Furugerði 49, 108

Fjarlægð/Seld - Eignin var 10 daga á skrá

Verð 111,5
Stærð 136
Tegund RaðPar
Verð per fm 820
Skráð 30.1.2023
Fjarlægt 10.2.2023
Byggingarár
mbl.is

Fasteignasalan LIND  kynnir með stolti ný, vönduð og glæsileg raðhús við Furugerði í Reykjavík. Spennandi vistvænar nýbyggingar á mjög eftirsóknarverðu svæði sem henta öllum aldurshópum. Íbúðir eru bjartar og nútímalegar með hagnýtu skipulagi. 
Furugerði 49 er fimm herbergja endaraðhús á tveimur hæðum og skiptist í anddyri, tvö baðherbergi, eldhús, stofu, borðstofu, þvottahús, hol og fjögur svefnherbergi. Verönd til suðurs 10,3 fm. og til norðurs 12,7 fm. Svalir til suðurs 3,9 fm. Gluggar til suðurs, austurs og norðurs. Geymsla 10,5 fm. Bílastæði í bílageymslu. 

****BÓKAÐU SKOÐUN HÉR****
eða í síma: 690 8236 / hrafnkell@fastlind.is

 
Upplýsingar veita:
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR VEITA:
Hrafnkell P. H. Pálmason í síma: 690-8236 / HRAFNKELL@FASTLIND.IS
Heimir F. Hallgrímsson í síma: 849-0672 / HEIMIR@FASTLIND.IS
Guðmundur Hallgrímsson í síma: 898-5115 / GUDMUNDUR@FASTLIND.IS

** EKKI VERÐUR HALDIN OPIN SÖLUSÝNING OG ÞVÍ ÞARF AÐ BÓKA SKOÐUN Á: HRAFNKELL@FASTLIND.IS **


Skipulag:
Gengið er inn um aðalinngang í anddyri þar sem er gestasalerni og þvottahús, frá anddyri er komið inn í alrými þar sem stigi bindur saman hæðir.  Eldhús, stofa og borðstofa eru í sameiginlegu opnu rými.  Stórir gluggar veita birtu inn í stofu og borðstofu.  Á annarri hæð eru fjögur svefnherbergi ásamt baðherbergi.
 
Nánari lýsing:
1. hæð
Anddyri: er með fataskápum og fallegum 60x60 flísum frá Marazzi í ljósgráum lit á gólfi.
Þvottahús: innrétting með hvítri borðplötu og vaski. Flísalagt gólf með 60x60 ljósgráum flísum.
Baðherbergi: veggir að hluta flísalagðir með fallegum Terrazzo flísum, upphengt salerni, speglaskáp og innrétting í ljósum furulit, handklæðaofn og walk-in sturta með gleri.
Eldhús: er með fallegri innréttingu með svörtum höldum frá Voke-3 í ljósum Aland Pine Polar lit. Borðplötur eru úr kvartzsteini frá Technistone í ljósum Noble Ivory White lit. Eyja með Spanhelluborði sem hægt er að sitja við. Gott vinnurými og skápapláss.
Stofa og borðstofa: stórir gólfsíðir gluggar sem veita mikla birtu inn í rýmið. Opið við eldhús. Útgengt á verönd til suðurs.
Verönd í suður: afmarkað með timburverönd.
Verönd í norður: afmarkað með timburverönd.

2. hæð
Hjónaherbergi: er með góðum fataskápum og glugga til suðurs og útgengt á svalirnar.
Svefnherbergi 2: með fataskáp og glugga til suðurs.
Svefnherbergi 3: með fataskáp og glugga til norðurs.
Svefnherbergi 4: með fataskáp og glugga til norðurs.
Baðherbergi: veggir að hluta flísalagðir með fallegum Terrazzo flísum, upphengt salerni, speglaskáp og innrétting í ljósum furulit, handklæðaofn og baðkari.
Svalir: svalagólf klætt með timbri, snúa til suðurs.
 
Bílageymsla:
Hægt er með einföldum hætti að setja upp rafhleðslustöð við hvert stæði.
Bílageymsla er upphituð með hitastig undir 10 gráðum (frostfrí).
 
Nánari upplýsingar um húsin má finna hér: furugerði.is
 
Hafðu samband fyrir nánari skilalýsingu.
Íbúðum er skilað fullbúnum með innréttingum en án gólfefni að undankildu anddyri og votrýmum (baðherbergi og þvottahús) sem eru flísalögð.
Allar innréttingar eru í ljósum furulit frá Voke3. Í eldhúsi eru borðplötur út kvartzsteini í ljósum lit frá Technistone. Í eldhúsi eru vönduð innbyggð eldhústæki og spanhelluborð.  Gólfhiti er á neðri hæð en á efri hæð er hefðbundið ofnakerfi.  Útveggir og hluti innveggja innan íbúða eru úr krosslímdum timbureiningum og verður yfirborð þeirra annarsvegar sýnilegt CLT og hins vegar gifsklætt, startlað og málað.

Sér bílastæði og sér geymsla fylgir hverri íbúð, geymslur eru staðsettar í bílakjallara.
 
Íbúðir eru loftæstar með sjálfstæðum loftræstisamstæðum frá Nordic S3 fyrir hvert hús.  Útsog er tekið í votrýmum og innloftsstútar eru í alrými og svefnherbergjum.  Gluggar eru ál-timbur gluggar frá danska framleiðandanum Ideal-Combi, Gler er tvöfalt k-einangrunargler og sérstaklega hljóðeinangraðir þar sem við á.
 
Efnisval er með umhverfisáhrif í huga og uppbygging á húsunum miðast við að notuð séu efni sem þurfa lítið viðhald.  Krosslímdar timbureiningar í burðarvirki húsanna eru einangraðar að utan og klædd veðurþolinni, viðhalds lítilli klæðningu.
 
Lóðin Furugerði 23-49 skiptist í tvo reiti, Á reit A eru tvö fjölbýlishús á tveimur hæðum með samtals 20 íbúðum og á reit B eru 10 raðhús á tveimur hæðum.
Undir húsunum er staðsteyptur kjallari með geymslum og bílastæðum.
Sér bílastæði í bílakjallaranum fylgir öllum raðhúsunum auk sameiginlegri hjóla/vagnageymslu.  Gott aðgengi er fyrir gangandi og hjólandi umferð að lóðinni frá austur- og vesturenda.

Seljandi áskilur sér allan rétt til að gera efnis-, tæknilegar- og útlits breytingar meðan á byggingaframkvæmd stendur.

Kaupandi greiðir skipulagsgjald sem nemur 0,3% af brunabótamati þegar það er lagt á.

Heimild seljanda til að breyta eignaskiptasamning sé þess þörf án þess þó að rýra eignarrétt kaupanda. Innréttingateikningar eru þær sem gilda ef misræmi er milli arkitektateikninga og innréttingateikninga og eru þær áritaðar og hluti samningsins.

Furugerði 49, 108 Reykjavík, nánar tiltekið eign merkt 01-18, fastanúmer 252-0437 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Eignin Furugerði 49 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 252-0437, birt stærð 131.4 fm.

-----------------------------------------------------------------------
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila 
    Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21
Mynd 22
Mynd 23
Mynd 24
Mynd 25
Mynd 26
Mynd 27
Mynd 28
Mynd 29
Mynd 30
Mynd 31
Mynd 32
Mynd 33
Mynd 34
Mynd 35
Mynd 36
Mynd 37