Verð | 180,0 |
Stærð | 16 |
Tegund | Lóð/Jarðir |
Verð per fm | 11.043 |
Skráð | 7.4.2021 |
Fjarlægt | 14.4.2021 |
Byggingarár | |
mbl.is |
Gauksmýri, Húnaþing vestra.
Fasteignasalan Valhöll kynnir: Jörðina Gauksmýri Húnaþingi vestra Á Gauksmýri er rekin ferðaþjónusta með áherslu á náttúru- og hestatengda ferðaþjónustu. Gisting - Hestaleiga - Hestasýningar - Veitingar - Fuglaskoðun.
Um er að ræða alla jörðina ásamt öllum þeim húseignum sem eru á landareigninni, (fyrir utan hitaveituhús). Jörðin er áætluð um 650 hektarar og er að mestu leiti mói og mýrar. Jörðinni fylgir eignarhluti í Miðfjarðarvatni. Hitaveita er á staðnum og eigin borhola fyrir kalt vatn. Ræktað land er um 78,7 ha. Á landareigninni eru húseignir skráðar á 8 fastanúmer. Búnaður, tæki og húsgöng sem ætlaður er fyrir rekstur gistiheimilisins ásamt innanstokksmunum í íbúð í kjallara hússins fylgja með í kaupum á jörðinni.
Um er ræða sölu á eftirtöldum eignarhlutum:
Jörð, fastanr: F2134521:
Jörðin Gauksmýri, votheysturn byggður 1961, stærð 16,3 fm og ræktað land 25,2 ha. Fasteignamat: 3.332.000.-
Eyðijörð nytjað, fastanr:
Jörð, hesthús/ábkj, byggt árið 1976, stærð 169,7 fm, ræktað land 53,5 ha.
Einbýlishús, fastanr: F2252762:
Einbýlishús byggt árið 2001, skráð 111,4 fm auk sambyggðs bílskúrs 47,8 fm eða samtals 159,2 fm. Húsið er á byggingarstigi 7. Fasteignamat: 20.650.000, brunabótamat: 49.400.000.-
Húsið skiptist i forstofu, fjögur herbergi, stofu, eldhús, búr, þvottahús og bílskúr. Lóðin undir húsinu er skráð leigulóð.
Einbýlishús (eldri eign), fastanr: F2134523:
Einbýlishús byggt árið 1951, skráð 129,2 fm, byggingarstig 7, fasteignamat: 13.400.000, brunabótamat: 41.050.000.-
Húsið skiptist í forstofu, fjögur herbergi, eldhús, baðherbergi og tvær stofur.
Gistiheimi, fastanr: F2134274:
Gistiheimili byggt árið 1978, skráð 779 fm, byggingarstig 7, fasteignamat: 57.770.000, brunabótamat: 265.100.000
Húsið skiptist í móttöku, Tuttugu herbergi með baði, átta herbergi með sameiginlegu salernisaðstöðu. Matsal, setustofu, eldhús og starfsmannaaðstöðu.
Íbúð í kjallara, fastanr: F2251105:
Íbúð byggð árið 1979, skráð 103,3 fm, kjallari (gistiheimili), byggingartig 7, fasteignamat: 8.280.000, brunabótamat: 28.600.000.-
Íbúðin er með sérinngangi og skiptist i forstofu, þrjú herbergi, þvottahús, baðherbergi, eldhús og stofu í sama rými.
Hesthús, hlaða og hnakkageymsla, fastanr: F2134269:
Hesthúsið var byggt árið 1961 merkt: 010101, skráð 204,1 fm og hlaða merkt: 020101, byggð árið 1961, skráð 204,7 fm og hnakkageymsla merkt: 030101 byggð árið 1961, skráð 38,9 fm, byggingarstig 7. Fasteignamat: 10.020.000 og brunabótamat: 47.380.000.-
Innangengt er á milli hesthússins, hlöðu og hnakkageymslunnar. Hesthúsið er með steyptum stíum og járnstíum fyrir ca. 30 hross.
Reiðskemma, fastanr: F2243091:
Reiðskemman er byggð árið 2000 og skráð 1.000 fm, byggingarstig 7, fasteignamat: 18.696.000 og brunabótamat: 87.150.000. Tengibygging (rampur) er úr hlöðu. Reiðskemman er tvískipt, gerði og verslun/bar.
Lóðin undir reiðskemmu er skráð leigulóð.