04.11.2021 1013606

Söluskrá FastansGeirsgata 2

101 Reykjavík

hero

22 myndir

104.900.000

839.872 kr. / m²

04.11.2021 - 5 dag á Fastanum - Fjarlægt þann 09.11.2021

2

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

124.9

Fermetrar

Fasteignasala

Fasteignasalan TORG

[email protected]
6966580
Lyfta
Svalir
Geymsla

Staðsetning

Auglýsing

Tenglar

Lýsing

Lýsing á eigninni frá fasteignasölu

Fasteignasalan TORG kynnir: Glæsilega 3ja herbergja 124,9 fm íbúð (203) í lyftuhúsi við Geirsgötu 2, Hafnartorgi. Íbúðin er á annarri hæð á einu skemmtilegasta svæði miðborgarinnar. Í eigninni er aukin lofthæð með stórum björtum gluggum. Allar innréttingar og tæki eru sérvaldar af innanhúsarkitekt til að mynda eina stílhreina heild og eru öll tæki og tæknibúnaður fyrsta flokks. Íbúðin skiptist í tvö svefnherbergi, stóra stofu/ borðstofu, eldhús, baðherbergi, þvottaherbergi og geymslu. Íbúðin er fullbúin með innbyggðum ísskáp og uppþvottavél og afhendist með gólfefnum á aðalrýmum en votrými eru flísalögð. Undir byggingunum er einn stærsti bílakjallari landsins með um 1160 bílastæðum. Gengið er inn í stigaganginn frá göngugötu milli húsanna en einnig ná bæði stigi og lyftur niður í bílakjallarann undir húsunum. Stigangur er rúmgóður. 

Allar nánari upplýsingar veitir Þorgeir, lögg.fasteignasali í síma 696-6580 eða [email protected]

Nánari lýsing íbúðar:
Forstofa: Anddyri: Fataskápar eru í anddyri sem eru spónlagðir að innan með lýsingu og hurðum. Ytra byrði er sprautu lakkað í litaþema íbúðarinnar. Innvols er frá Innval með fylgihluti af vandaðri gerð.
Alrými: Eldhús/borðstofa/stofa: 
Innréttingar: Vandaðar innréttingar frá Noblessa í Þýskalandi og GKS með ljúflokunum á skápum og skúffum.
Borðplata: Hvít Meganite borðplata og innbyggður vaskur úr sama efni. Blöndunartæki eru svört á lit frá Vola, hönnuð af Arne Jacobsen.
Eldhústæki: Blástursofn, helluborð og ísskápur frá Siemens (dökkt stainless steel) með Home Connect tengingu sem hægt er að stjórna úr snjallsíma eða spjaldtölvu. Gufugleypir er frá Elica, tegund Easy. Frá stofu er gengið út á austur-svalir.
Innbyggðum ísskápur og uppþvottavél frá Siemens.
Aðalbaðherbergi: Er flísalagt með ítölskum gæðaflísum með marmaramynstri frá Iris. Innrétting er í litaþema íbúðar, háglans grá frá Noblessa með Meganite borðplötu og innbyggðum vaski úr sama efni. Speglalýsing á baðherbergjum er Mini Glo Ball frá Flos. Hreinlætistæki eru frá Vola. Salerni upphengd með innbyggðum vatnskassa.
Hjónaherbergi:
Fataskápar í svefnherbergjum eru spónlagðir að innan og með hurðum og ytra byrði sem eru sprautu lakkaðar í litaþema íbúðarinnar. Innvols er frá Innval með fylgihluti af vandaðri gerð. 
Svefnherbergi/sjónvarpsherbergi: Í dag er þetta nýtt sem stórt herbergi en auðveldlega að breyta aftur í sjónvarpsherbergi.
Þvottaherbergi: Flísalögð með sömu flísum og í baðherbergi. Innrétting er frá Noblessa í sama litaþema. vinnuvaskur og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla: 6,4 fm geymsla í sameign Gólf í séreignageymslu er lakkað, geymslan er með kerfislofti. Léttir veggir eru úr gipsplötuveggjum, málaðir í ljósum lit.
Sameign: Í sameign er einnig sameiginleg hjóla- og vagnageymsla. Sameignir og lóð skilast fullfrágengin.
Bílastæði: Íbúum Hafnartorgs stendur til boða að leigja bílastæðakort skv. verðskrá bílageymslu Hafnatorgs, undir byggingunum er einn stærsti bílakjallari landsins með um 1160 bílastæðum, sjá nánar á vefslóð: www.hafnartorg.is/bilageymsla/.
Húsið: Útihurðir eru raflæstar og tengdar heildstæðu aðgangsstýrikerfi. Dyrasími með myndavél frá Bticino og þráðlausu e-net ljósastýrikerfi frá GIRA. Allar íbúðir eru með loftræstikerfi þar sem upphituðu fersklofti er dælt inn í íbúðir og í votrýmum er vélrænt útsog.

