Besti-Bitinn, 450

Fjarlægð/Seld - Eignin var 1654 daga á skrá

Verð 6,5
Stærð
Tegund Veitingastaður
Verð per fm
Skráð 22.6.2015
Fjarlægt 1.1.2020
Byggingarár
mbl.is

Fasteignasala Vestfjarða s. 4563244 - eignir@fsv.is - www.fsv.is - Til sölu er rekstur Besta-Bitans Patreksfirði Tilboð óskast! Til sölu er rekstur sjoppunnar og veitingastaðarins Besta-Bitans við Aðalstræti 110 Patreksfirði. Um er að ræða sölu á öllum tækjum og innbúi sem tilheyra rekstrinum samkvæmt lista, auk lagers og sendibíls af gerðinni Ford Transit. Húsnæðið er um 150 m² að stærð, þar er lítil verslun með ýmsar matvörur og einnig bíla/bensínstöðvarvörur. Matsalur er með borð og sæti fyrir um 27 manns, boðið er upp á heitan heimilismat í hádeginu og eru þar margir fastir viðskiptavinir. Tvö salerni fyrir viðskiptavini. Fullbúið veitingaeldhús. Lageraðstaða, sér baðherbergi fyrir starfsmenn. Bílaplan er um 2500 m² og er þar þvottaaðstaða fyrir bíla. Samningur vegna bensínsölu gefur fastar tekjur á ári, munu leigusamningar vegna bensínsölu og húsnæðis fylgja samkvæmt samkomulagi við N1. Mikil uppbygging á sér stað á suðurfjörðum Vestfjarða og hefur velta staðarins aukist samhliða því. Sumarið 2013 opnaði Fosshótel við hliðina og hefur það einnig leitt til aukinna viðskipta fyrir Besta-Bitann. Hafið samband fyrir frekari upplýsingar. Fletta í fasteignalista