Lindarbraut 25, 170
Fjarlægð/Seld - Eignin var 29 daga á skrá
Verð |
197,0
|
Stærð |
357
|
Tegund |
Einbýli |
Verð per fm |
552
|
Skráð |
7.12.2022 |
Fjarlægt |
6.1.2023 |
Byggingarár |
1957 |
mbl.is |
|
ALDA fasteignasala og Hreiðar Levý lögg. Fasteignasali kynna 356,8fm, 9 herbergja einbýlishús, þar af 34,2fm bílskúr að Lindarbraut 25, 170 Seltjarnarnesi. Búið er að útbúa 2 herbergja aukaíbúð með sérinngangi í kjallara hússins. Mjög góð aðkoma er að húsinu á stórt hellulagt bílaplan. Eignin stendur á 1269fm eignalóð. Húsið er teiknað af Bárði Ísleifssyni arkitekt sem ma. teiknaði prófessorbústaðina við Háskóla Íslands, Sundlaug Vesturbæjar, Reykjalund og Landsbankahúsin á Akureyri, Ísafirði og Selfossi. Húsið er á þremur pöllum og skiptist í 1. pallur: Anddyri, forstofu, 3 samliggjandi stofur, eldhús, þvottahús og gestasalerni. 2. pallur: Herbergjagangur, 3 svefnherbergi og baðherbergi. Kjallari: Hol, svefnherbergi, baðherbergi, tvær geymslur ásamt 2. herbergja aukaíbúð með sérinngangi. Húsið stendur á gróinni og fallegri eignarlóð. Útgengt er úr sjónvarpsstofu út á sólríka og skjólgóð viðar- og timburverönd sem snýr til suðurs. Stór. gróinn og fallegur garður í kringum húsið. Stórt og fallegt einbýlishús með aukaíbúð á vinsælum og fjölskylduvænum stað á Seltjarnarnesinu.Ekki verður haldið opið hús, eingöngu einkasýningar. Til að bóka skoðun hafið samband við Hafþór Örn, Lögg. Fasteignasala í síma 699-4040, hafthor@aldafasteignasala.is eða Hreiðar Levý, lögg. Fasteignasala í síma 661-6021, hreidar@aldafasteignasala.is.
Fasteignamat 2023 skv. Þjóðskrá er 160.700.000krEignin Lindarbraut 25 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 206-7609, birt stærð 356.8 fm. Þar af er íbúð merkt 010101 skráð 302,6fm, bílskúr merktur 020101 skráður 34,2fm. Þá er ca. 20fm geymslurými í kjallara sem ekki er skráð sem birtir fermetrar hjá Þjóðskrá.
Nánari lýsing:
1. Pallur: Anddyri, forstofu, 3 samliggjandi stofur, eldhús, þvottahús og gestasalerni:
Anddyri: Flísar á gólfi.
Hol: Tenging við stofur, eldhús og gestasalerni. Gengið úr holi upp á herbergjapall.
Gestasalerni: Klósett og upphengdur vaskur.
Eldhús: Rúmgott eldhús. Innrétting með góðu geymslu og vinnuplássi. Ofn í vinnuhæð og aðstaða fyrir uppþvottavél. Rúmgóður borðkrókur. Gengið í þvottahús úr eldhúsi. Dúkur á gólfi.
Þvottahús: Rúmgott. Aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara. Innrétting með skáp, tvöföldum vask og góðu borðplássi. Útgengt er út í garð úr þvottahúsi.
Stofur: Stórar og rúmgóðar þrjár samliggjandi stofur. Góð tenging við eldhús úr borðstofu. Útgengt út í garð úr sjónvarpsstofu. Tröppur upp á herbergisgang úr sjónvarpsstofu.
2.Pallur: Herbergjagangur, 3 svefnherbergi og baðherbergi:Herbergjagangur: Tengir saman 3. svefnherbergi og baðherbergi. Gengið upp í herbergjagang úr holi og sjónvarpsstofu.
Baðherbergi: Rúmgott. Innbyggður flísalagður sturtuklefi með innbyggðum blöndunartækjum og sturtuhausum, klósett, frístandandi vask með spegli fyrir ofan ásamt innbyggðum skápum. Flísar á gólfi og að hálfu leiti upp vegg.
Svefnherbergi I: Rúmgott með innbyggðum hillum.
Svefnherbergi II: Rúmgott með góðu skápaplássi.
Svefnherbergi III: Mjög rúmgott.
Kjallari: Hol, Svefnherbergi, 2. geymslur, baðherbergi og 2. herbergja aukaíbúð með sérinngangi.Hol: Tengir saman flest rými kjallara.
Svefnherbergi: Mjög rúmgott.
Geymsla I: Ágætlega rúmgóð með hillum og glugga með opnalegu fagi.
Baðherbergi: Klósett, sturta með sturtuhengi ásamt baðinnréttingu með skáp, vask og spegli fyrir ofan. Lagnagrind iiní baðherbergi. Flísar á gólfi og upp vegg í sturtu.
Geymsla II: Gengið niður tvær troppur úr holi. Ca. 20fm geymsla með hillum. Óskráð í birta fermetra hjá Þjóðskrá.
Aukaíbúð: Samliggjandi stofa og eldhús, baðherbergi & svefnherbergi: Alrými: Samliggjandi stofa og eldhús. Eldhúsinnrétting með efri og neðri skápum.
Baðherbergi: Sturtuklefi, frístandandi vaskur með spegli fyrir ofan, fatahengi og aðstöðu fyrir þvottavél. Flísar á gólfi, við sturtu og fyrir ofan vask og þvottavél.
Svefnherbergi: Rúmgott með tvöföldum fataskáp.
Bílskúr:Rúmgóður 34,2fm bílskúr m/rafmagni, heitu og köldu vatni.
Lóð: 1269fm eignalóð. Stórt og rúmgott hellulagt bílaplan. Garður með viðarpalli, hellulagðri verönd ásamt stórum tyrffðum grónum og skjólgóðum garði.
Staðsetning eignarinnar er virkilega góð á eftirsóttum stað á Seltjarnarnesi þaðan sem skóli, leikskóli, falleg útivistar- og göngusvæði, golfvöllurinn, íþróttasvæði Gróttu, sundlaug Seltjarnarness og líkamsrækt er í göngufæri. Afar rólegt og fjölskylduvænt hverfi.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALDA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Nánari upplýsingar veita:
Hafþór Örn Guðjónsson, Löggiltur fasteignasali, í síma 699-4040, tölupóstur, hafthor@aldafasteignasala.is
Hreiðar Levý Guðmundsson, Löggiltur fasteignasali, í síma 6616021, tölvupóstur, hreidar@aldafasteignasala.is