Arnarás 19, 210

Fjarlægð/Seld - Eignin var 35 daga á skrá

Verð 97,0
Stærð 123
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 789
Skráð 25.5.2023
Fjarlægt 30.6.2023
Byggingarár 2000
mbl.is

Garðatorg eignamiðlun kynnir:
Virkilega fallega og vel skipulagða 4ra-5 herbergja (3-4 svefnherbergi) endaíbúð á jarðhæð með sérinngangi og sérafnotarétti við Arnarás 19 í Garðabæ. Íbúðin er skráð 122,9 fm, þar af sérgeymsla í sameign 2,7 fm, einnig er sérgeymsla innan íbúðar. Húsið er að mestu klætt að utan með viðhaldsfrírri steiningu. Garðurinn er fallegur verðlaunagarður sem mikið hefur verið lagt í. Frábær staðsetning í Garðabæ, stutt í helstu þjónustu og leikskólinn Ásar og Sjálandsskóli í göngufæri.

Lýsing:

Forstofa: Flísar á gólfi og fataskáp.
Alrými: Eldhús, stofa og borðstofa er opið rými, flísar á gólfi. Eldhús er með birki
 innréttingu, efri og neðri skápar, inn af eldhúsi er búr. Borðplata er úr steini. Frá borðstofu/stofu er útgengt á sólpall sem snýr í suður og í fallega ræktaðan verðlaunagarð. Þar fyrir framan er fallegt hraunsvæði.
Svefnherbergi: 3 svefnherbergi eru í íbúðinni, öll með parketi og skápum. Möguleiki er að gera fjórða svefnherbergið með litlum tilkostnaði. 
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf, baðkar, innrétting og handklæðaofn. 
Þvottahús: Þvottahús er innan íbúðar,tengi fyrir þvottavél og þurrkara og vaskur.

Eigninni fylgir hlutdeild í sameign hússins, sameiginleg hjóla- og vagnageymslu og sér geymsla á jarðhæð. Búið er að setja upp sameiginlega hleðslustöð við húsið.

Viðhaldssaga eignarinnar samkvæmt seljanda:
2021: Tréverk, gluggar, þakkantar var yfirfarið og lagfært að þörfum. Lamir, læsingar og þéttilistar í opnanlegum fögum endurnýjað um leið.
2021: Húsið var sílanborið og sléttir fletir málaðir sem og tréverk
2020-2021: Loftræsting hreinsuð og blásari yfirfarinn.
 

Allar nánari upplýsingar veitir Ragnar G. Þórðarson, löggiltur fasteignasali í síma 899-5901 eða á ragnar@gardatorg.is

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16