Langamýri 31, 800

Verð 81,9
Stærð 163
Tegund RaðPar
Verð per fm 504
Skráð 19.9.2023
Fjarlægt
Byggingarár 2003
mbl.is 1163361

Hafsteinn Þorvaldsson fasteignasali og HÚS fasteignasala kynna í sölu. Virkilega snyrtilegt og vel við haldið, 162,6 fm, fjögurra herbergja parhús við Löngumýri 31 á Selfossi.  Húsið er byggt úr timbri árið 2003, klætt með stení og á þaki er járn. Stór sólpallur með skjólgirðingu og heitum potti.  Bílaplan er steypt og í því er gert ráð fyrir snjóbræðslu á lokuðu kerfi.  Húsið stendur á eignarlóð innst í botnlanga.

Nánari lýsing. Flísalögð forstofa. Þrjú rúmgóð svefnherbergi, fataskápur í öðru barnaherbergjanna en nýr stór fataskápur í hjónaherbergi. Stofa og borðstofa í opnu og björtu rými þar sem er útgengt út á stóran sólpall með heitum potti og skjólgirðingu. Endurnýjað eldhús, hvít eldhúsinnrétting með góðu skápaplássi, vönduðum heimilistækjum, innbyggðum ísskáp og uppþvottavél. Snyrtilegt baðherbergi, innrétting, skápur, flísalögð "walk in" sturta og upphengt wc. Einnig er salernisaðstaða í bílskúr og auðvelt er að breyta honum í íbúð, lagnir og annað til staðar. Innangengt er í bílskúr úr þvottahúsi en þar er innrétting sem gerir ráð fyrir þvottavél í vinnsluhæð.  Bílskúr er flísalagður og hurðaopnari á innkeyrsluhurð.  Gönguhurð er úr bílskúr út í bakgarð og þar er lítill geymslukofi.  
Loft eru niðurtekin og svæðaskiptur gólfhiti er í húsinu.  Öryggiskerfi tengt við myndavélar er í húsinu.
Virkilega falleg eign.

Hringið og bókið skoðun.

Nánari upplýsingar veitir Hafsteinn Þorvaldsson viðskiptafræðingur/löggiltur fasteigna,- og skipasali s. 891-8891, hafsteinn@husfasteign.is

"Okkar fagmennska eru þínir hagsmunir"      
 
                                                                                                                
 Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati.   (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar, almennt 0.5 - 1.5 % af höfuðstól skuldabréfs, Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. Kauptilboð

Skoðunarskylda:  Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Fasteignasalan HÚS því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21
Mynd 22
Mynd 23
Mynd 24
Mynd 25
Mynd 26
Mynd 27