Surtlugata 1, 600
Fjarlægð/Seld - Eignin var 24 daga á skrá
Verð |
Tilboð
|
Stærð |
77
|
Tegund |
Hesthús |
Verð per fm |
|
Skráð |
30.1.2023 |
Fjarlægt |
24.2.2023 |
Byggingarár |
1998 |
mbl.is |
|
Surtlugata 1 - Gott 5-6 hesta hús með hlöðu og góðu útigerði í Breiðholtshverfi - stærð 77,2 m², þar af er hesthús skráð 45,0 m²Húsið getur verið laust til afhendingar við kaupsamningHúsið skiptist í eina 2ja hesta stíu, þrjár eins hesta, snyrtingu, kaffistofu, hnakkageymslu og hlöðu.
Gólf er steypt í hesthúsinu og á ganginum fyrir framan gerðin er nýlegur heillímdur dúkurbúið. Búið er að klæða utan á neðri hlutann á veggja á ganginum og endurnýja glugga. Niðurföll eru í öllum stíum og á ganginum.
Kaffistofan er með steyptu og lökkuðu gólfi og hvítri innréttingu.
Snyrting er með steyptu og lökkuðu gólfi, wc, handlaug og handklæðaofni. Hitaveitugreind er staðsett á snyrtingunni.
Hlaðan er með góðri lofthæð og rúmlega helmingur gólfs er steyptur. Geymsluloft er yfir hluta, yfir kaffistofu og snyrtingu. Tvöföld hurð er á vesturhliðinni þar sem hægt er að taka inn rúllur o.fl.
Gott gerði er með vestur- og norðurhlið hússins.
Steyptur skítakassi er með austurhliðinni
Annað- Grind fylgir með til að skipta 2ja hesta stíunni í tvær eins hesta.
- Hesthúsið er með skráð byggingarár 1998 og hlaða 1999.
- Búið er að endurnýja glugga
- Hitaveita er í húsinu.
- Lóðin er skráð 1.405,7 m² að stærð og skiptist hún má segja til helminga með hinu húsinu sem er á lóðinni.
- Gestahús sem er fyrir framan hesthúsið getur selst með.