Allar nánari upplýsingar veitir Þorgeir, lögg.fasteignasali í síma 696-6580 eða [email protected]

Glæsilegt hús í hjarta borgarinnar/Geirsgata 2 (G1)
Hafnartorg skartar 70 hágæða íbúðum, allt frá stílhreinum tveggja herbergja íbúðum upp í stórglæsilegar þakíbúðir með einstöku útsýni. Allar innréttingar og tæki eru sérvaldar af innanhúsarkitekt til að mynda eina stílhreina heild og eru öll tæki og tæknibúnaður fyrsta flokks. Allt ytra efnisval bygginganna er í hæsta gæðaflokki sem og allur lóðarfrágangur. Undir húsunum er stærsti bílakjallari landsins sem nær allt til Hörpunnar. Íbúðirnar eru frábærlega staðsettar í nálægð við menningu, sögu, verslun og þjónustu. Glæsilegar fasteignir í hjarta Reykjavíkur með iðandi mannlíf allt árið um kring. Byggingarnar tengjast með sameiginlegum bílakjallara, sem tengist einnig við bílakjallara Hörpunnar og verður með þeirri tengingu stærsti bílakjallari landsins.

Byggingaraðili:
Frá árinu 1998 hefur ÞG Verk byggt fjölda heimila fyrir ánægðar fjölskyldur. Áreiðanleiki, gæði og notagildi eru einkunnarorð fyrirtækisins.  Meginmarkmið ÞG Íbúða ehf  er að skila góðu verki og eiga traust og áreiðanleg samskipti við viðskiptavini.

Nánar um Hafnartorg:
Arkitektar hússins eru PKdM arkitektar. Stofan sem var stofnuð af Pálmari Kristmundssyni arkitekt hefur unnið til fjölda verðlauna hér heima og erlendis fyrir framúrskarandi hönnun. Allt efnisval bygginganna að innan sem utan er í hæsta gæðaflokki sem og allur lóðarfrágangur.

 

Ljósmyndir

Auglýsing
Auglýsing

Verðmat FastansVerðmat Fastans

Söguleg þróun á verðmati eignarinnar frá 2006

Þinglýstir kaupsamningarÞinglýstir kaupsamningar

Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð

Pnr.HeimilisfangKaupverðStærðFermetraverðTegundFastan.Dags.Noth.
102.000.000 kr.125.30 814.046 kr./m²236361414.01.2020

104.000.000 kr.125.10 831.335 kr./m²236361415.12.2021

103.000.000 kr.124.90 824.660 kr./m²236359611.03.2022

Fastinn geymir kaupsamninga aftur til 2007

Sótt frá Þjóðskrá

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

loading

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

Eigindi auglýsingarEigindi auglýsingar

Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna

FasteignaskráFasteignaskrá

Eignir í sömu byggingu og upplýsingar þeirra

040101

Veitingahús á 1. hæð
356

Fasteignamat 2025

146.000.000 kr.

Fasteignamat 2024

145.900.000 kr.

Samskiptasaga byggingar

Atriði af fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur er varðar eignina

Engin samskiptasaga fannst á þessari eign.


    Byggir aðeins á útgefnum fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur á milli 1997 - 2024 ( júlí ).

    PóstlistiÁbendingarHafa samband