Holtsvegur 25, 210

Fjarlægð/Seld - Eignin var 1 dag á skrá

Verð 69,9
Stærð 96
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 729
Skráð 7.12.2022
Fjarlægt 9.12.2022
Byggingarár 2014
mbl.is

Fasteignasalan TORG kynnir í einkasölu: Glæsilega og bjarta 3ja herbergja íbúð á fjórðu hæð með miklu útsýni yfir Urriðavatn og inní Hafnarfjörð. Alls er eignin 95,9 fm, þar af er geymsla í sameign 7,6 fm. Íbúðin skiptist í forstofu, stofu, eldhús, tvö svefnherbergi og baðherbergi. Sérstæði í lokaðri bílageymslu. ***Bókið skoðun hjá Svavari í síma 623-1717 eða svavar@fstorg.is. Sigurður Gunnlaugsson löggiltur fasteigna- og skipasali.***

Íbúðin er skráð 95,9 fm, ásamt geymslu í sameign og skiptist þannig: anddyri, eldhús, stofu, borðstofu, baðherbergi, hjónaherbergi og barnaherbergi. Geymsla og sérstæði í bílageymslu.
Nánari lýsing: 
Forstofa: Komið er inn í rúmgóða forstofu með góðum skápum.
Eldhús: Bjart og fallegt eldhús með smekklegri innréttingu og flísum á milli skápa.
Stofa/borðstofa: Rúmgóð stofa með flísum á gólfi og útgengi á stórar og góðar suður svalir.
Svefnherbergi #1: Hjónaherbergi er rúmgott með góðum skápum og flísum á gólfi.
Svefnherbergi #2: Rúmgott svefnherbergi með flísum á gólfi og góðum skápum.
Baðherbergi: Góð innrétting, upphengt salerni og baðkar. Tengi er inná baðherbergi fyrir þvottavél og þurrkara.Flísalagt í hólf og gólf.
Samantekt: Hér er um að ræða mjög skemmtilega og vandaða 3ja herbergja útsýnisíbúð á frábærum stað í Urriðaholti í Garðabæ.
Rúmgóð geymsla er í sameign ásamt sérstæði í lokaðri bílageymslu.
Allar nánari upplýsingar veitir Svavar Friðriksson aðst. lgfs. í síma 623-1717 - svavar@fstorg.is og Sigurður Gunnlaugsson fasteignasali. Hafðu samband ef þú vilt fá frítt og skuldingarlaust verðmat á þína eign.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma
í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags.
Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir
og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21
Mynd 22
Mynd 23
Mynd 24
Mynd 25