Áshamar 14 - 103, 221

Fjarlægð/Seld - Eignin var 3 daga á skrá

Verð 74,0
Stærð 105
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 703
Skráð 20.11.2023
Fjarlægt 24.11.2023
Byggingarár
mbl.is

MÖGULEIKI Á HLUTDEILDARLÁNI FRÁ HMS - NÁNAR UM ÞAÐ HÉR

Hraunhamar kynnir: Glæsilega nýbyggingu á frábærum stað í Hamraneshverfinu í Hafnarfiði, þar sem stutt er í alla helstu þjónustu. 

Íbúð 103 er fjögurra herbergja íbúð, skráð 105,3 fermetrar með geymslu. Auk þess fylgir stæði með í lokaðri bílageymslu. 

Sjá nánar um íbúðina hér. Sjá söluvef íbúða hér. 

Íbúðirnar afhendast fullbúnar án gólfefna en votrými verða flísalögð. 
Húsið er klætt að utan með álklæðningu, og ál/timbur gluggar. 
_________________________
2ja, 3ja og 4ra herb. 
Stærð frá 58,1 fm til 124,3 fm. 
Verð er frá 51,5 millj. 

_________________________

Áshamar 12-18 verður byggt eftir ströngum eftirlitsstaðli Svansins. 
Sjá frekari upplýsingar um Svansvottun nýbygginga með því að smella hér.  

Afhending júní 2024

Um er að ræða virkilega skemmtilega fjögurra herbergja íbúð á fyrstu hæð með tveimur baðherbergjum og með sérafnotaflöt.


Nánari lýsing skv. teikningu:
Forstofa með fataskáp.
Gott opið rými, þar sem eldhús og stofa eru samliggjandi.
Eldhús með smekklegri innréttingu frá HTH og vönduðum eldunartækjum. 
Björt stofa og borðstofa og þaðan er útgengt á verönd sem snýr til suðurs. 
Tvö góð svefnherbergi með fataskápum. 
Rúmgott hjónaherbergi með fataskápum, flísalagt baðherbergi þar inn af með innréttingu, upphengdu salerni og sturtu. 
Flísalagt baðherbergi með innréttingu, upphengdu salerni og sturtu.
Þvottahús með flísum á gólfi.
Sér geymsla í sameign. 
Sér stæði í bílageymslu. 

Áshamar 12-18 er hluti af klasabyggingu þar sem skemmtilegur garður mun tengja húsin saman. 
Eykt ehf er byggingaraðili hússins sem er reynslumikið og traust byggingarfyrirtæki með áratuga reynslu.

Hægt er að nálgast skilalýsingu og fá nánari upplýsingar hjá Hraunhamri fasteignasölu. 


Bókið skoðun hjá sölumönnum Hraunhamars: 
Hlynur Halldórsson, löggiltur fasteignasali, s. 698-2603, hlynur@hraunhamar.is
Glódís Helgadóttir, löggiltur fasteignasali, s. 659-0510, glodis@hraunhamar.is
Ársæll Ó. Steinmóðsson löggiltur fasteignasali s. 896-6076, arsaell@hraunhamar.is
Helgi Jón Harðarson, sölust. s. 893-2233, helgi@hraunhamar.is


Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Hraunhamar fasteignasala vill benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga fyrir nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.    Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2.    Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – kr. 2.700 kr. af hverju skjali.
3.    Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4.    Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi

Hraunhamar er elsta fasteignasala Hafnarfjarðar, stofnuð 1983 og fagnar því 40 ára afmæli á árinu 2023. 
Hraunhamar, í farabroddi í 40 ár ! – Hraunhamar.is 

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5