Verð | 30,9 |
Stærð | 80 |
Tegund | Sumarhús |
Verð per fm | 389 |
Skráð | 31.3.2021 |
Fjarlægt | |
Byggingarár | 2004 |
mbl.is | 985669 |
Fasteignaland kynnir:
Mekihvoll, 851 Rangárþing ytra (Landssveit). Sumarhús á 4.072 fm leigulóð, glæsilegt útsýni. Frábær aðstaða fyrir hestamenn eða fyrir ferðaþjónustu.
*** Skipti möguleg á eign á höfuðborgarsvæðinu eða Akureyri.
Fasteignaland kynnir: Glæsilegt sumarhús (bjálkahús) í landi Merkihvolls í Landssveit. Eignin er á 4.072 fm leigulandi með glæsilegu útsýni. Um er að ræða sumarhús sem er skráð samkvæmt FMR 79,5 fm og var byggt árið 2004. Í þessu húsi er rafmagnshitatúpa fyrir neysluvatn. Rafmagnsofnar eru í húsinu. Húsið er á steyptum sökkli (skriðkjallari/lagnakjallari). Sér borhola fyrir kalt vatn.
Húsið skiptist: Forstofa með furuplönkum á gólfi, fatahengi. Baðherbergi með flísum á gólfi og sturtu. Herbergi með furuplönkum á gólfi. Stofan er með furuplönkum á gólfi, góðri lofthæð, kaminu og útgengi á sólpall. Eldhúsið er með furuplönkum á gólfi, viðarinnréttingu með sambyggðri eldavél. Stigi er upp á milliloft sem er alrými og nýtt sem svefnherbergi ca. 21,7 fm að gólffleti.
Af sólpalli er gengið inn í viðbyggingu sem er um 13 fm og skiptist í svefnherbergi og sauna (gufubað) sem ekki inn í fm stærð hússins..
Möguleiki er að fá hluta af búslóð með í kaupum á eigninni.
Stór sólpallur er við húsið með skjólgirðingu. Lóðin er 4.072 fm og er búið að planta miklu magni af trjám.
Lóðarleiga er um kr. 70.000 á ári.
Þetta er falleg eign á frábærum stað og hentar vel fyrir hestamenn eða ferðaþjónustu. Glæsilegt útsýni og fjallasýn.
Upplýsingar gefa:
Heimir Eðvarðsson, löggiltur fasteignasali s. 893-1485, netfang: heimir@fasteignaland.is
Árni Björn Erlingsson, löggiltur fasteignasali s. 898-0508, netfang: arni@fasteignaland.is