Höfn 133742, 301
Fjarlægð/Seld - Eignin var 1125 daga á skrá
Verð |
Tilboð
|
Stærð |
18.394.333
|
Tegund |
Lóð/Jarðir |
Verð per fm |
|
Skráð |
2.12.2016 |
Fjarlægt |
1.1.2020 |
Byggingarár |
|
mbl.is |
|
RE/MAX Senter kynnir: NÁRRÚRUPERLU Í HVALFJARÐARSVEIT! Jörðin
Höfn í Leirár- og Melahreppi. Um er að ræða
landnámsjörð en þar bjó landnámsmaðurinn Hafnarormur (Ormur Stórólfsson). Jörðin er mikil
hlunnindajörð - sannkallað matarbúr.
Tvö íbúðarhús eru á jörðinni auk
gamalla gripahúsa (hrútahús, alifuglahús, fjós og hesthús). Kjallari undir gripahúsunum þar sem möguleiki er á að stunda
ilrækt. Á jörðinni er ennfremur nýleg
geymsluskemma með verkstæði,
sláturhúsi og hesthús með 15 stíum. Lítil
2ja herbergja íbúð er innaf skemmunni. Í
hesthússhlutanum er kaffistofa og salernisaðstaða. Áin
Hafnará rennur við jörðina norðanverða og er í
einkaeigu jarðarinnar Hafnar. Jörðin liggur
frá fjalllendi að sjó.
Hlunnindi eru m.a. leyfi fyrir
netalögnum 4m í sjó (lax og sjóbirtingur),
hafnarbeit hefur verið stunduð í Hafnará, tvö uppeldisker eru upp með ánni,
malarnám þar sem er að finna góða steypumöl fyrir t.d. einingarhús og einnig möl sem er góð fyrir rörasteypu,
ræktuð tún og mikið berjaland. Í landi Hafnar undir fjallinu Ölver er
frístundabyggð og þar eru nokkrar
óseldar sumarhúsalóðir sem fylgja jörðinni. Þá er einnig skipulagt
sumarhúsaland í Móhóli (fyrir neðan þjóðveg 1). Það eru einnig
nokkrar sumarhúsalóðir sem fylgja jörðinni.
Einstakt útsýni er af jörðinni yfir á Snæfellsnes og Snæfellsjökul.
Höfn er staðsett í stuttu ökufæri frá Borgarnesi.
Nánari upplýsingar um jörðina veita Sigga í gsm: 663-3219 (sigga@remax.is), Hrafnhildur í gsm: 862-1110 (hrafnhildur@remax.is) og Vigdís lfs. í 414-4700.