Rökkvatjörn 6E, 113

Fjarlægð/Seld - Eignin var 10 daga á skrá

Verð 59,9
Stærð 60
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 1.003
Skráð 30.1.2023
Fjarlægt 10.2.2023
Byggingarár 2022
mbl.is

Miklaborg kynnir: Vel skipulagðar 2ja til 5 herbergja íbúðir í fjölbýlishúsi á þremur hæðum. Burðarvirki hússins er CLT burðarkerfi sem er krosslímt gegnheilt timbur og er sagður heilsueflandi og umhverfisbætandi byggingarmáti. Húsið er klætt með fallegri rafbrynjaðri báru sem gefur húsinu sérlega fallegt útlit. Náttúrulegar íbúðir. Allar íbúðirnar eru með sérinngangi.

Vel skipulögð 59,7 fm, 3ja herbergja íbúð með sérinngangi og sér afnotaréttur til suðurs.

NÁNARI LÝSING: Komið inn í anddyri með skápum. Hjónaherbergi með fataskápum á hægri hönd. Baðherbergi með sturtu, tengi fyrir þvottavél og góðri innréttingu. Barnaherbergi í enda íbúðar með glugga til suðurs. Eldhúsið er með fallegri innréttingu og glugga, tengi fyrir uppþvottavél. Eldhús er opið inn í bjarta stofu. Úr stofunni er gengið út á 20 fm sérafnotareit til suðurs. Geymsla er innan íbúðar. Íbúðirnar eru afhentar án gólfefna en baðherbergi flísalagt.

Húsið er sérlega vel skipulagt og með lítilli sameign að undanskilinni hjóla- og vagnageymslu sem er frístandandi á lóð. Fjöldi bílastæði eru á lóðinni. Allar innréttingar og tæki eru af vandaðri gerð. Húsið er klætt með rafbrynjaðri báru á móti viðahaldslítilli bambus viðarklæðningu.

Allar innréttingar eru frá VOKE 3 og eru skúffur og skápar með ljúflokun, hitaþolin borðplata.  Skápar eru úr sprautuðu MDF efni í mjúkum gráum tón og borðplata og höldur svartar. Framhlið fyrir ísskáp og uppþvottavél fylgja fyrir innbyggð tæki. Undirlímdur vaskur er í eldhúsi.

Allar nánari upplýsingar gefa:

Kjartan Guðmundsson löggiltur fasteignasali í síma 663-4392 eða kjartan@miklaborg.is

Ólafur Finnbogason löggiltur fasteignasali í síma 822 2307 eða olafur@miklaborg.is

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3