Túngata 3, 245

Fjarlægð/Seld - Eignin var 29 daga á skrá

Verð 48,7
Stærð 129
Tegund Hæðir
Verð per fm 378
Skráð 30.1.2023
Fjarlægt 1.3.2023
Byggingarár 1950
mbl.is

Eignamiðlun Suðurnesja kynnir Túngötu 3, 245 Suðurnesjabæ.
Um er að ræða vel skipulagða 129 m2 íbúð á annarri hæð í tvíbýlishúsi með sérinngangi þar af er um 34,7 m2 bílgeymsla, á góðum stað í Sandgerði, stutt er í alla þjónustu, skóla, leikskóla og verslun.
Þrjú stór svefnherbergi, baðherbergi, gott hol og stór stofa ásamt borðstofu og eldhús. Góð aðkoma og afgirt lóð að aftan og framan, góðar suðursvalir, gólfefni eru flísar og parket.

Nánari lýsing.


Anddyri: Gengið er inní anddyri með flísum á gólfi, gott fatahengi.
Hol: Stórt og rúmgott hol sem er miðjan í húsinu, með harðparket á gólfi.
Stofa: Björt og rúmgóð stofa og borðstofa sem tengist holinu með harðparket á gólfi, hurð út á skjólsælar og sólríkar svalir.
Eldhús: Rúmgott eldhús með góðri innréttingu og tækjum, góð eyja er í eldhúsinu.
Baðherbergi: Stórt baðherbergi sem verið er að endurnýja frá grunni, þar verður tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Herbergi: 3 stór herbergi öll með parketi á gólfi, stór skápur er í hjónaherberginu. Eitt herbergið er nýtt sem sjónvarpshol.

Bílgeymsla: Stór 34,7 m2 bílgeymsla með mikla möguleika.
 
Húsið er nýlega klætt að utan með álklæðningu og íbúðin sjálf mjög snyrtileg.
Lóð er afgirt, stéttar eru steyptar, góð bílastæði við innkeyrsluna.
 
Allar nánari upplýsingar á skrifstofu okkar að Hafnargötu 50, Reykjanesbæ, og í síma 420-4050 eða á netfangið: es@es.is

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta
fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Eignamiðlun Suðurnesja bendir væntanlegum
kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1.    Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% ef um er að ræða fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2.    Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3.    Lántökugjald lánastofnunar – mismunandi á milli lánastofnana. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4.    Umsýslugjald til fasteignasölu, kr. 70.000 með vsk, sbr. kauptilboð.

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20