15.10.2021 1011173

Söluskrá FastansVíkurhóp 18

240 Grindavík

hero

27 myndir

75.900.000

455.856 kr. / m²

15.10.2021 - 148 dag á Fastanum - Fjarlægt þann 11.03.2022

3

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

166.5

Fermetrar

Fasteignasala

RE/MAX

[email protected]
861-7507
Bílskúr
Gólfhiti

Staðsetning

Auglýsing

Tenglar

Lýsing

Lýsing á eigninni frá fasteignasölu

RE/MAX og Dagbjartur Willardsson löggiltur fasteignasali kynna raðhúsið Víkurhóp 18, fnr 250-0880

Um er að ræða glæsilegt raðhús sem verður afhent á byggingar og matsstigi 7 og verður húsið fullklárað við afhendingu. Húsið er byggt af Grindinni ehf og er miðhús í þriggja raðhúsalengju. Innréttingar og innihurðir eru frá Grindinni og eru innihurðir 2,20m á hæð. Allar innréttingar og innihurðir eru svartar sem og allir tenglar í húsinu. Hvít innfelld ljós frá Rönning. Vönduð tæki í eldhúsi. Sandlituð  málning á veggjum. Gólfhiti er í húsinu. 

FÁÐU SENT SÖLUYIRLIT YFIR EIGNINA HÉR.

 Nánari lýsing:

Aðkoma: Steypt bílaplan og stétt að inngangi í húsið. Steyptir veggir fyrir framan og steypt stétt innan veggja. Hitalögn er í bílaplani.

Forstofa: Gráar flísar á gólfi. Svartur fataskápur frá Grindinni.

Hjónaherbergi: Parket á gólfi verður Xway frá Byko. Svartur fataskápur frá Grindinni. Inn af hjónaherbergi er baðherbergi. Myrkvunargardínur verða í hjónaherbergi.

Baðherbergi inn af hjónaherbergi:  Svört innrétting frá Grindinni með granítsteini með Nero assoluto leðuraferð frá S.Helgasyni í borðplötu. Flísalagt í hólf og gólf með gráum flísum.Svört Mora sturtutæki og reyklituð sturtugler frá Íspan. Svört Mora blöndunartæki í handlaug. Hvítur vaskur frá Tengi og hvítt upphengt salerni.

Barnaherbergi: Eru tvö og verða bæði með Xway parketi frá Byko og svörtum fataskápum frá Grindinni. Myrkvunargardínur verða í barnaherbergjum.

Stofa/Borðstofa: Parket á gólfi. Langur svartur sjónvarpsskenkur frá Grindinni verður í stofu.

Eldhús: Parket á gólfi. Svört innrétting frá Grindinni sem og stór eyja. Borðplötur verða granítsteinn með Nero assoluto leðuráferð. Vaskur verður niðurfelldur í borðplötuna og undirlímdur. Í eyjunni verður Witt spanhelluborð 78 cm niðurfellt i granitborðplötuna. Tveir svartir ofnar verða í innréttingu báðir frá Siemens, Combiofn og bakarofn. Uppþvottavél verður Electrolux og verður hún innbyggð. Svartur amerískur kæli/frystiskápur frá LG. 

Baðherbergi: Svört innrétting frá Grindinni með speglaskápum. Granítsteinn með Nero assoluto  leðuraferð frá S.Helgasyni í borðplötu.  Flísalagt í hólf og gólf með gráum flísum. Hansa blöndunartæki í sturtu og svartur haus úr lofti., Hvít handlaug og upphengt salerni frá Tengi. Innbyggð svört Damixa blöndunartæki fyrir handlaug. Útgengt er úr baðherbergi út á pallinn en þar er gert ráð fyrir að hægt sé að setja heitan pott.

Þvottahús: Gráar flísar á gólfi. Svört innrétting frá Grindinni. Gengið er inn í bílskúr úr þvottahúsi. Svartur handklæðaofn.

Bílskúr: Gólf er tilbúið til flotunnar og til að setja varanlegt gólfefni. Gott geymsluloft. Veggir eru grunnaðir. Rafmótor á bílskúrshurð. Inngönguhurð er í skúrinn við anddyri hússins. I bilskúr eru auka rafmagnstenglar og sjonvarpstengill og nettenging fyrir sjonvarp ásamt auka lýsingu undir geymslulofti, þannig að hægt væri að útbúa gott sjónvarpsherbergi í skúrnum.

Lóð: Lóðin er frágengin. Að framan eru steyptar stéttar og skjólveggir. Baklóð sem snýr í suður er með steyptum skjólveggjum og góðum palli úr gagnvarinni furu. Lagnir fyrir heitan pott eru til staðar. Að öðru leiti er lóð tyrfð og steyptur garður á lóðarmörkum að aftan.


Allar nánari upplýsingar veita Dagbjartur Willardsson lgf. í síma 861-7507 eða [email protected] 

Ég býð upp á frítt söluverðmat á þinni eign og veiti góða og lipra þjónustu. Fagljósmyndari tekur allar ljósmyndir og svo er innifalin 3D myndataka af eignum.


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. (Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4%)
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl. 2.500 kr. af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - sjá heimasíður lánastofnanna.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900. kr. m.vsk

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill RE/MAX því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
 

Ljósmyndir

Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing

Verðmat FastansVerðmat Fastans

Söguleg þróun á verðmati eignarinnar frá 2006

Þinglýstir kaupsamningarÞinglýstir kaupsamningar

Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð

Pnr.HeimilisfangKaupverðStærðFermetraverðTegundFastan.Dags.Noth.
54.400.000 kr.166.50 326.727 kr./m²250088009.08.2021

79.500.000 kr.166.50 477.477 kr./m²250088015.07.2022

100.985.000 kr.166.50 606.517 kr./m²250088015.07.2024

Fastinn geymir kaupsamninga aftur til 2007

Sótt frá Þjóðskrá

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

loading

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

Eigindi auglýsingarEigindi auglýsingar

Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna

FasteignaskráFasteignaskrá

Eignir í sömu byggingu og upplýsingar þeirra

010101

Raðhús á 1. hæð
166

Fasteignamat 2025

80.550.000 kr.

Fasteignamat 2024

81.000.000 kr.

Samskiptasaga byggingar

Atriði af fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur er varðar eignina

Engin samskiptasaga fannst á þessari eign.


    Byggir aðeins á útgefnum fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur á milli 1997 - 2024 ( júlí ).

    PóstlistiÁbendingarHafa samband