Gerplustræti 21, 270

Fjarlægð/Seld - Eignin var 24 daga á skrá

Verð 69,9
Stærð 147
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 476
Skráð 16.9.2020
Fjarlægt 10.10.2020
Byggingarár 2020
mbl.is

Borg Fasteignasala kynnir glæsilegar, íbúðir í nýju fjölbýlishúsi við Gerplustæti 21-23 ásamt stæði í bílageymslu.
***** Síðustu eignirnar í sölu í þessum áfanga************
Íbúðin skilast fullbúin með vönduðum innréttingum og eldhústækjum en án gólfefna.

Gerplustræti stendur í fallegu umhverfi í Helgafellslandinu  á frábærum útsýnisstað en allar íbúðirnar afa rúmgóðar svalir sem snúa í suður með frábæru útsýni. Við hönnun hússins og innra skipulags íbúðanna var horft til þess að nýta rými sem best en tryggja á sama tíma gott birtuflæði með tilliti til staðsetningar og útsýnis.
Um er að ræða 5 herbergja 146,8 fm íbúð á 4. og efstu hæð merkt 02-0401  með stæði í bílageymslu merkt 03-B07. Sér geymslu (13,1 fm) í sameign ásamt rúmgóðri vagna- og hjólageymslu.  
Nánari lýsing:
Forstofa/hol með fataskáp
Baðherbergi eru tvö - fullbúin,  annað er næst forstofu, flísalagt í hólf og gólf með sérsmíðaðri innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara, rúmgóður sturtuklefa, upphengt klósett og innrétting við vask, hitt baðherbergið er innangengt frá stofu/borðstofu, einnig flísalagt í hólf og gólf með sturtuklefa, innréttingu og upphengdu salerni. 
Stofan/borðstofan er mjög stór, björt og opin með stórum gluggum og útgengi út á stórar suður svalir með frábæru útsýni til suðurs og austurs.
Eldhúsið er í opnu rými með vel skipulagðri innréttingu og glugga til suðurs, innbyggðum ísskáp og uppþvottarvél, helluborð og háfur.
Hjónaherbergið er parketlagt með rúmgóðum skáp og glugga.
Svefnherbergi I-3 eru parketlögð með skápum.
Húsin við Gerplustræti 21-23 eru 4ra hæða staðsteypt lyftuhús með 11 íbúðum hvort, 2-5 herbergja. Stærð íbúða er frá 81-158 fm. Innréttingar eru frá Ormson, tæki frá AEG, flísar frá Flísabúðinni. Hefðbundið ofnahitakerfi, flísar á baðherbergjum/þvottahúsi. Innveggir eru hlaðnir steypu-steini (Lemga). Húsin eru að mestu klædd viðhaldléttri klæðningu, gluggar eru ál/timbur.  Sameign er fullfrágengin að utan sem innan og lóð full frágengin.

Nánari upplýsingar/skilalýsingu er að fá hjá sölumanni, sendið fyrirspurn á Þóru Birgisdóttur í thora@fastborg.is eða í síma 777-2882

Glæsileg íbúð í nýju fjölbýlishúsi  efst í Helgafellslandinu með lyftu og bílakjallara, stutt er í matvöruverslun, skóla, leikskóla og sund.

Myndir kunna að vera úr annari eign en þeirri sem hér er kynnt (úr Gerplustræti 17-19) en gefur til kynna lit /karakter innréttinga.
Kaupendur greiða skipulagsgjald 0,3% af brunarbótamati þegar það liggur fyrir. 

Bygginganefnarteikningar gilda komi upp misræmi í teikningum eða málum. 

 

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11