13.01.2022 1021013

Söluskrá FastansVöluskarð 28

221 Hafnarfjörður

hero

10 myndir

169.500.000

406.377 kr. / m²

13.01.2022 - 8 dag á Fastanum - Fjarlægt þann 21.01.2022

7

Svefnherbergi

4

Baðherbergi

417.1

Fermetrar

Fasteignasala

Miklaborg

[email protected]
823-0339
Aukaíbúð
Bílskúr
Há lofthæð
Svalir
Verönd

Staðsetning

Auglýsing

Tenglar

Lýsing

Lýsing á eigninni frá fasteignasölu

Miklaborg og Barbara Bergþórsdóttir s. 823-0339 kynna í einkasölu: Glæsilegt einbýlishús við Völuskarð 28 í Skarðshlíð í Hafnarfirði. Húsið er einstaklega vel staðsett, fyrir ofan götu, innarlega í botnlanga með sérlega glæsilegu útsýni. Um er að ræða 417,1 m² staðsteypt hús á tveimur hæðum að meðtöldum 59,8 m² bílskúr auk rúmlega 130 m² svala sem snúa til suðurs. Húsinu verður skilað fullgerðu að utan og tilbúnu til innréttinga. Samkvæmt teikningum væri mögulegt að vera með fleiri en eitt íbúðarrými og því tilvalið fyrir stórar fjölskyldur. Um er að ræða hús með möguleika á hinum ýmsu útfærslum þar sem mjög víða er gert ráð fyrir neysluvatni og niðurföllum. Bókið skoðun hjá Barböru Rut Bergþórsdóttur í síma s. 823-0339 eða með tölvupósti á [email protected] - Sýnum samdægurs.

Nánari lýsing: 

Húsið afhendist fullbúið að utan, klætt með lituðu áli og lóð skilast grófjöfnuð með timburverönd fyrir aftan hús. Að innan skilast húsið tilbúið til innréttingar skv. skilalýsingu. Hægt er að semja um að fá húsið afhent lengra komið skv. nánara samkomulagi.

Um er að ræða einstaka eign sem vert er að skoða. Mikil lofthæð er á efri hæð, gólfhiti á báðum hæðum og ofnakerfi í bílskúr. Sólstopp í öllu gleri, öll göt fyrir innihurðir eru tekin í yfirstærð og er sér rafmagnstafla fyrir auka íbúðarrýmið.

Efri hæð: Rúmgott og glæsilegt alrými með stórum gluggum, mikilli lofthæð og útgengi á svalir. Eitt tæplega 20 m² herbergi og tvö rúmgóð til viðbótar. Baðherbergi með útgengi á svalir og rúmgott þvottahús. Rúmlega 130 m² hellulagðar svalir með glæsilegu útsýni og lagnaleiðir klárar fyrir heitan pott.

Neðri hæð: Rúmgott herbergi inn af anddyri og gestasalerni. Einnig tæplega 60 m² rými með sérinngangi og baðherbergi sem býður upp á mikla möguleika, m.a. sem hjónasvíta með bað- og fataherbergi eða sem líkamsrækt með baðherbergi og gufubaði.

Auka íbúðarrými: Bjart og rúmgott með sérinngangi, anddyri, mjög rúmgóðu hjónaherbergi, rúmgóðu barnaherbergi, baðherbergi, eldhús og góðu alrými.

Afhending húsnæðis verður eigi síðar en í apríl/maí 2022 en í dag er húsið komið vel á veg.

*Tölvugerðum myndum sem eru meðfylgjandi er ætlað að gefa hugmynd um hvernig eignin gæti litið út fullkláruð.

Kaupendur greiða skipulagsgjald 0,3% af brunabótamati þegar það verður sett á. 

Um er að ræða spennandi tækifæri til að eignast glæsilegt einbýlishús á einstökum stað og innrétta eftir eigin höfði. Frábær staðsetning í nálægð við náttúruna auk þess sem skóli og leikskóli eru í göngufæri. Þá er búið að opna Ásvallabraut sem greiðir fyrir umferð til og frá hverfinu.

Allar nánari upplýsingar veitir Barbara Bergþórsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 823-0339 eða b[email protected]

 

 

 

 

 

 

Ljósmyndir

Auglýsing

Verðmat FastansVerðmat Fastans

Söguleg þróun á verðmati eignarinnar frá 2006

Þinglýstir kaupsamningarÞinglýstir kaupsamningar

Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð

loading

loading

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

Eigindi auglýsingarEigindi auglýsingar

Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna

FasteignaskráFasteignaskrá

Eignir í sömu byggingu og upplýsingar þeirra

010101

Einbýli á 1. hæð
417

Fasteignamat 2025

208.150.000 kr.

Fasteignamat 2024

209.700.000 kr.

Samskiptasaga byggingar

Atriði af fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur er varðar eignina

PóstlistiÁbendingarHafa samband