26.01.2022 1022434

Söluskrá FastansSnorrabraut 61

105 Reykjavík

hero

33 myndir

Tilboð

0 kr. / m²

26.01.2022 - 16 dag á Fastanum - Fjarlægt þann 11.02.2022

12

Svefnherbergi

8

Baðherbergi

348.3

Fermetrar

Fasteignasala

Heimili Fasteignasala

[email protected]
530-6500
Verönd

Staðsetning

Auglýsing

Tenglar

Lýsing

Lýsing á eigninni frá fasteignasölu

 

Heimili fasteignasala, s: 530-6500, kynnir til sölu Snorrabraut 61. Eignin er skráð 348,3 fm að stærð og sl. 30 ár hefur Gistiheimilið Snorri verið rekið í húseigninni. Í dag eru 12 svefnherbergi í eigninni, fjögur eins manna herbergi, tvö tveggja manna herbergi, tvö fjölskylduherbergi og fjögur tveggja manna herbergi með sér baðherbergi. Þá er fullbúið eldhús í kjallara eignar og stór matsalur auk geymslna o.fl.  

***Frekari upplýsingar og bókanir í skoðun má nálgast HÉR***

Nánari lýsing:

Á fyrstu hæð er móttaka, starfsmannaherbergi og tvö tveggja manna herbergi með sér baðherbergi hvort. Móttaka er rúmgóð og björt, með gluggum á tvo vegu og steinteppi á gólfi. Á bak við móttöku er rúmgott herbergi sem nýtt hefur verið fyrir starfsmenn og þar eru gluggar á tvo vegu, ágætir fataskápar og handlaug. Á gólfi er parket. Frá móttöku er gengið inn í skála þar sem eru tvö gestaherbergi sem bæði eru með sér baðherbergi innan rýmis. Á gólfi er parket.   
Á annari hæð eru fjögur herbergi, línskápur og nýlega uppgert baðherbergi. Þrjú herbergjanna eru afar rúmgóð og eru þau öll með gluggum á tvo vegu. Innan eins herbergis er sér baðherbergi þar sem eru flísar á gólfi og á veggjum, falleg innrétting, vegghengt wc, handklæðaofn, sturtuklefi og gluggi með opnanlegu fagi. Í öllum herbergjum er parket á gólfum utan fyrrgreinds baðherbergis þar sem eru flísar. Á hæðinni er loks línskápur og sameiginlegt baðherbergi þar sem eru flísar á gólfi og á veggjum, falleg innrétting, handklæðaofn, sturtuklefi og gluggi með opnanlegu fagi. 
Á þriðju hæð (rishæð) eru fjögur svefnherbergi og sameiginlegt baðherbergi. Öll herbergin eru að hluta til undir súð og nýtanlegir fermetrar því fleiri en birt stærð segir til um. Baðherbergi er haganlega innréttað með fallegri innréttingu, vegghengdu wc, nýlegum handklæðaofni og flísalögðum sturtuklefa. Á gólfi og á veggjum eru flísar. Fyrir ofan rishæð er ágætt geymsluloft. 
Í kjallara eru loks tvö gestaherbergi, eitt minna og annað stærra, fjögur baðherbergi, geymslur, þvottahús, eldhús og matsalur. Eldhús er rúmgott og vel tækjum búið og frá matsal er útgengt á hellulagða verönd og út í garð eignar. Á gólfi í eldhúsi og í matsal eru flísar. 

Húsið hefur sl. 30 ár verið nýtt undir rekstur Gistiheimilisins Snorra og leyfi fyrir slíkum rekstri til staðar fyrir áhugasama aðila. Eign með mikla tekju- og nýtingar möguleika í hjarta Reykjavíkur.  

Allar frekari upplýsingar veitir Brynjólfur Snorrason, lgfs., s: 896-2953, [email protected]

 

Ljósmyndir

Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing

Verðmat FastansVerðmat Fastans

Söguleg þróun á verðmati eignarinnar frá 2006

Þinglýstir kaupsamningarÞinglýstir kaupsamningar

Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð

loading

loading

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

Eigindi auglýsingarEigindi auglýsingar

Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna

FasteignaskráFasteignaskrá

Eignir í sömu byggingu og upplýsingar þeirra

010101

Gistiheimili á 1. hæð
348

Fasteignamat 2025

98.250.000 kr.

Fasteignamat 2024

91.550.000 kr.

Samskiptasaga byggingar

Atriði af fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur er varðar eignina

PóstlistiÁbendingarHafa samband