Arkarvogur 10 Íb 401, 104

Fjarlægð/Seld - Eignin var 10 daga á skrá

Verð 84,9
Stærð 102
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 832
Skráð 30.1.2023
Fjarlægt 10.2.2023
Byggingarár
mbl.is

Eignamiðlun kynnir:

Til sölu glæsilegar nýjar íbúðir að Arkarvogi 10 í Vogabyggð. 
* Íbúð: 401 er rúmgóð 102.0 fm, 3ja herbergja íbúð með sjónvarpsholi, þvottaherbergi, sérgeymslu og stæði í bílageymslu. 
* Eignin er skráð sem hér segir hjá Þjóðskrá: Fastanr. 251-1084, nánar tiltekið eign merkt 04-01. 
* Íbúðin er skráð 91.4 fm og sérgeymsla í sameign er skráð 10.6 fm. Eigninni fylgir stæði í bílageymslu merkt B0-88.
* Svalir eru til suðurs og eru skráðar 5.5 fm. Eignin skiptist í:Forstofu/hol, 2 svefnherbergi, 1 stofu, 1eldhús,1 baðherb.og geymslu.


Nánari upplýsingar veitir:
Herdis Valb. Hölludóttir lögg fs sími 694-6166, herdis@eignamidlun.is

* Smelltu hér fyrir söluyfirlit

* Stærð íbúða eru frá 58,8 til 102 fermetrar.
* Lyftuhús.
* Stæði í bílakjallara fylgja íbúðum auk sérgeymsla.
* Svalir eða sérafnotareitur fylgja íbúðum.
* Miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu.
* Steinsnar frá frábæru útivistarsvæði. 


Innréttingar í Arkarvogi 10: Innréttingar í eldhúsi og á baði eru frá þýska framleiðandanum Nobilia og fataskápar frá GKS smíðaverkstæði. Nobilia er með framleiðslu í einni fullkomnustu innréttingaverksmiðju í heiminum í dag og framleiðir innréttingar eftirströngum gæðakröfum. Innréttingarnar eru með ljúflokun á skúffum og skápum. Skápahurðir eldhúsa eru með dökkri viðaráferð (hnota frá GKS). Lýsing er undir efriskápum í eldhúsum. Borðplötur eru úr efni sem er slitsterkt og endingargott, með vönduðum kantlímingum sambræddum með laser tækni. Eldhús skilast með tækjum og búnaði frá Electrolux, span-helluborði, blástursofni, uppþvottavél og innbyggðum ísskáp. Viftur eru ýmist í efri skáp, nema þar sem eru vegg eða eyjuháfar en allar afhentar með kolasíu. Neðri skápar á baði eru með skúffu, efri skápar eru með spegli. Fataskápar eru eins og skápahurðir eldhúsa. Íbúðum verður skilað án megingólfefna.

* Kaupendur greiða skipulagsgjald þ.e 0,3% af endanlegu brunabótamati þegar það verður innheimt. 
* Ath. innimyndir eru tölvuteiknaðar og eru til glöggvunar en sýna ekki endanlegan frágang eignarinnar, nánar um skil sjá skilalýsingu. Ath. Myndir eru úr sýningaríbúð og eru til viðmiðunar.
* Seljandi hefur heimild til að breyta eignaskiptasamning sé þess þörf en þó án þess þó að rýra eignarrétt kaupanda. 
* Ef misræmi er milli arkitektateikninga og innréttingateikninga þá eru innréttingateikningar þær sem gilda og eru þær áritaðar og hluti samningsins.
* Eignin afhendist samkvæmt meðfylgjandi skilalýsingu og er áætluð afhending okt/nóv 2022 með þeim fyrirvara að öryggisúttekt sé komin á húsið. 

Verktakinn er ÞG-Verk sem hefur yfir 20 ára reynslu og hefur frá 1998 byggt þúsundir íbúða fyrir ánægðar fjölskyldur. Áreiðanleiki, gæði og notagildi eru einkunnarorð fyrirtækisins. Meginmarkmið ÞG-verk er að skila góðu verki og eiga traust og áreiðanleg samskipti við sína viðskiptavini. Allar nánari upplýsingar má finna á heimasíðu verkefnisins: www.tgverk.is/vogabyggd/
Vogabyggðin er á frábærum stað hvað samgöngur varðar. Má segja að þarna við Elliðaárósana séu krossgötur höfuðborgarsvæðisins umferðarlega séð þar sem Sæbraut, Miklabraut, Vesturlandsvegur og Reykjanesbraut mætast. Íbúar eru því fljótir að komast út á þessar helstu umferðaræðar. Almenningssamgöngur eru líka góðar, Strætó stoppar rétt hjá á Sæbrautinni og áætlað er að Borgarlínan komi til með að liggja rétt hjá Vogabyggðinni.

* Við sýnum samdægurs - nánari upplýsingar veita:
Herdis Valb. Hölludóttir, lögg. fasteignasali sími 694-6166, herdis@eignamidlun.is
Ragnhildur Anna Gunnarsdóttir, lögg. fasteignasali sími 861-1197, ragnhildur@eignamidlun.is
Brynjar Þór Sumarliðason, lögg. fasteignasali sími 896-1168, brynjar@eignamidlun.is
Bjarni T. Jónsson, lögg. fasteignasali sími 895-9120, bjarni@eignamidlun.is

.
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21
Mynd 22
Mynd 23
Mynd 24
Mynd 25
Mynd 26
Mynd 27