Klukkuvellir 3, 221
Fjarlægð/Seld - Eignin var 1 dag á skrá
Verð |
65,9
|
Stærð |
109
|
Tegund |
Fjölbýli |
Verð per fm |
603
|
Skráð |
30.1.2023 |
Fjarlægt |
1.2.2023 |
Byggingarár |
2008 |
mbl.is |
|
Hraunhamar kynnir: Bjarta og sérlega rúmgóða þriggja herbergja endaíbúð á annarri hæð í lyftuhúsi á góðum og fjölskylduvænum stað við Klukkuvelli 3 í Hafnarfirði. Eignin er skráð 109,2 fm samkvæmt Þjóðskrá en þar af er geymsla 8,4 fm. Um er að ræða eign á skemmtilegum stað í nálægð við skóla og leikskóla.***Endaíbúð***
***Viðarparket og gólfhiti***
***Þvottahús innan íbúðar***Eignin telur: Anddyri, tvö rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús ásamt samliggjandi eldhúsi og stofu. Sér geymsla í sameign.Anddyri: Rúmgott með flísum á gólfi og góðum fataskáp
Gangur: Bjart rými með gólfsíðum glugga og parketi á gólfi
Svefnherbergi 1: Bjart og rúmgott með góðum fataskáp og parketi á gólfi.
Svefnherbergi 2: Bjart og rúmgott með fataskáp og parketi á gólfi.
Stofa: Einstaklega björt og rúmgóð með gólfsíðum glugga og parketi á gólfi. Útgegnt úr stofu á góðar svalir.
Eldhús: Parket á gólfi, opið inn í stofu, snyrtileg innrétting, helluborð, háfur, bakarofn í vinnuhæð og tengi fyrir uppþvottavél
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf, falleg innrétting, upphengt salerni, baðkar og sturta.
Þvottahús: Flísar á gólfi og tengi fyrir þvottavél og þurrkara
Sér
geymsla í sameign og sameiginleg hjólageymsla.
Um er að ræða bjarta og fallega eign á góðum stað í Hafnarfirði þar sem stutt er í skóla, leikskóla, verslanir og aðra þjónustu.
Nánari upplýsingar veitir:
Glódís Helgadóttir löggiltur fasteignasali í s. 659-0510 eða glodis@hraunhamar.isGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – kr. 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi