Söluauglýsing: 1039358

Dalsbraut 2 (101)

260 Reykjanesbær

Verð

54.900.000

Stærð

83.7

Fermetraverð

655.914 kr. / m²

Tegund

Fjölbýli

Fasteignamat

2.140.000

Fasteignasala

Miklaborg

Símanúmer

Þessi auglýsing hefur verið fjarlægð, hún var inni í 6 daga.

Staðsetning

Auglýsing

Lýsing

Lýsing á eigninni frá fasteignasölu

***SÝNUM SAMDÆGURS!***Miklaborg kynnir: Nýtt og glæsilegt 24 íbúða fjölbýlishús á frábærum og fjölskylduvænum stað við Dalsbraut 2 í Innri Njarðvík. Íbúðirnar eru þriggja, fjögurra og fimm herbergja, vel skipulagðar í þriggja hæða fjölbýlishúsi. Húsið er með tveimur lyftum auk þess að vera með sérmerktum bílastæðum fyrir hverja íbúð þar sem búið að leggja fyrir rafhleðslu. Íbúðir skilast fullfrágengnar með gólfefnum. Sérsmíðaðar innréttingar með innbyggðum ísskáp og uppþvottavél. Kvarts steinn á borðum. Bjart alrými með gólfsíðum gluggum. Suður og suðvestur svalir. Frábært útsýni af efri hæðum. Sérinngangur af 1. hæð. Upplýsingar veitir Óskar í síma 691-1931 eða [email protected]

Nánari lýsing :
Íbúð 101
Glæsileg 4 herbergja endaíbúð á 1. hæð með sérinngangi. Íbúðin skiptist í anddyri með fataskáp. Þrjú svefnherbergi, tvö þeirra með fataskápum, baðherbergi með aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara ásamt alrými sem telur eldhús og stofu. Svalir í suður. Íbúðinni fylgir geymsla á 2. hæð merkt 0210, birt stærð 3,3 fm. Eigninni fylgir stæði sérmerkt stæði á bílaplani.
Sjá vefsíðu verkefnis HÉR

Dalsbraut 2
Húsið er glæsilegt staðsteypt, einangrað að utan og klætt með báruáli og lerki klæðningu. Gluggar og hurðir eru úr áli og tré. Sérstök einangrun er frá stigagöngum og svölum að íbúðum til að verjast kuldabrú. Búið er að leggja fyrir hleðslustöð við hvert stæði og því einfalt að setja upp hleðslustöð fyrir hverja íbúð.
Eignir skilast fullfrágengnar að innan sem utan. Að innan eru allar íbúðir með sérsmíðuðum innréttingum, fullmálaðar og með parketi. Eldhúsinnréttingar eru gráar með kvarts stein og vönduðum eldhústækjum. Baðinnréttingar eru einnig með granít stein og vönduðum blöndunartækjum. Innihurðir eru hvítar og innfelldar. Mjög gott skipulag er á íbúðunum.
Öllum íbúðum fylgir sér geymsla og einnig er hjóla- og vagnageymsla í sameignarrými.
Hverfið
Stapaskóli, einn glæsilegasti leik- og grunnskóli landsins hefur tekið til starfa í þessu vaxandi hverfi, steinsnar frá íbúðunum. Stapaskóli er heildstæður skóli, leikskóli, grunnskóli, tónlistarskóli, frístundaskóli og félagsmiðstöð. Þessi nýi skóli mun rúma 600 nemendur. Næstu skref eru að byggja íþróttahús og almenningssundlaug við skólann. Þetta er því skóli fyrir 2 ára og uppúr. Nánari upplýsingar eru á www.stapaskoli.is. Bókasafnið, matsalur, félagsaðstaða og sundlaug mun nýtast sem menningarmiðstöð fyrir hverfið eftir að skóladegi lýkur.
Falleg náttúra er allt um kring og stutt í ýmiskonar útivistarmöguleika.
Fallegar göngu- og hjólaleiðir eru frá íbúðunum og stutt í alla þjónustu. Mikill uppbygging er á svæðinu og stutt að keyra inn á Reykjanesbraut. Samgöngur til og frá svæðinu er því mjög auðveldar.

Nánari upplýsingar veita:
Óskar H. Bjarnasen lögmaður og löggiltur fasteignasali s. 691-1931 - [email protected]

Ómar Hvanndal lögmaður,  s. 832-3200 - [email protected]

 

Ljósmyndir

Því miður eru engar myndir af eigninni. Þú gætir fundið myndir á öðrum auglýsingum sömu eignar.

Þinglýstir kaupsamningar

Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð

loading

loading

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

Eigindi auglýsingar

Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna

PóstlistiÁbendingarHafa samband