Grensásvegur 1B 401, 108

Fjarlægð/Seld - Eignin var 14 daga á skrá

Verð 81,5
Stærð 87
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 936
Skráð 16.11.2023
Fjarlægt 1.12.2023
Byggingarár 2023
mbl.is

Miklaborg og Jason Kristinn kynnir: Nýtt í sölu - Grensásvegur 1B íbúð 401.

Glæsileg 3ja herbergja 86,3 fm íbúð á 3ju hæð með svölum til suðausturs. Eignin afhendist fullbúin með öllum gólfefnum í des 2023.

https://www.g1.is/?ref=miklaborg

Nánari lýsing eignar 401. 3ja. herbergja, 87,1 fm, íbúð á 3.hæð með svölum. Íbúðinni fylgir sérgeymsla í kjallara, skráð 5,5 fm Komið er inn í stórt opið rými sem er eldhús, stofa og borðstofa. Skápur er við forstofuna. Stofa með útgengi út á svalir sem snýr til suðausturs. Stórt hjónaherbergi með fataskáp/fataherbergi. Annað svefnherbergi 9 fm. Baðherbergi flísalagt uppí loft á þremur hliðum, innrétting og sturta sem gengið er inní. Innfelld lýsing í lofti. Innaf eldhúsi er þvottahús.

Stutt lýsing Grensásvegs 1B Húsið er 41 íbúða vandað fjölbýlishús, hannað af Archus og Rýma arkitektastofum. Archus sá einnig um alla innanhúshönnun og efnisval. Allar íbúðir eru með svölum eða verönd, aukinni lofthæð og stórum björtum gluggum.  Þær eru afhentar fullbúnar, með öllum gólfefnum. Einn stigagang og lyftuhús.  Í hjólageymslu eru stæði fyrir 400 reiðhjól. Afhending verður í síðasta lagi 30. nóvamber 2023. Allar innréttingar eru sérsmíðaðar og koma frá Iwa. Innfelld LED lýsing í eldhúsinnréttingu og í niðurteknum loftum. Glæsileg Bosch tæki í öllum íbúðum, spanhelluborð, vandaður ofn, innbyggður ísskápur og uppþvottavél fylgja ásamt upphengdum háf frá Eico. Svartur yfirfelldur eldhúsvaskur með svörtu blöndunartæki frá Hansgrohe. Baðherbergi flísalögð með 60x60 cm flísum frá gólfi til lofts. Svalahandrið úr gleri. Gólfhiti er í öllum  íbúðum.

Bílakjallari/bílastæði.Við húsið eru ekki bílastæði, en í bílakjallara eru 183 bílastæði sem verða til útleigu til lengri eða skemmri tíma, en einnig verður hægt að greiða fyrir stæði eftir tímamæli innan dagsins. Inn- og útkeyrsla er Skeifumegin við húsið. Allar greiðslur fyrir stæði fara í gegnum app sem gerir allt utanumhald einfalt og auðvelt.  Í fullbúnum bílakjallara verða settar upp nokkrar hraðhleðslustöðvar fyrir rafknúnar bifreiðar.

Einstök staðsetning við Laugardalinn þar sem er mjög mikið úrval verslanna og þjónustu í Skeifunni, Glæsibæ, Ármúla og víðar. Þar má telja læknisþjónustu, heilsugæslu, matvöruverslanir, sérverslanir, veitingastaði, líkamsrækt, samgöngutengingar og  grunn- og framhaldsskólar í göngufæri.

Allar nánari upplýsingar gefur :

Jason Kristinn Ólafsson lögg. fasteignasali sími: 775-1515 eða jko@miklaborg.is

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15