Litla Hof - Hofstígur 3, 851

Fjarlægð/Seld - Eignin var 76 daga á skrá

Verð 9,9
Stærð 30.000
Tegund Lóð/Jarðir
Verð per fm 0
Skráð 18.8.2023
Fjarlægt 3.11.2023
Byggingarár
mbl.is

Miklaborg kynnir: 3,0 hektara eignarland í landi Litla Hofs sem staðsett er við Eystri Rangá í Rangárþingi ytra og deiliskipulagt sem íbúðarbyggð. Vegalengd frá Reykjavík er 96 km og malbik alla leið. Ekið er beina leið á þjóðveg eitt (90 km) og síðan er beygt til vinstri inn á Keldnaveg númer 264, (sem er til móts við Hótel Rangá) þaðan er 6 km spotti að Litla Hofi. Víðsýnt og ægifagurt útsýni m.a. til Heklu og Tindafjallajökuls.

Heildar byggingarmagn innan hverrar lóðar er allt að 600m2 og að hámarki sex hús á lóð.  Á hverri lóð er heimilt að reisa eitt einbýlishús önnur hús mega vera gesta-/véla-/garð-/verkfærahús.  Stöðuleyfi gáma er bannað að fráskyldu eins árs leyfi vegna nýframkvæmda.  Atvinnustarfsemi sem er líkleg til að valda hvers konar ónæði, s.s. mengun eða hávaða á skipulagssvæðinu er ekki heimil. Gæludýrahald og minniháttar dýrahald er heimilt á lóðum. Ekki er gert ráð fyrir búrekstri á deiliskipulagssvæðinu.
 
Stutt er í alla þjónustu á Hellu eða Hvolsvelli. Matvöruverslanir, sundlaugar, læknisþjónusta, vínbúð, byggingavöruverslanir og veitingastaðir. Hella er 14 km frá og Hvolsvöllur er 11 km frá Litla Hofi.
 
Golfvöllur er á Strönd, 8 km frá Litla Hofi.
 
Helstu náttúruperlur sem eru nálægar eru til að mynda Fjallabak, Hekla, Tindfjallajökull, Þórsmörk o.fl. 
 
Lóðirnar eru stórar og þar af leiðandi er byggingarmagn mikið.  Byggingarleyfi fæst í samráði við viðkomandi sveitarfélag.
 
Seljandi skilar vegi, köldu vatni, rafmagni og ljósleiðarararöri að lóðamörkum.
 
Nánari upplýsingar veitir: Jón Rafn löggiltur fasteignasali í síma 695-5520 eða jon@miklaborg.is 
 
 

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5