Vallarbraut 12, 260

Fjarlægð/Seld - Eignin var 1 dag á skrá

Verð Tilboð
Stærð 88
Tegund Fjölbýli
Verð per fm
Skráð 2.6.2021
Fjarlægt 3.6.2021
Byggingarár 2021
mbl.is

Eignamiðlun Suðurnesja kynnir TIL LEIGU Vallarbraut 12, 260 Reykjanesbæ
Falleg og vönduð 3ja herbergja endaíbúðir á þriðju hæð, með sérinngangi, í nýju og glæsilegu 4ra hæða fjölbýlishúsi með lyftu á frábærum stað í Reykjanesbæ.

Íbúðin er laus frá 1 júní 2021 og leigist með hita. Rafmagn greiðir leigjandi samkæmt notkun.

Allar innréttingar eru sérsmíðaðar frá Grindinni.
Sérgeymsla á 1 hæð
Sameiginleg vagna- og hjólageymsla er á 1. hæð.
Merkt bílastæði fyrir hverja íbúð.
Búið er að leggja raflagnir fyrir hleðslustöðvar bifreiða við eitt bílastæði hverrar íbúðar.
Svalalokun er yfir - 13,3 fm yfirbyggðar svalir.

Allar nánari upplýsingar á skrifstofu okkar að Hafnargötu 50, í síma 420-4050 og á netfanginu es@es.is


Íbúð 304 endaíbúð
Íbúðin er skráð samtals 83,9 fm og skiptist í rúmgott anddyri, eldhús, stofu, borðstofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og góðar yfirbyggðar suður svalir sem eru 13,3 fm og eru ekki inni í skráðum fermetrum. Hiti í gólfum og aukin lofthæð. Frábær staðsetning þar sem afar stutt er í alla helstu þjónustu svo sem verslanir, skóla og leikskóla.

Nánari lýsing:
Komið er inn í rúmgóða flísalagða forstofu með góðum skáp.
Björt og rúmgóð stofa/borðstofa með gólfsíðum gluggum og vandaðri rennihurð út á svalir. Svölum verður lokað með opnanlegu gleri.
Glæsilegt eldhús með innbyggðum ísskáp og uppþvottavél, keramikhelluborði og vönduðum ofni í vinnuhæð.
Hjónaherbergi er rúmgott með góðum skápum og parketi á gólfi.
Rúmgott herbergi með góðum skápum og parketi á gólfi.
Baðherbergi er með sturtu, góðri innréttingu og salerni. Gólf og veggir flísalagðir.
Inn af baðherbergi er vel búið þvottahús með góðri innréttingu fyrir vélar í vinnuhæð.
Rúmgóð sérgeymsla er í sameign á 1. hæð.

Frágangur íbúða inni:
Íbúðin er með handslökkvitæki og reykskynjurum.
Gólf: Hágæða harðparket er á gólfum, flísar eru á gólfum baðherbergis/þvottahúss og anddyris. Gólf í geymslum eru með epoxy sem nær uppá veggi.
Veggir: Steyptir veggir eru spartlaðir og málaðir. Léttir innveggir eru spartlaðir og málaðir í ljósum lit. Baðherbergisveggir er flísalagðir að hluta.
Loft: Steypt loft eru slípuð, spörtuð og máluð í ljósum lit.
Innréttingar: Skápar og innréttingar eru útbúnir úr 16 m grá plasthúðuðu spónaplötuefni að innanverðu. Sýnilegi fletir eru útbúnir úr efni frá Innval/Egger. Black-Brown Thermo Oak H1199 ST12. Borðplötur eru úr kvarsi. Plast frá Innval/Egger light concrete F272 ST9. Höldur á frontum frá Innval/Egger svartar mattar Inréttingar eru framleiddar hjá Grindinni ehf Grindavík.
Innihurðir: Hurðir eru með lykillæsingu og hurðarhúnar eru úr burstuðu stáli. Hurðir eru hvítlakkaðar, með yfirfelldum hurðarkörmum og gereftum.
Eldhús: Eldhús er með tækjum frá AEG, þar með talið keramikhelluborð, bakaraofn, uppþvottavél og ísskáp. Stálvaskur er fræstur í borðplötu. Eldhúsinnrétting er sérsmíðuð frá Grindin ehf og er með mjúklokunarbúnaði, vaski og blöndunartækjum frá Grohe. Lýsing undir efri skápum.
Baðherbergi: Baðherbergisgólf eru flísalögð með ljósum flísum. Veggir að hluta til eru flísalagðir upp í loft með ljósum flísum. Í baðherbergjum er sérsmíðuð baðinnrétting með handlaug, blöndunartækjum og spegli. Klósett er vegghengt með innbyggðum vatnskassa. Stór sturta með ílöngu niðurfalli í gólfi, skilveggur úr hertu gleri. Vélrænt útsog er frá baðherbergi og þvottahúsi, með hljóðlátri viftu.
Þvottaherbergi: Gólf í þvottaherbergi er flísalagt með ljósgráum flísum. Innrétting fyrir þvottavél og þurrkara og sér innrétting með skolvaski.Í íbúð 0202 er gert ráð fyrir þvottavél og þurrkara í baðherbergi.
Hreinlætistæki: Öll hreinlætis- og blöndunartæki eru af viðurkenndri gerð.
Svefnherbergi: Í svefnherbergjum er harðparket á gólfum og fataskápur.
Raflögn: LED Ljós fylgja í eldhúsi, þvottahúsi, baðherbergi, herbergjum, stofu og anddyri , ýmist ljóskúplar og innfelld lýsing.
LED Útiljós eru á stigapalli og svölum, Uppsettur reykskynjari, ljósleiðaratenging og. lagnaleiðir fyrir bílhleðslustöðvar eru frágengnar í jörðu fyrirhverja íbúð.
Forstofa: Í forstofu eru ljósar flísar á gólfum og fataskápur.
Geymslur: Sérgeymsla í sameign. Gólf í geymslum eru lögð epoxy sem nær upp á veggi. Veggir (einangraðir léttir veggir) eru málaðir. Á 1.hæð sameiginleg hjóla- og vagnageymsla. Tæknirými er á 1. hæð með sérinngang.
Pípulögn Upphitun hússins er með gólfhita í ílögn. Ljósleiðari eða nettenging er tengd úr sameign inn í íbúð og þaðan í tengil í stofu. Í öðrum herbergjum eru lagnaleiðir fyrir tölvu/síma og loftnet. Eldvarnir: Hver íbúð er sjálfstætt brunahólf. Reykskynjari og handslökkvitæki er í íbúð. Sameign samanstendur einvörðungu af geymslurými og inntaksrými húsanna. Sameign er upphituð með ofnum og fullfrágengin.


Allar nánari upplýsingar á skrifstofu okkar að Hafnargötu 50, í síma 420-4050 og á netfanginu es@es.is


 

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21
Mynd 22
Mynd 23
Mynd 24
Mynd 25