11.09.2021 1006169

Söluskrá FastansÞórðarsveigur 17

113 Reykjavík

hero

19 myndir

54.900.000

453.344 kr. / m²

11.09.2021 - 82 dag á Fastanum - Fjarlægt þann 01.12.2021

3

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

121.1

Fermetrar

Ekki tókst að greina fasteignasölu.

Lyfta
Kjallari
Svalir
Geymsla

Staðsetning

Auglýsing

Tenglar

Lýsing

Lýsing á eigninni frá fasteignasölu

Vilhjálmur Bjarnason löggiltur fasteignasali kynnir: 

Þessi íbúð er seld. Þórðarsveigur 17 í Grafarholti, Reykjavík. Mjög falleg og sérlega vel skipulögð 95,6 fm, 3ja til 4ra herbergja endaíbúð á fimmtu og efstu hæð í þessu fallega lyftuhúsi með gluggum á þrjá vegu og frábæru útsýni ásamt góðu stæði, skráð 25,5 fm nettó, í bílgeymslu í kjallara hússins. Íbúðin er skráð 3ja herbergja og þá með tveimur svefnherbergjum en góð geymsla með stórum opnanlegum glugga er innan íbúðarinnar og er hún nýtt sem aukaherbergi eins og margir gera í þessu húsi. Þvottahús innan íbúðarinnar. Stórar suð- vestur svalir með frábæru útsýni. Sameiginlegur stór garður  með grasi. Íbúðin er skráð 95.6 fm hjá Þjóðskrá og stæðið í bílageymslunni er skráð 25.5 fm nettó og er því eignin samtals 121.1 fm. 
Íbúðin getur verið laus mjög fljótlega. Áhugasamir vinsamlega sendið póst á [email protected] til að panta söluyfirlit og tíma til skoðunar. Ekki verður opið hús en stefnt er á að sýna íbúðina í vikunni. 
Aðkoma: Gengið er inn á jarðhæðina í sameiginlega forstofu og þaðan í teppalagt stigahús og í lyftuna.
Íbúðin skiptist í:
Forstofu sem er með góðum skáp og flísar á gólfi.
Gangur og hol með eikarparketi.
Hjónaherbergi rúmgott með eikarparketi og fallegum og stórum eikarskápum upp í loft.
Rúmgott barnaherbergi með eikarparketi á gólfi, fallegur eikarskápur upp í loft.
Nokkuð stór geymsla sem hægt er að nota sem herbergi er innan íbúðarinnar með eikarparketi á gólfi og stórum opnanlegum glugga.
Baðherbergi er með glugga, flísalagtá gólf og upp í um 2ja metra hæð, baðkar og sturtuklefi, upphengt wc, halogen ljós, handklæðaofn, vaskaskápur og spegill.
Sérþvottahús innan íbúðarinnar með flísum á gólfi, hillur, vaskur og vinnuborð.
Fallegt og bjart eldhús með eikarparketi á gólfi, falleg eikar innrétting, tengt fyrir uppþvottavél, stálháfur og stáltæki.
Opið yfir í fallega og rúmgóða stofu og borðstofu með eikarparketi á gólfi, útgangur á stórar suð- vestur svalir með frábæru útsýni.
Íbúðin er mjög heimilisleg, rúmgóð og nýtist vel. Gardínur sem eru í íbúðinni fylgja.  
Sameign.
Á jarðhæðinni er sameiginleg hjóla og vagnageymsla.
Lóðin: Sameiginlegur stór garður  með grasi.
Húsið er staðsteypt og steinað fjölbýli á frábærum útsýnisstað í Grafarholtinu í Reykjavík.
Í kjallara hússins er gott sameiginlegt bílastæðahús með sérstæði fyrir þessa íbúð. 

Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru m.a. fengnar með sjónskoðun fasteignasala eignarinnar, sóttar í opinberar skrár, samkvæmt upplýsingum frá eiganda eignarinnar og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi skal veita fasteignasala og tilboðsgjöfum upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, t.d. vatns og raflagnir, dren, skólp og þak. Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. VB Eignir fasteignasala bendir væntanlegum tilboðsgjöfum á að kynna sér vel ástand eigna með  skoðun á eigninni fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þeir telji þörf á því. 


