Burknavellir 3b, 221
Fjarlægð/Seld - Eignin var 15 daga á skrá
Verð |
62,5
|
Stærð |
107
|
Tegund |
Fjölbýli |
Verð per fm |
585
|
Skráð |
8.12.2022 |
Fjarlægt |
23.12.2022 |
Byggingarár |
2003 |
mbl.is |
|
Nýtt á skrá! Opið hús - Burknavellir 3b Hafnarfirði - mánudaginn 12. desember klukkan 16:30 - 17:00
Lind fasteignasala kynnir til sölu fallega 106,9 fermetra 4ra herbergja íbúð á annarri hæð í góðu fjölbýli við Burknavelli 3b í Hafnarfirði. Útgengi úr stofu á rúmgóðar svalir til vesturs. Þvottaherbergi inn af íbúð. Rúmgóð geymsla innan íbúðar. Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla á jarðhæð.
Húsið er byggt árið 2003 og lítur vel út. Hellulagðrar stéttir og sameiginleg malbikuð bílastæði fyrir framan hús. Um er að ræða eftirsótta staðsetningu í góðu fjölskylduhverfi þar sem stutt er í leikskóla (Hraunvallaleikskóli), grunnskóla og alla verslun og þjónustu. Fallegar hjóla- og gönguleiðir í næsta nágrenni, sundlaug (Ásvallalaug), heilsurækt (World Class), íþróttasvæði (Haukar) og golfvöll (Hvaleyrarvöllur).
Fasteignamat ársins 2023 er kr. 60.650.000,-.
Nánari lýsing:Forstofa: Með parketi á gólfi og góðum skápum.
Gangur: Með parketi á gólfi.
Stofa: Er rúmgóð með parketi á gólfi og gluggum til suðurs og vesturs. Útgengi á svalir.
Svalir: Eru rúmgóðar og snúa til vesturs.
Eldhús: Með parketi á gólfi og viðar eldhúsinnréttingu. Stál Electrolux bakaraofn og keramik helluborð. Siemens uppþvottavél og stál Samsung kæliskápur með frysti. Góður borðkrókur, lýsing undir skápum og gluggi til vesturs.
Hjónaherbergi: Er með parketi á gólfi og góðum skápum á heilan vegg sem ná upp í loft. Gluggi til austurs.
Svefnherbergi I: Er rúmgott, með parketi á gólfi og skápum. Gluggar til austurs.
Svefnherbergi II: Með parketi á gólfi, skápum og glugga til suðurs.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og á veggjum. Innrétting við vask og skápur. Baðkar með sturtutækjum og glerþili og upphengt salerni. Útloftun.
Þvottaherbergi: Er staðsett innan íbúðar. Með flísum á gólfi, vaski og tengi fyrir þvottavél/þurrkara. Útloftun.
Geymsla: Er rúmgóð og er staðsett inn af íbúð.
Hjóla og vagnageymsla: Er rúmgóð og snyrtileg með máluðu gólfi, hjólafestingar og glugga. Gluggar til austurs.
Allar nánari upplýsingar veitir Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali og lögmaður í síma 849-0672 eða á netfanginu heimir@fastlind.is