóla, sundlaug, íþróttastarf,  verslanir, veitingahús og gönguleiðir um allt með góðri tengingu við náttúruna.

 

Ljósmyndir

Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing

Þinglýstir kaupsamningar

Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð

loading

loading

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

Eigindi auglýsingar

Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna

PóstlistiÁbendingarHafa samband