09.09.2021 1005807

Söluskrá FastansHeiðarsel 19

109 Reykjavík

hero

33 myndir

89.500.000

447.053 kr. / m²

09.09.2021 - 36 dag á Fastanum - Fjarlægt þann 14.10.2021

1

Svefnherbergi

0

Baðherbergi

200.2

Fermetrar

Fasteignasala

Trausti

[email protected]
899-8811
Bílskúr
Svalir
Arinn

Staðsetning

Auglýsing

Tenglar

Lýsing

Lýsing á eigninni frá fasteignasölu

Trausti Fasteignasala kynnir: Fallegt og sérlega vel viðhaldið endaraðhús á rólegum stað í Seljahverfinu í Reykjavík. Í húsinu eru 4 svefnherbergi, tvö salerni, stór stofa + borðstofa, eldhús, þvottaherbergi og góður bílskúr með óvenju hárri innkeyrsluhurð og góðri lofthæð. Nýlega var skipt um járn á þakinu. Mikil vídd er í umhverfinu næst húsinu og því góð yfirsýn frá því til suður og vesturs. Stæði eru fyrir þrjá bíla á bílaplaninu fyrir framan húsið og næg bílastæði eru í nær umhverfinu.

Allar nánari upplýsingar veitir Garðar Hólm lögg.fasteignasali í síma 899-8811 eða [email protected]

 
Nánari lýsing eignar:
Bílaplan með snjóbræðslu er fyrir framan húsið sem rúmar þrjá bíla í stæðum.
Neðri hæð:
Forstofa: Komið er inn í forstofu með flísum á gólfi og tvöföldum fataskáp. Hiti er í gólfi.
Hol: Hol er inn af forstofunni. Holið er með flísum á gólfi og gólfhita. Rýmið leiðir inn í öll rými hæðarinnar.
Baðherbergi: Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf með fallegum ljósum flísum. Innrétting er hvít undir vaski og við hlið spegils. Vaskur er ofanáliggjandi. Salernið er upphengt og vatnskassinn er innbyggður. Bæði er baðkar og sturta. Hiti er í gólfum. Fallegur stál handkæðaofn er á vegg. Opnanlegur gluggi. Baðherbergið var endurnýjað á árunum 2007-2008.
3 x herbergi: Svefnherbergin á hæðinni eru þrjú öll með nýlegu harðparketi á gólfi. Góðir fataskápar eru í tveimur af herbergjunum. Út úr hjónaherbergi er útgengni út í lítinn garð á bak við húsið.
Efrihæð:
Á milli hæða er fallegur stálstigi með parketi á þrepum. Fallegir ílangir gluggar eru í stigaopinu sem hleypa fallegri birtu inn í stigaopið.
Stofa + borðstofa: þegar komið er upp á efri hæðina er komið inn í rúmgóða stofu sem rúmar setustofu og borðstofu. Í miðju rýminu er fallegur arinn. Útgengni er frá stofunni út á stórar suðvestursvalir með mikilli víðsýni. Opið er að hluta yfir í eldhúsið frá stofunni. Flísar eru á gólfi.
Eldhús + borðkrókur: Eldhúsið og borðkrókurinn eru saman í stóru rými sem opið er að hluta yfir í stofuna. Eldhúsið er með innréttingu í vinkil með eyju og efri og neðri skápum. Borðplata er flísalögð með tveimur vöskum. Borðkrókurinn er á móti eyjunni og er hann mjög rúmgóður. Auka búrskápur er á vegg í borðkróknum.
Þvottaherbergi: Inn af eldhúsinu er þvottaherbergi með innréttingu og opnanlegum glugga.
Gestasalerni: Gestasalerni er á hæðinni. Flísar eru á gólfi. Salernið er upphengt með innbyggðum vatnskassa. Fallegur hanklæðaofn er á vegg. 
Herbergi: Við hlið stofunnar er fjórða svefnherbergi eignarinnar. Herbergið er rúmgott með mikilli loft hæð og er búið að útbúa stiga og svefnloft innan þess. Áður var rýmið hluti af stofunni svo auðvelt er að breyta því til baka ef vilji er fyrir að stækka stofuna en frekar.
Bílskúr: Bílskúrinn er rúmgóður með mjög góðri lofthæð. Bílskúrshurðin er í yfirstærð og hentar því vel háum bílum. Þriggjafasarafmagn er í skúrnum, heitt og kalt neysluvatn, hitaveita og sjálfvirkur bílskúrshurðaopnari.

Allar nánari upplýsingar veita:
Garðar Hólm lögg.fasteignasali í síma 899-8811 eða [email protected]
Guðlaug Jóna lögg.fasteignasali í síma 661-2363 eða [email protected]

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Ljósmyndir

Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing

Verðmat FastansVerðmat Fastans

Söguleg þróun á verðmati eignarinnar frá 2006

Þinglýstir kaupsamningarÞinglýstir kaupsamningar

Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð

Pnr.HeimilisfangKaupverðStærðFermetraverðTegundFastan.Dags.Noth.
108.900.000 kr.200.20 543.956 kr./m²205496129.04.2024

Fastinn geymir kaupsamninga aftur til 2007

Sótt frá Þjóðskrá

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

loading

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

Eigindi auglýsingarEigindi auglýsingar

Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna

FasteignaskráFasteignaskrá

Eignir í sömu byggingu og upplýsingar þeirra

140101

Íbúð á 1. hæð
200

Fasteignamat 2025

106.050.000 kr.

Fasteignamat 2024

106.600.000 kr.

Samskiptasaga byggingar

Atriði af fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur er varðar eignina

Engin samskiptasaga fannst á þessari eign.


    Byggir aðeins á útgefnum fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur á milli 1997 - 2024 ( júlí ).

    PóstlistiÁbendingarHafa samband