Tjarnabakki 8, 260

Fjarlægð/Seld - Eignin var 1 dag á skrá

Verð 62,9
Stærð 176
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 358
Skráð 6.12.2022
Fjarlægt 8.12.2022
Byggingarár 2006
mbl.is

ALLT FASTEIGNASALA kynnir í einkasölu:
Virkilega vandaða og spennandi eign við Tjarnabakka 8, 260 Reykjanesbæ, fastanr. 228-5103. Eignin er björt og rúmgóð og henni fylgja t veir bílskúrar, uppgefin heildarstærð er 175,9 fermetrar, hvor bílskúr um sig er 24,4. Önnur hæð, sér inngangur og fallegt útsýni.

BÓKIÐ EINKASKOÐUN á elinborg@allt.is eða í síma 8231334

Eldhús, borðstofa og stofa eru í opnu rými þar sem útgengt er út á góðar svalir. Vönduð sérsmíðuð innrétting er í eldhúsi með eikaráferð, eldhúseyja og eikarparket er á gólfum, steinn í borðplötum. Svefnherbergin eru þrjú, öll björt og rúmgóð með góðum skápum og parketi. Sjónvarpsrými er sér og mögulegt að gera þar fjórða svefnherbergið. Þvottahús er inni í íbúðinni, geymsla er inn af íbúð en einnig inn af sameign. Sameiginleg geymsla fylgir eigninni ásamt tveimur góðum bílskúrum. Gott útsýni er frá eigninni og rúmgott bílastæðaplan, þar sem tvö stæði eru merkt íbúð ásamt gestastæðum. Virkilega góð fjölskylduíbúð, leiktæki fylgja í sameiginlegum garði. Gott útsýni yfir garð frá eldhúsi. Flott staðsetning í nálægð við skóla, leikskóla, íþróttamannvirki, góð útivistarsvæði, verslunarkjarna og sjoppu. 


**Falleg, rúmgóð og björt eign á frábærum stað sem sannarlega vert er að skoða **


** Tveir bílskúrar
**Þrjú svefnherbergi
** Útsýni
** Þvottahús og geymsla innan eignar
** Sérinngangur


Nánari upplýsingar veita Elínborg Ósk lfs. í síma 823-1334 eða á elinborg@allt.is og Unnur Svava lfs. á unnur@allt.is

Nánari lýsing :
Eldhús/borðstofa: Falleg eldhúsinnrétting með eikaráferð og eyju, stórir gluggar, útgengt út á svalir.
Stofa: Opin, björt, fallegt parket, útgengt út á svalir.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf, upphengt salerni, baðkar með sturtu, handklæðaofn og góð vaskeining með viðaráferð.
Hjónaherbergi: Rúmgott með góðum fataskápum með eikaráferð.
Barnaherbergi eru tvö-þrjú: Björt og rúmgóð með skápum, möguleiki á 3. barnaherbergi í sjónvarpsholi.
Sjónvarpshol: Parket á gólfi, rúmar vel sófa og sjónvarp.
Þvottahús: Inni í íbúð, góð hvít innrétting undir þvottavél og þurrkara.
Geymsla: Inni í íbúð með góðum hillum einnig er sameiginleg vagna/hjólageymsla og þar innaf er sér geymsla sem fylgir eigninni.
Bílskúr: Mjög snyrtilegur, 23,1 fm, sjálfvirkur hurðaopnari.
Garður: Stór sameiginlegur garður með góðri leikaðstöðu fyrir börn.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamning - 0.8 % af heildar fasteignamati, 0,4% við fyrstu kaup og fyrir lögaðila 1,6% af heildar fasteignamati. 
2. Þinglýsingar gjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fleira 2.500 kr af hverju skjali. 
3. Lántöku kostnaður lánastofnunar – fer eftir lánastofnun hverju sinni.
4. Umsýslu gjald til fasteignasölu samkvæmt kauptilboði.

 
Fasteignakaupalög nr. 40/2002 leggja ríka skoðunarskyldu á kaupendur. Við brýnum því fyrir kaupendum að skoða fasteignir vel fyrir tilboðsgerð og leita sér viðeigandi aðstoðar sérfræðinga þegar ástæða þykir til.

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21
Mynd 22
Mynd 23
Mynd 24
Mynd 25
Mynd 26
Mynd 27
Mynd 28
Mynd 29
Mynd 30