Tryggvagata 13, 101

Fjarlægð/Seld - Eignin var 3 daga á skrá

Verð 97,9
Stærð 100
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 983
Skráð 28.1.2023
Fjarlægt 1.2.2023
Byggingarár 2017
mbl.is

**EIGANDI SKOÐAR ÖLL SKIPTI**

STAKFELL 535-1000 KYNNIR Í EINKASÖLU: Einstaklega falleg og björt íbúð á 2. hæð í hjarta miðborgarinnar. Fallegt útsýni er yfir Reykjavíkurhöfn og göngufjarlægt í í alla þá þjónustu og afþreyingu sem miðborgin hefur upp á að bjóða. Eignin skiptist í anddyrisgang, Stofu, borðstofu og eldhús í alrými, opið svefnherbergi með walk-in skáp og baðherbergi, gestasalerni, þvottahús, suðursvölum sem gengið er út á frá svefnherbergi og geymslu í kjallara. 
Eikarparket er á öllum gólfum að undanskildum votrýmum þar sem eru flísar. Eldhústæki frá AEG. Hiti er í öllum gólfum. Innréttingar frá HTH. Snertilaust lyklaaðgengi í allar íbúð, sameignarrými og útihurðir.

Allar nánari upplýsingar veitir Matthildur Sunna Þorláksdóttir, lögfræðingur og löggiltur fasteignasali, í síma 690-4966 eða matthildur@stakfell.is.


Eignin er í vönduðu lyftuhúsi sem var byggt 2017, og er eignin öll hönnuð með hliðsjón af miklum gæðum, þægindum og glæsileika. Mikið er lagt upp úr hljóðeinangrun í húsinu, jafnt gagnvart hljóðum utanhúss sem og milli hæða og íbúða. Aukin lofthæð. Hjólastólaaðgengi er í allar íbúðir og sameignarrými hússins.

Inngangar í húsið eru frá Tryggvagötu og Geirsgötu og lyklalaust aðgengi er í sameign og í íbúðir. Glæsileg sameign, með marmara á gólfum á jarðhæð og sjónsteypu ásamt listaverkum eftir Leif Breiðfjörð. Tveir stigagangar eru í húsinu með lyftum og stigahúsum með hljóðdempandi teppi, sjónsteypu og glerhandriðum. Dagnotkunar hjóla og vagnageymsla er á jarðhæð og langtíma hjóla og vagnageymsla í kjallara.

Nánari upplýsingar veitir Matthildur Sunna Dan Þorláksdóttir lögfræðingur og löggiltur fasteignasali í síma 690 4966 eða matthildur@stakfell.is


Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Stakfell fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga.  Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.
eignarhús. 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.500,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á. 
 

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21
Mynd 22
Mynd 23
Mynd 24
Mynd 25
Mynd 26
Mynd 27
Mynd 28
Mynd 29