Furugerði 23 - 101, 108

Fjarlægð/Seld - Eignin var 1 dag á skrá

Verð 93,9
Stærð 129
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 728
Skráð 30.1.2023
Fjarlægt 1.2.2023
Byggingarár
mbl.is

Fasteignasalan LIND kynnir með stolti nýjar, vandaðar og glæsilegar íbúðir við Furugerði í Reykjavík. Spennandi vistvænar nýbyggingar á mjög eftirsóknarverðu svæði sem henta öllum aldurshópum. Íbúðir eru bjartar og nútímalegar með hagnýtu skipulagi.

Furugerði 23 íbúð 101 er 5 herbergja íbúð á jarðhæð með sérinngangi og skiptist í anddyri, baðherbergi með þvottaaðstöðu, eldhús, stofu, borðstofu og fjögur svefnherbergi.  
Verönd til suðurs 8,5 fm. og til norðurs 24,8 fm. Gluggar til suðurs, vesturs og norðurs. ​
Geymsla 9,8 fm. Bílastæði í bílageymslu.
 
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR VEITA:
Heimir F. Hallgrímsson í síma: 849-0672 / HEIMIR@FASTLIND.IS
Hrafnkell P. H. Pálmason í síma: 690-8236 / HRAFNKELL@FASTLIND.IS
Guðmundur Hallgrímsson í síma: 898-5115 / GUDMUNDUR@FASTLIND.IS

Nánari upplýsingar um húsin má finna hér: furugerði.is

** EKKI VERÐUR HALDIN OPIN SÖLUSÝNING OG ÞVÍ ÞARF AÐ BÓKA SKOÐUN **
****BÓKAÐU SKOÐUN HÉR**** 
eða í síma: 690 8236 / hrafnkell@fastlind.is

Nánari lýsing:
Anddyri: er með fataskápum og fallegum 60x60 flísum á gólfi.
Baðherbergi: veggir að hluta flísalagðir með fallegum Terrazzo flísum, upphengt salerni, speglaskáp og innrétting í ljósum furulit, handklæðaofn og walk-in sturta með gleri.
Eldhús: er með fallegri innréttingu með svörtum höldum frá Voke-3 í ljósum Aland Pine Polar lit. Gott vinnurými og skápapláss.
Stofa og borðstofa: stórir gólfsíðir gluggar sem veita mikla birtu inn í rýmið. Opið við eldhús. Útgengt á verönd til suðurs.
Hjónaherbergi: er rúmgott með góðum fataskápum .
Svefnherbergi 2, 3 og 4: með fataskápum og góðum gluggum.
Verönd í suður: afmarkað með timburverönd.
Verönd í norður: afmarkað með hellulögn.
 
Bílageymsla:
Hægt er með einföldum hætti að setja upp rafhleðslustöð við hvert stæði.
Bílageymsla er upphituð með hitastig undir 10 gráðum (frostfrí).

 
**Meðfylgjandi myndir eru af sýningaríbúð og endurspegla ekki að fullu allar íbúðir í húsinu**

Afhending er áætluð í mars 2023 en þó með fyrirvara um að öryggisúttekt sé komin á húsið. 
 
Hafðu samband fyrir nánari skilalýsingu.
Íbúðum er skilað fullbúnum með innréttingum en án gólfefni að undankildu anddyri og votrýmum (baðherbergi og þvottahús) sem eru flísalögð.
Allar innréttingar eru í ljósum furulit frá Voke3. Í eldhúsi eru borðplötur út kvartzsteini í ljósum lit frá Technistone. Í eldhúsi eru vönduð innbyggð eldhústæki og spanhelluborð.  Gólfhiti er á neðri hæð en á efri hæð er hefðbundið ofnakerfi.  Útveggir og hluti innveggja innan íbúða eru úr krosslímdum timbureiningum og verður yfirborð þeirra annarsvegar sýnilegt CLT og hins vegar gifsklætt, startlað og málað.
  
Íbúðir eru loftæstar með sjálfstæðum loftræstisamstæðum frá Nordic S3.  Útsog er tekið í votrýmum og innloftsstútar eru í alrými og svefnherbergjum.  Gluggar eru ál-timbur gluggar frá danska framleiðandanum Ideal-Combi, Gler er tvöfalt k-einangrunargler og sérstaklega hljóðeinangraðir þar sem við á.
 
Efnisval er með umhverfisáhrif í huga og uppbygging á húsunum miðast við að notuð séu efni sem þurfa lítið viðhald.  Krosslímdar timbureiningar í burðarvirki húsanna eru einangraðar að utan og klædd veðurþolinni, viðhalds lítilli klæðningu.
 
Lóðin Furugerði 23-49 skiptist í tvo reiti, Á reit A eru tvö fjölbýlishús á tveimur hæðum með samtals 20 íbúðum og á reit B eru 10 raðhús á tveimur hæðum. Upphitaðir stígar liggja frá Furugerði sem og Espigerði að aðalinngöngum bygginga, einnig eru upphitaðar gönguleiðir að sorpi. Gróðurbelti er eftir endilöngum lóðamörkum í suðri.
Undir húsunum er staðsteyptur kjallari með geymslum og bílastæðum.
Sér bílastæði í bílakjallaranum fylgir öllum raðhúsunum og flestum íbúðum auk sameiginlegri hjóla/vagnageymslu.  Gott aðgengi er fyrir gangandi og hjólandi umferð að lóðinni frá austur- og vesturenda.
 
Seljandi áskilur sér allan rétt til að gera efnis-, tæknilegar- og útlits breytingar meðan á byggingaframkvæmd stendur.

Kaupandi greiðir skipulagsgjald sem nemur 0,3% af brunabótamati þegar það er lagt á.

Heimild seljanda til að breyta eignaskiptasamning sé þess þörf án þess þó að rýra eignarrétt kaupanda. Innréttingateikningar eru þær sem gilda ef misræmi er milli arkitektateikninga og innréttingateikninga og eru þær áritaðar og hluti samningsins.

Lind fasteignasala ehf kynnir eignina Furugerði 23 - 101 , 108 Reykjavík, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 203-4327 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Eignin Furugerði 23 - 101 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 203-4327, birt stærð 129.0 fm.
Nánari upplýsingar veitir Hrafnkell P. H. Pálmason Löggiltur fasteignasali, í síma 690 8236, tölvupóstur hrafnkell@fastlind.is.

-----------------------------------------------------------------------
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila 
    Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15