Kríuás 19, 221

Fjarlægð/Seld - Eignin var 7 daga á skrá

Verð 68,9
Stærð 104
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 664
Skráð 8.6.2023
Fjarlægt 16.6.2023
Byggingarár 2002
mbl.is

Domusnova fasteignasala kynnir vel skipulagða fjögurra herbergja íbúð við Kríuás 19 

Eignin er skv. fasteignaskrá þjóðskrár Íslands skráð 103,8 m2 þar af er geymslan skráð 6,1 m2. Um er að ræða fjögurra herbergja íbúð á 2. hæð með sér inngangi í opnum utanáliggjandi stigagangi. Íbúðin er mjög vel skipulögð að því leiti að bæði geymsla og þvottahús er staðsett innan eignarinnar. Komið er inn í forstofu, þaðan inn á herbergisgang en tvö herbergi eru staðsett á móti hvort öðru á ganginum, þá geymsla, baðherbergi og þvottahús. Hjónaherbergi er rúmgott með fataskápum. Eldhús, stofa og borðstofa eru í opnu og björtu samliggjandi rými sem nýtist mjög vel. Útgengt út á svalir frá stofu, með fallegu útsýni sem snúa í suð-vestur. 

Nánari lýsing: 
Forstofa: flísar á gólfi, fataskápur.
Herbergi I: parket á gólfi, fataskápur.
Herbergi II: parket á gólfi, fataskápur.
Geymsla: málað gólfi, geymslan er staðsett innan íbúðar og er skráð 6,1 m2
Þvottahús: flísar á gólfi, skolvaskur og pláss fyrir þvottavél og þurrkara.
Baðherbergi: flísar á gólfi, baðkar, handlaug með innréttingu.
Herbergi III: parket á gólfi, fataskápar.
Eldhús: parket á gólfi, eldhúsinnrétting með góðu skápaplássi.
Stofa- og borðstofa: parket á gólfi, frá stofu er útgengt út á svalir sem snúa í suð-vestur með fallegu útsýni.  
Sameiginlegt vagna-og hjólageymsla er staðsett á 1. hæð hússins í sameign. 

Bílastæði á bílaplani staðsett fyrir framan húsið og gengið inn í undirgöng að opnu stigahúsi bak við húsið. Eignin er staðsett í göngufæri við Áslandsskóla og leikskólann Tjarnarás, eins eru göngu-og hjólastígar sem liggja að fallegum útivistarsvæðum nærri Ástjörn. 

Nánari upplýsingar veitir:
Guðný Ösp Ragnarsdóttir fasteignasali / lögfræðingur í síma 665-8909 eða á netfangið go@domusnova.is


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21
Mynd 22