Vallakór 6A, 203

Fjarlægð/Seld - Eignin var 7 daga á skrá

Verð 94,9
Stærð 128
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 744
Skráð 8.6.2023
Fjarlægt 16.6.2023
Byggingarár 2018
mbl.is

"Efsta hæð - Endaíbúð - Glæsilegt útsýni - Tvö stæði í bílageymslu - Íbúðin er laus"

Valhöll fasteignasala kynnir nýlega 4ra herbergja íbúð á 7.hæð ásamt tveimur stæðum í bílageymslu í Vallakór 6A í Kópavogi. Um er að ræða endaíbúð á efstu hæð í þessum hluta hússins með 21,1 fm suð-vestur svölum og glæsilegu útsýni. Örstutt er í alla helstu þjónustu, leikskóla, skóla, verslun, strætó, sundlaug, sportbar og falleg útivistarsvæði.

Nánari lýsing:

Um er að ræða íbúð 701 á 7. hæð hússins (efsta hæð í þessum hluta hússins). Íbúðin er skráð 127,6 fm að stærð og þar af er geymslan 6,8 fm. Íbúðinni fylgja stæði í bílageymslu merkt B24 og B25. 

Íbúðin skiptist í rúmgott anddyri með fataskáp, hjónaherbergi með opnu fataherbergi (18,3 fm á stærð), tvö barnaherbergi (bæði 9,3 fm á stærð) með fataskápum, baðherbergi með sturtu, innréttingu, vegghengdu salerni, handklæðaofni og aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara og stofu og eldhús í rúmgóðu alrými. Útgengi er á stórar svalir úr stofu, en mikið útsýni er af svölum og úr stofu. 

Þetta er góð íbúð í vinsælu hverfi sem vert er að skoða.

Húsið:
Húsið skiptist í tvær byggingar, Vallakór 6a og 6b með tveimur lyftuhúsum, tvær lyftur í öðru húsinu en ein í hinu. Stigar eru í báðum lyftuhúsum og er aðgengi þess vegna gott. Með öllum íbúðunum fylgir sér bílastæði í lokaðri bílgeymslu. Allar íbúðirnar eru með rúmgóðum svölum, en gott rými er á svölunum fyrir grill og garðhúsgögn.  Íbúðir á jarðhæð eru með sérafnotarétt á lóð. Mikið útsýni er einkennandi fyrir allt húsið. 

Þjónusta:
Eignin er staðsett á vinsælum stað í Kópavogi þar sem örstutt er í alla þjónustu. Má þar nefna leikskóla, grunnskóla, matvöruverslanir, sportbar, Kórinn íþróttamiðstöð, Salalaug, hesthúsahverfi, líkamsrækt, golfvöll GKG, og útivistarsvæði í Heiðmörk og í kringum Elliða- og Vifilstaðavatn.

Upplýsingar veitir:
Óskar H. Bjarnasen fasteignasali / lögmaður í síma 691-1931 eða í tölvupósti á netfangið oskar@valholl.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21
Mynd 22
Mynd 23
Mynd 24
Mynd 25
Mynd 26
Mynd 27
Mynd 28
Mynd 29
Mynd 30
Mynd 31