Borgartún 24 - íbúð 702, 105
Verð |
159,9
|
Stærð |
134
|
Tegund |
Fjölbýli |
Verð per fm |
1.191
|
Skráð |
20.11.2023 |
Fjarlægt |
|
Byggingarár |
2023 |
mbl.is |
1185515
|
Eignamiðlun kynnir:
Glæsilegar nýjar íbúðir í vel staðsettu fjölbýlishúsi í Borgartúni í Reykjavík. Íbúðir afhendast fullbúnar með vönduðum innréttingum, innbyggðum eldhústækjum og gólfefnum. Stæðí í bílageymslu. Svalir og þaksvalir. Sjávarútsýni.
Bókið skoðun. Sýnum samdægurs. Nánari upplýsingar veitir Gunnar Bergmann Jónsson í síma 839-1600 eða gunnarbergmann@eignamidlun.is Um er að ræða nánar tiltekið
íbúð 702 í Borgartúni 24b, íbúð merkt 01-0702, F2518393. 3ja herbergja endaíbúð. Samkvæmt Fasteignaskrá HMS er eignin skráð samtals 134,3 fm, þar af er íbúðarrými 108,9 fm og sérgeymsla er 25,4 fm. Íbúðin skiptist í forstofu, eldhús og stofu í alrými, tvö svefnherbergi, baðherbergi og sérþvottahús. Sérgeymsla fylgir íbúðinni. Tvennar svalir, útgengt úr stofu á svalir í suðaustur og úr herbergi og gangi er útgengt á þaksvalir sem snúa í suður. Sérstæði í bílageymslu (B20) fylgir íbúðinni.
*** Heimasíða verkefnisins **** Stærðir íbúða eru frá 52,8-191,6 fm. Geymsla fylgir öllum íbúðum.
* Frábær staðsetning í grónu hverfi. Steinsnar frá miðbænum og Laugardalnum. Frábært útsýni er úr mörgum íbúðum.
Borgartún 24 er glæsilegt 7 hæða fjölbýlishús með 64 íbúðum á 2.-7 hæð og verslunar- og þjónusturýmum á 1. hæð í einu helsta viðskiptahverfi borgarinnar. Í Borgartúni er blönduð byggð íbúða, skrifstofu-, verslunar- og þjónustuhúsnæðis. Frábær staðsetning í næsta nágrenni við stóra vinnustaði og alla helstu þjónustu, í göngufæri frá miðbænum og Laugardalnum. Byggingin er byggð utan um sameiginlegan inngarð. Á 4. hæð er einnig sameiginlegur þakgarður, á 6. hæð er sameiginlegur þakgarður og á 7. hæð eru sameiginlegar þaksvalir.
Frágangur íbúða að innan: Vandaðar þýskar innréttingar frá Nobilia í eldhúsi, baði og herbergjum (söluaðili er GKS). Íbúðirnar afhendast fullbúnar með tækjum og gólfefnum. Eldhúsraftæki koma frá Siemens, ísskápur og uppþvottavél eru innbyggð. Harðparket á gólfum herbergja og í alrými. Gólf á baðherbergjum og þvottahúsum eru flísalögð. Hreinlætistæki frá Grohe.
Frágangur utanhúss: Húsið er staðsteypt, einangrað að utan og klætt með viðhaldsléttri álklæðningu eða sambærilegu efni. Timbur/ál gluggar.
Lóð og bílastæði: Sameiginlegur inngarður er á 2. hæð og sameiginlegar þaksvalir eru á 4. hæð. Í bílakjallara eru 39 bílastæði, þar af 4 fyrir hreyfihamlaða, og 30 bílastæði eru á lóð. Bílastæði fyrir hreyfihamlaða er einnig á plani við aðalinngang.
Hiti og rafmagn: Hiti er sameiginlegur og reiknast samkvæmt hlutfallstölu en rafmagn er á sérmæli fyrir hverja íbúð.
Skipulagsgjald: Kaupandi greiðir skipulagsgjald
(0,3% af endanlegu brunabótamati).
Nánari upplýsingar veita sölumenn Eignamiðlunar:***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook