Verð | 159,0 |
Stærð | 237 |
Tegund | RaðPar |
Verð per fm | 670 |
Skráð | 18.9.2023 |
Fjarlægt | |
Byggingarár | 1980 |
mbl.is | 1163238 |
Möguleg skipti á minni eign á Seltjarnarnesi! Miklaborg kynnir: Mikið endurnýjað 237,3 fm endaraðhús að meðtöldum 23.2 fm bílskúr á þessum eftirsótta stað á Seltjarnarnesi.Skipting neðri hæðar: forstofa, baðherbergi, 3 svefnherbergi, sjónvarpshol, þvottaherbergi og innangengt í bílskúr. Skipting efri hæðar: stofa, borðstofa, eldhús, baðherbergi og svefnherbergi. Ris: Sjónvarps/fjölskyldurými og geymsla.
Eignin er mikið endurnýjuð að utan sem innan. T.d. gólfefni, innrétting, tæki og borðplata í eldhús, innrétting á baðherbergi efri hæðar. Ný 3 fasa rafmagnstafla í bílskúr, nýr forhitari á ofnakerfi, gler og gluggar endurnýjaðir að hluta til. Árið 2019 var húsið málað og voru veggir suðursvala bílskúrs og austurgafls sprungufylltir og múrhúðaðir.
Fasteignamat næsta árs verður: 146.550.000.
Forstofa: flísar á gólfi og fataskápar.
Baðherbergi: flísar á gólfi og sturtu, upphengt salerni og innrétting.
Þvottaherbergi: flísar á gólfi, innrétting og skápar og útgengt á lóð.
Bílskúr: innangengt úr þvottaherbergi, með sjálfvirkum hurðaopnara, ný 3 fasa rafmagnstafla og nýr forhitari á ofnakerfi.
3 svefnherbergi: öll rúmgóð og með fataskápum, parket á gólfi.
Sjónvarpsrými: parketlagt og útgengt á timburverönd til suðurs.
Gengið er um teppalagðan stiga á efri hæð:
Stofa/Borðstofa: parketlagðar, rúmgóðar, bjartar og samliggjandi stofa og borðstofa, hátt til lofts. Útgengi á stórar suður svalir.
Eldhús: snyrtileg hvít HTH innrétting, steinn á borðum og flísar á gólfi. Innrétting, tæki og flísar á gólfi var allt endurnýjað árið 2017.
Baðherbergi: flísalagt í hólf og gólf, baðkar, snyrtileg innrétting frá 2013 og gluggi.
Hjónaherbergi: parketlagt, skápar og útgengt á svalir til norðurs.
Gengið er um teppalagðan stiga í ris.
Ris: rúmgott parketlagt sjónvarps/fjölskyldurými og geymsla.
Fallegur garður til suðurs með stórri og skjólgóðri timburverönd.
Allar nánari upplýsingar veitir: Páll Þórólfsson löggiltur fasteignasali í síma 893-9929 eða pall@miklaborg.is