Söluauglýsing: 1020061

Klapparhlíð 13

270 Mosfellsbær

Verð

55.900.000

Stærð

87.5

Fermetraverð

638.857 kr. / m²

Tegund

Fjölbýli

Fasteignamat

46.850.000

Fasteignasala

LIND Fasteignasala

Símanúmer

hero

Þessi auglýsing hefur verið fjarlægð, hún var inni í 9 daga.

Staðsetning

Auglýsing

Lýsing

Lýsing á eigninni frá fasteignasölu

LIND fasteignasala og Helga Pálsdóttir löggiltur fasteignasali kynna virkilega fallega og vel skipulagða 87,5 fm þriggja herbergja endaíbúð á þriðju hæð í Klapparhlíð 13 í Mosfellsbæ. Eignin er mjög vel með farin og öll hin smekklegasta.  Stutt er í skóla, leikskóla, sundlaug og líkamsrækt. 

Vinsamlegast bókið ykkur i skoðun fyrir opið hús á [email protected]

Nánari lýsing:
Forstofa 
með með flísum á gólfi og fatahengi.
Eldhús með fallegri innréttingu með efri og neðri skápum ásamt rúmgóðum búrskáp. Skápahurðar voru nýlega filmaðar að innan og utan, settur nýr vaskur og blöndunartæki ásamt nýrri borðplötu og klæðningu milli skápa frá Fanntófell. Tæki frá AEG í innréttingu. Whirlpool uppþvottavél getur fylgt með í kaupunum. Harðparket á gólfi.
Stofa með harðparketi á gólfi og útgengi út á svalir til suð-vesturs sem hafa verið klæddar með timbri. Opið er milli stofu og eldhús þannig að rýmið nýtur sín mjög vel.
Hjónaherbergið er rúmgott með harðparketi á gólfi og fataskáp. 
Barnaherbergi með harðparketi á gólfi og fataskáp.
Baðherbergi með flísalögðu gólfi og baðkari með sturtuaðstöðu, nýlegar hvítar innréttingar með nýjum blöndunartækjum, handklæðaofn og opnanlegur gluggi.
Þvottahús með flísalögðu gólfi, vinnuborð, tengi fyrir þvottavél og þurrkara, hilla og þvottasnúrur.
Geymsla er innaf þvottahúsi með harðparketi á gólfi, nýtt í dag sem skrifstofu/vinnuherbergi. 

Helstu endurbætur á íbúð. 
Sett harðparket á öll rými fyrir utan forstofu, þvottahús og baðherbergi.
Fataskápar og eldhúsinnrétting ásamt innihurðum filmaðar af fagaðila.
Ný vifta í eldhúsi, borðplata og plata á milli skápa ásamt nýjum vask og blöndunartækjum.
Innréttingar á baðherbergi endurnýjaðar.
Íbúðin heilmáluð fyrir rúmu ári síðan.
Nýjar gardínur í allri íbúðinni, myrkvunargardínur í svefnherbergjum.


Nýlega var hjóla og vagnageymsla máluð ásamt stigahúsi. Skipt um allar lofttúður á þaki og vélræn loftun inn í allar íbúðir yfirfarin. Húsgjöld eignarinnar eru 16.820 kr á mánuði, innifalið í húsgjöldum er allur hitakostnaður, rafmagn í sameign, húseigendatrygging, sláttur á garði og framkvæmdasjóður 

Í sameign er hjólageymsla. Frábær staðsetning í þessu vinsæla hverfi. Í göngufæri við Lágafellsskóla og leikskólann Hulduberg, World Class, sundlaug og golfvöll. Stutt í alla aðra þjónustu. Allar upplýsingar um eignina veitir Helga Pálsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 822 2123 eða [email protected] 

Ljósmyndir

Auglýsing
Auglýsing

Þinglýstir kaupsamningar

Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð

loading

loading

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

Eigindi auglýsingar

Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna

PóstlistiÁbendingarHafa samband