Höfuðból, 851

Verð Tilboð
Stærð
Tegund Lóð/Jarðir
Verð per fm
Skráð 27.4.2021
Fjarlægt
Byggingarár 2017
mbl.is 989788

Borg Fasteignasala kynnir: Sumarhúsalóðir og lönd á sérlega  á fallegum stað við Ytri-Rangá skammt frá Leirubakka og Galtalæk, um 100 km frá Reykjavík. Þrjátíu skipulagðar lóðir sem eru allar rösklega einn hektari að stærð. Hægt er að kaupa allar lóðirnar eða stakar. 

Á svæðinu er mikil veðursæld og landið er sérstaklega fallegt, sjálfsáinn birkiskógur er að vaxa upp.Við blasir óvenjuleg fjallasýn; Hekla, Búrfell, Bjólfell, Eyjafjallajökull og Þríhyrningur. Örskammt inn á hálendið þar sem eru frægar náttúruperlur á borð við Veiðivötn, Heklu, Landmannalaugar og Friðland að fjallabaki. Rafmagn og vatn er komið að mörkum svæðisins. Nokkur mjög vegleg og vönduð sumarhús eru á svæðinu. 

Búið er að vinna hugmyndir að frístundabyggð með sérstöku heildarútliti  sem kaupendum lóða býðst að ganga inn í. Borg fasteignasala veitir upplýsingar um verkefnið. Kaupendur eru þó  ekki bundir af slíkri hugmyndavinnu.
 
Upplýsingar veitir Böðvar í síma 660 4777 eða bodvar@fastborg.is

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9