Urriðaholtsstræti 42, 210

Fjarlægð/Seld - Eignin var 1 dag á skrá

Verð 114,9
Stærð 132
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 874
Skráð 30.5.2023
Fjarlægt 1.6.2023
Byggingarár
mbl.is

Hraunhamar kynnir til sölu fallega og vandaða fimm herbergja íbúð 131,5 fm á efstu hæð með góðum suðursvölum í glæsilegu tíu íbúða lyftuhúsi í Garðabæ. Íbúðin er tilbúin til afhendingar. Glæsileg útsýnisíbúð. 

Íbúðin er 131,5 fermetrar og skiptist í forstofu, baðherbergi með þvottaaðstöðu, fjögur svefnherbergi og aðalrými með eldhúsi, stofu og borðstofu. Rúmgóðar svalir. Stæði í bílakjallara og sér geymsla í sameign.

Mjög góð staðsetning í lokuðum botnlanga og góð fyrir útivistarfólk þ.s örstutt er í útivistarparadísina í Heiðmörk og liggja stígar þangað. Einnig er falleg gönguleið í kringum Urriðakotsvatn og í næsta nágrenni eru 2 golfvellir. Stutt er í verslun og þjónustu í Kaupstað.

ATH. MYNDIR ERU AF SÝNINGARÍBÚÐ OG ERU BARA TIL VIÐMIÐUNAR, SJÁ NÁNAR TEIKNINGAR ÍBÚÐAR. 


Allar innréttingar eru frá VOKE3 og steinplata í eldhúsi. Vegleg eyja í eldhúsinu. 
Vönduð heimilistæki frá AEG.
Aukin lofthæð, gófhiti, innfelld lýsing í loftum.
Flestum íbúðum fylgir stæði í lokaðri bílageymslu. Innangengt í bílakjallarann út í sameign.


Húsið er byggt samkvæmt arkítektarteikningum Davíðs Kristjáns Pitt.

Nánari lýsing íbúðar 403:
Forstofa með fataskápum.
Sérlega rúmgott flísalagt baðherbergi með innréttingu. Rúmgóð sturta með innfelldum tækjum.
Góð þvottaaðstaða á baðherberginu með innréttingu og skolvaski.
Tvö svefnherbergi með fataskápum.
Stórt hjónaherbergi með fataskápum. 
Eitt minna svefnherbergi. 
Stofa/eldhús í opnu rými, falleg innrétting, eyja og vönduð eldunartæki frá AEG, útgengt út á rúmgóðar svalir. 
Borðstofa björt og rúmgóð með góðri rennihurð út á svalir.
Stæði í lokuðum bílakjallara fylgir. 

Lyftuhús með góðu aðgengi.
Viðhaldslétt hús með ál/tré gluggum og klætt að utan með álklæðningu.
Húsið er á fjórum hæðum og eru einungis 10 íbúðir í húsinu.
Rúmgóðar og skjólsælar svalir.
Geymslur, bílageymsla og hjólageymsla á jarðhæð.


Þetta er falleg íbúð vel staðsett, svalir snúa til suðurs. Rennihurð út á svalir.
Sérlega vandaðaðar íbúðir sem vert er að skoða. 

_____________________________________________________________________________________
Bókið skoðun, sýnum samdægurs.
Hlynur Halldórsson löggiltur fasteignasali s. 698-2603, hlynur@hraunhamar.is
Glódís Helgadóttir löggiltur fasteignasali s. 659-0510 glodis@hraunhamar.is

Helgi Jón Harðarson sölustjóri s. 893-2233, helgi@hraunhamar.is
Ársæll Ó. Steinmóðsson löggiltur fasteignasali s:896-6076, arsaell@hraunhamar.is

 

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21
Mynd 22
Mynd 23
Mynd 24
Mynd 25
Mynd 26
Mynd 27
Mynd 28
Mynd 29
Mynd 30
Mynd 31
Mynd 32
Mynd 33
Mynd 34
Mynd 35
Mynd 36
Mynd 37