Vallarbraut 12,302, 260

Fjarlægð/Seld - Eignin var 1 dag á skrá

Verð 41,5
Stærð 84
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 492
Skráð 15.2.2021
Fjarlægt 16.2.2021
Byggingarár 2020
mbl.is

Stuðlaberg Fasteignasala kynnir til sölu glæsilegar íbúðir í 15 íbúða fjölbýlishúsi á frábærum stað miðsvæðis í Reykjanesbæ. Húsið er á fjórum  hæðum. Íbúðirnar eru vandaðar og vel hannaðar, um eina tegund af íbúðum er að ræða og eru þær frá 81,1fm til 83,9fm auk hlutdeildar í sameign. 

 *Geymslupláss fylgir hverri íbúð.
 *Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla á 1. hæð. 
 *Merkt bílastæði fyrir hverja íbúð.
*Búið er að leggja raflagnir fyrir hleðslustöðvar bifreiða við eitt bílastæði hverrar íbúðar.
*Íbúðum verður skilað fullfrágengnum, með sameign og lóð samkvæmt skilalýsingu.

Frágangur íbúða inni:
Íbúðum verður skilað með handslökkvitæki og reykskynjurum.
Gólf: Hágæða harðparket er á gólfum, flísar eru á gólfum
baðherbergis/þvottahúss og anddyris. Gólf í geymslum eru
með epoxy sem nær uppá veggi.
Veggir: Steyptir veggir eru spartlaðir og málaðir. Léttir innveggir eru
spartlaðir og málaðir. Fyrirkomulag innveggja verður í
samræmi við samþykkta byggingarnefndarteikningu. Veggir
verða málaðir í ljósum lit. Baðherbergisveggir skilast flísalagðir
að hluta.
Loft: Steypt loft eru slípuð, spörtuð og máluð í ljósum lit.
Innréttingar: Skápar og innréttingar eru útbúnir úr 16 m grá plasthúðuðu
spónaplötuefni að innanverðu. Sýnilegi fletir eru útbúnir úr efni
frá Innval/Egger. Black-Brown Thermo Oak H1199 ST12.
Borðplötur eru úr kvarsi. Plast frá Innval/Egger light concrete
F272 ST9. Höldur á frontum frá Innval/Egger svartar mattar
Inréttingar eru framleiddar hjá Grindinni ehf Grindavík.
Innihurðir: Hurðir verða með lykillæsingu og hurðarhúnar verða úr
burstuðu stáli. Hurðir eru hvítlakkaðar, með felli þröskuldum og
með yfirfelldum hurðarkörmum og gereftum.
Eldhús: Eldhús skilast fullbúin með tækjum frá AEG, þar með talið
keramikhelluborð, bakarofn, uppþvottavél og ísskáp Stálvaskur
er fræstur í borðplötu. Eldhúsinnrétting er sérsmíðuð frá
Grindin ehf og er með mjúklokunarbúnaði, vaski og
blöndunartækjum frá Grohe. Lýsing undir efri skápum þar sem
við á.
Baðherb. Baðherbergisgólf eru flísalögð með ljósum flísum. Veggir að
hluta til eru flísalagðir upp í loft með ljósum flísum. Í
baðherbergjum er sérsmíðuð baðinnrétting með handlaug,
blöndunartækjum og spegli.
Klósett er vegghengt með innbyggðum vatnskassa. Stór sturta
með ílöngu niðurfalli í gólfi, skilveggur úr hertu gleri. Vélrænt
útsog er frá baðherbergi/þvottahúsi, með hljóðlátri viftu.
Þvottaherb. Gólf í þvottaherbergi er flísalagt með ljósgráum flísum.
Innrétting fyrir þvottavél og þurrkara og sér innrétting með
skolvaski.Í íbúð 0202 er gert ráð fyrir þvottavél og þurrkara í
baðherbergi.

Hreinlætistæki: Öll hreinlætis- og blöndunartæki eru af viðurkenndri gerð og
koma þar sem teikningar sýna.
Svefnherbergi: Í svefnherbergjum er harðparket á gólfum og fataskápur.
Fataskápar eru þar sem teikningar sýna.
Raflögn: Raflögn er fullfrágengin. LED Ljós fylgja í eldhúsi, þvottahúsi,
baðherbergi og anddyri í öllum íbúðum, ýmist ljóskúplar og
innfelld lýsing.
Í öðrum rýmum innan íbúðar er skilajós.
LED Útiljós eru á stigapalli og svölum
Uppsettur reykskynjari fylgir hverri íbúð.
Ljósleiðaratenging er í hverri íbúð.
Lagnaleiðir fyrir bílhleðslustöðvar eru frágengnar í jörðu fyrir
hverja íbúð.
Forstofa: Í forstofu eru ljósar flísar á gólfum og fataskápur.
Geymslur: Hverri íbúð fylgir skápur í sameign. Gólf í geymslum verða lögð
epoxy sem nær upp á veggi. Veggir (einangraðir léttir veggir)
verða málaðir. Á 1.hæð sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.
Tæknirými er á 1. hæð með sérinngang.
Pípulögn Upphitun hússins er með gólfhita í ílögn. Hita- og
neysluvatnslagnir eru lagðar skv. verkfræðiteikningum.
Ljósleiðari Ljósleiðari eða nettenging verður tengd úr sameign inn í hverja
íbúð og þaðan í tengil í stofu. Í öðrum herbergjum eru
lagnaleiðir fyrir tölvu/síma og loftnet.
Eldvarnir Hver íbúð er sjálfstætt brunahólf. Reykskynjari og
handslökkvitæki verður sett upp í hverri íbúð.
Sameign Sameign samanstendur einvörðungu af geymslurými og
inntaksrými húsanna.
Sameign verður upphituð með opnum og fullfrágengin.
Til áréttingar Lýsingu þessari er ekki ætlað að vera tæmandi um einstök
atriði.

Nánari upplýsingar veita starfsmenn Stuðlabergs í síma 420-4000 eða á skrifstofu að Hafnargötu 20 í Keflavík. Bókaðu skoðun hjá okkur.

Halldór Magnússon - dori@studlaberg.is
Brynjar Guðlaugsson - brynjar@studlaberg.is
Haraldur Freyr Guðmundsson - halli@studlaberg.is
Guðlaugur H Guðlaugsson - laugi@studlaberg.is

Myndir

Mynd 1
Mynd 2