Skólasetursvegur 6, 301
Fjarlægð/Seld - Eignin var 98 daga á skrá
Verð |
41,9
|
Stærð |
78
|
Tegund |
Sumarhús |
Verð per fm |
535
|
Skráð |
8.6.2023 |
Fjarlægt |
15.9.2023 |
Byggingarár |
2009 |
mbl.is |
|
Fasteignasalan Garður
Eignin er seld með fyrirvara. Smelltu hér ef þú vilt fá tölvupóst ef hún kemur aftur á sölu og til að sækja kynningarbækling með teikningum, ástandsyfirlýsingu, söluyfirliti ofl. -
Baldur Jezorski - löggiltur fasteignasali -
baldur@fastgardur.is / sími 450-0000
Baldur fasteignasali kynnir í einkasölu einstakt sumarhús á steyptri plötu með ótrúlegu útsýni yfir Hvalfjörðinn. Heitur pottur, rúmgóð stofa, stórt svefnherbergi og pallur sem snýr í suður.
Engin sumarhús eru fyrir neðan þessa eign svo útsýnið er óskert. Aðeins um 40 mínútur frá bænum.Húsið skiptist í anddyri, svefnherbergi, baðherbergi, eldhús, stofu/borðstofu og geymsluloft. Samkvæmt Þjóðskrá Íslands er birt flatarmál eignarinnar 78,3 fermetrar er geymsluloft er ekki inni í skráðum fermetrum eins og er en bætist eflaust við þegar skráning Þjóðskrár verður uppfærð.
- Nýtt þráðlaust stýrikerfi fyrir gólfhita. Nýjir hitanemar í herbergi og í stofu.
- Superhost aðgangur á airbnb getur fylgt.
- Innbú getur fylgt
- Pallur þrifinn og lakkaður 2022
- Ytra birgði / tréverk málað 2021
Nánari lýsing:
Anddyri: Flísar á gólfi. Frá forstofu er innangengt í bæði stofu og svefnherbergi.
Hjónaherbergi: Mjög rúmgott herbergi með góðri lofthæð, úgengi á pall og innangengt á baðherbergi.
Stofa/borðstofa: Í samliggjandi rými. Rúmgóð stofa með góðu plássi fyrir borðstofuborð, setustofu og sjónvarpshorn. Parket á gólfi. Frá stofunni er útgengt á stóran pall sem snýr í suður og að hluta í vestur.
Eldhús: Snyrtileg eldhúsinnrétting með ágætis skápaplássi, bakaraofn og uppþvottavél. Flísar milli efri og neðri skápa.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og hluta veggja. Sturta, innrétting við vask og vegghengt klósett.
Geymsluloft: Getur nýst sem svefnloft
Annað:Um er að ræða frábærlega vel staðsett sumarhús með einstöku útsýni. Eign sem er þess virði að skoða.
Seljandi skoðar skipti á eign á höfuðborgarsvæðinu.
Nánari upplýsingar veitir:
Baldur Jezorski - löggiltur fasteignasali
baldur@fastgardur.is / sími 450-0000
Karólína Íris - löggiltur fasteignasali
karolina@fastgardur.is / sími 772-6939Netverðmat: Smelltu hér til að fá verðmat á eignina þína. Instagram: Baldur fasteignasaliEkki hika við að senda skilaboð ef ég get eitthvað aðstoðað.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
www.fastgardur.is | Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður