Norðurhóp 19, 240

Fjarlægð/Seld - Eignin var 21 dag á skrá

Verð 80,9
Stærð 166
Tegund RaðPar
Verð per fm 486
Skráð 24.11.2022
Fjarlægt 16.12.2022
Byggingarár 2013
mbl.is

Lind fasteignasala og Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali, kynna: 

Norðurhóp 19, 240 Grindavík.

Vönduð eign! Endaraðhús í Grindavík!

Smelltu hér til að sækja söluyfirlit strax 

Um er að ræða sérstaklega fallegt raðhús, byggt 2013, á einni hæð með góðum bílskúr. Húsið samanstendur af forstofu, opnu rými með eldhúsi/borðstofu/stofu, þremur svefnherbergjum, baðherbergi, þvottahúsi og góðum bílskúr. Birt stærð séreignar skv. Þjóðskrá Íslands er 166,5 fm alls.

Allar innréttingar í húsinu er vandaðar og sérsmíðaðar, fallegt parket á flestum gólfum, baðherbergi og forstofa með flísum, þvottahús og bílskúr með epoxy á gólfum. Flest allir gluggar eru gólfsíðir og verandir að framan og bakvið húsið eru steyptar.


Nánari lýsing:
Komið er að húsinu sem er endaraðhús með steyptu bílaplani fyrir framan inngang og bílskúr.

Forstofan er rúmgóð með stórum fataskáp og dökkum flísum á gólfi. Komið er inn í opna rýmið sem hýsir eldhúsið, borðstofuna og stofuna. Þar er mjög bjart með góðum gólfsíðum gluggum og útgengt er úr eldhúsinu út á suður verönd. Eldhúsið er með miklu skápa- og skúffuplássi, með háglans hliðum/framhliðu og stein á bekkjum. Á vegg er stór innrétting með ofni/örbylgjuofni í vinnuhæð, innbyggðum ískáp með fyrsti og fallegu opnu rými með hillum. Stór eyja með skúffum á báða vegu, steinn á bekk, eldavél, vaskur og innbyggð uppþvottavél.

Hjónaherbergið er rúmgott með gólfsíðum gluggum. Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf í kringum sturtusvæði þar sem er stór opin flísalögð sturta með glervegg. Stór langur skenkur með marmaraplötu á, ásamt vaski, upphengdu klósetti og útgengt af beðherbergi út á bakveröndina. Bæði hin svefnerbergin eru rúmgóð og með gólfsíðum gluggum.

Stofusvæðið er afmarkað með fallegum vegg og á ganghlið hans er gott skrifstofurými. Þvottahúsið er með miklu skápaplássi, þvottavél og þurrkari eru skipulögð í vinnuhæð. Gengið er úr íbúð, gegnum þvottahús og út í bílskúrinn sem er mjög rúmgóður, 32,6 fm að stærð, með epoxý á gólfi og rafdrifinni hurð. 

Grindavík er kröftugur sjávarbær við suðurströndina. Þar er mannlíf gott, bæjarfélagið vel rekið og hlúð vel að öllum þáttum mannlífs. Skólar, leikskólar, íþróttir með góðum mannvirkjum, tómstundir, listir og flest það sem skapar gott bæjarfélag er í boði í Grindavík. Sjá nánar á grindavik.is 

Nánari upplýsingar veitir:
Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali, s.899 0720, netfang: hrannar@fastlind.is

 

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21
Mynd 22
Mynd 23
Mynd 24
Mynd 25
Mynd 26
Mynd 27
Mynd 28
Mynd 29
Mynd 30
Mynd 31
Mynd 32
Mynd 33
Mynd 34
Mynd 35