Ég hef öll mín ár frá 1992 sem fasteignasali hjálpað fólki og fjölskyldum að selja heimili sitt og finna réttu eignina fyrir sig og sína.
Í þessu felst meðal annars að ef ég hef ekki réttu eignina til sölu sjálfur að leita með ykkur á öðrum fasteignasölum, aðstoða við að komast í gegnum greiðslumat og lánafyrirgreiðslu því tengdu ásamt því að ráðleggja og hjálpa með tilboðsgerð og annað sem viðkemur kaupum á nýju heimili. Margir eru að hugsa um að endurfjármagna úr óhagstæðum bankalánum yfir í hagstæðari lífeyrissjóðslán þessa dagana og hjálpa ég fólki að athuga hvort það borgar sig og þá hvar best er að taka ný lán.
Ég liðsinni þér alla leið hvort sem þú ert að kaupa eða selja, endurfjármagna, vantar ráðgjöf eða annað sem viðkemur lánamálum og eða fasteignaviðskiptum.
Bendi ég öllum á að betra er að taka lífeyrissjósðlán en bankalán vegna kaupa á nýju heimili eða vegna endurfjármögnunar.
Allir eiga rétt á láni í nánast öllum þeim lífeyrissjóðum sem þeir hafa borgað í frá því þeir byrjuðu að vinna og svo er að velja þann sjóð sem er með lægstu vextina og eða hæsta lánshlutfallið eftir því sem hentar hverjum og einum. Ef þið þurfið meiri lán en þau 60 til 75 % sem lífeyrissjóðirnir eru að bjóða þá er hægt að taka allt upp í 90 % lán fyrir fyrstu kaupendur með því að taka lán frá Framtíðinni lánasjóð á eftir lífeyrissjóðsláninu. Þeir sem hafa keypt íbúð áður geta fengið upp í 85 % lán á eftir lífeyrissjóðslánunum.
Ég hef undanfarin tíu ár starfað sem stjórnarmaður, formaður og varaformaður í sjálfboðavinnu innan Hagsmunasamtaka heimilanna og hef þar og annars staðar eftirnafnið Ekki fjárfestir. 

Vilhjálmur Bjarnason löggiltur fasteignasali.
VB Eignir  Heilshugar um þinn hag. Sími 822-8183

Ljósmyndir

Auglýsing
Auglýsing

Verðmat FastansVerðmat Fastans

Söguleg þróun á verðmati eignarinnar frá 2006

Við erum að vinna að uppfærslu á Verðmati Fastans. Það kemur aftur von bráðar.

Þinglýstir kaupsamningarÞinglýstir kaupsamningar

Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð

loading

loading

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

Eigindi auglýsingarEigindi auglýsingar

Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna

FasteignaskráFasteignaskrá

Eignir í sömu byggingu og upplýsingar þeirra

020101

Íbúð á 1. hæð
83

Fasteignamat 2025

57.950.000 kr.

Fasteignamat 2024

58.550.000 kr.

020102

Íbúð á 1. hæð
51

Fasteignamat 2025

43.900.000 kr.

Fasteignamat 2024

44.350.000 kr.

020201

Íbúð á 2. hæð
95

Fasteignamat 2025

66.600.000 kr.

Fasteignamat 2024

67.050.000 kr.

020202

Íbúð á 2. hæð
50

Fasteignamat 2025

41.300.000 kr.

Fasteignamat 2024

41.750.000 kr.

020203

Íbúð á 2. hæð
91

Fasteignamat 2025

64.100.000 kr.

Fasteignamat 2024

64.550.000 kr.

020301

Íbúð á 3. hæð
95

Fasteignamat 2025

66.750.000 kr.

Fasteignamat 2024

67.150.000 kr.

020302

Íbúð á 3. hæð
51

Fasteignamat 2025

41.650.000 kr.

Fasteignamat 2024

42.100.000 kr.

020303

Íbúð á 3. hæð
93

Fasteignamat 2025

64.600.000 kr.

Fasteignamat 2024

65.000.000 kr.

020401

Íbúð á 4. hæð
95

Fasteignamat 2025

66.850.000 kr.

Fasteignamat 2024

67.300.000 kr.

020402

Íbúð á 4. hæð
51

Fasteignamat 2025

44.700.000 kr.

Fasteignamat 2024

45.200.000 kr.

020403

Íbúð á 4. hæð
93

Fasteignamat 2025

64.800.000 kr.

Fasteignamat 2024

65.250.000 kr.

020501

Íbúð á 5. hæð
95

Fasteignamat 2025

67.300.000 kr.

Fasteignamat 2024

67.950.000 kr.

020502

Íbúð á 5. hæð
51

Fasteignamat 2025

45.900.000 kr.

Fasteignamat 2024

46.400.000 kr.

020503

Íbúð á 5. hæð
93

Fasteignamat 2025

64.950.000 kr.

Fasteignamat 2024

65.600.000 kr.

Samskiptasaga byggingar

Atriði af fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur er varðar eignina

PóstlistiÁbendingarHafa samband