Laxatunga 107, 270

Fjarlægð/Seld - Eignin var 5 daga á skrá

Verð 127,4
Stærð 178
Tegund RaðPar
Verð per fm 714
Skráð 18.3.2023
Fjarlægt 24.3.2023
Byggingarár 2017
mbl.is

Lögheimili Eignamiðlun og Unnur Alexandra  löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu: Glæsilegt og rúmgott raðhús 178,4 fm á einni hæð með bílskúr við Laxatungu í Mosfellsbæ.  Mikil lofthæð er í húsinu. Rúmgóð og björt stofa/borðstofa með útgengi út á verönd. Fallegt eldhús með góðu skápaplássi. Hjónasvíta með fataherbergi og baðherbergi. Tvö rúmgóð barnaherbergi.  Stutt í frábærar gönguleiðir. 
Um er að ræða eign sem er samtals178,4fm þar af bílskúr 32,4 fm. 
Auðvelt er að setja upp fjórða herbergið samkvæmt teikningu hússins en það eru þrjú herbergi í dag og því stofurýmið stærra. 


Forstofa: Flísar á gólfi, fataskápur. Innangengt er í bílskúr úr forstofu. 
Eldhús:  Opið við stofu. hvít háglans innrétting. Gert er ráð fyrir tvöföldum ísskáp, innbyggð uppþvottavél. 
Stofa/ borðstofa: Björt og rúmgóð, harðparket á gólfi, útgengt út í garð.
Hjónasvíta:  Rúmgott hjónaherbergi ásamt fataherbergi. Úr fataherbergi er innangengt inn á baðherbergi. Harðparket er á gólfi í hjónaherbegi og fataherbergi. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, dökk innrétting, handklæðaofn og upphengt salerni. Útgengt er á verönd frá hjónasvítu.
Herbergi 1: Rúmgott, fataskápur. Harðparket á gólfi.
Herbergi 2: Rúmgott, fataskápur. Harðparket á gólfi.
Baðherbergi: Rúmgott, flísalagt í hólf og gólf. Dökk innrétting.  Rúmgóð sturta og baðkar.  Þvottaaðstaða er inni á baðherbergi og vélar í vinnuhæð.
Geymsloft er á tveimur stöðum í húsinu yfir aðalbaðherbergi, fataherbergi og baðherbergi yfir hjónasvítu.

Bílskúr:  32,4m bílskúr. Mikil lofthæð og auðvelt að koma fyrir geymslulofti í skúrnum. Bílskúrshurðaropnari fylgir.
Bílaplan er steypt og með hitalögnum. 
Bakgarður er mikil viðarverönd í suður sem er afgirt. Sól á daginn og mjög skjólsælt. (Mjög öruggt og lokað svæði sem hentar börnum sem og dýrum)
Eigendur hafa sett hita í bílaplan og steypt, lokað verönd með girðingu, sett baðkar á aðal baðherbergi og innréttingu fyrir þvottavélar sem eru í vinnuhæð og sett hljóðvistarplötur í stofu.
Upplýsingar hjá Unnur Alexandra unnur@logheimili.is eða 788-8438. 

Frekari upplýsingar: Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign: Stimpilgjald af kaupsamningi: 0.8% af fasteignamati eignar fyrir einstaklinga en 1.6% fyrir lögaðila, en 0.4% ef um fyrstu íbúðarkaup er að ræða. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.700 af hverju skjali. Umsýslugjald fasteignasölu, samkvæmt gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Lögheimili Eignamiðlun bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Ábyrg þjónusta í áratug. Lögheimili Eignamiðlun var stofnuð 2007. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 
 
 
 

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21
Mynd 22
Mynd 23
Mynd 24
Mynd 25
Mynd 26
Mynd 27
Mynd 28
Mynd 29
Mynd 30
Mynd 31
Mynd 32
Mynd 33
Mynd 34
Mynd 35
Mynd 36