Arkarvogur 10 (102), 104

Fjarlægð/Seld - Eignin var 6 daga á skrá

Verð 76,9
Stærð 95
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 811
Skráð 24.11.2022
Fjarlægt 1.12.2022
Byggingarár 2022
mbl.is

***BÓKIÐ SKOÐUN, VIÐ SÝNUM SAMDÆGURS***

Heimir F. Hallgrímsson Í S: 849-0672 / HEIMIR@FASTLIND.IS
Hrafnkell H.P. Pálmason Í S: 690-8236 / HRAFNKELL@FASTLIND.IS

Diðrik Stefánsson Í S: 647-8052 / DIDDI@FASTLIND.IS

--- Allir viðskiptavinir Lindar fasteignasölu fá Vildarkort Lindar sem veitir 30% afslátt hjá fjölda fyrirtækja ---


LIND Fasteignasala og ÞG Verk kynna með stolti: Nýjar og glæsilegar íbúðir að Arkarvogi 10-12 og Drómundarvogi 2 í Vogabyggð, 104 Reykjavík. Um er að ræða fjölbreyttar 2ja - 5 herbergja íbúðir í lyftuhúsi og fylgja bílastæði öllum íbúðum. Innangengt er úr bílakjallara í lyftu- og stigahús. Svalir eða sérafnotaflötur fylgir öllum íbúðum ásamt séreignageymslu í kjallara. 

Húsið er steinsteypt og útveggir einangraðir að utan, klæddir með báru-álklæðningum eða sléttum-álklæðningum sem tryggir lágmarks viðhald húsanna. Gluggar eru ál/tré kerfi og glerjaðir með K-gleri. Innveggir aðrir en steyptir eru úr hleðslusteini.

Íbúð 102: Er glæsileg 3 herbergja íbúð. Heildarstærð er 94,8 fermetrar og er staðsett á fyrstu hæð. Íbúðinni fylgir bílastæði í bílakjallara og 9,6 fermetra geymsla. Stór 43,4 fermetra verönd til suðurs. Afhending er áætluð í ágúst/september 2022 en þó með fyrirvara um að öryggisúttekt sé komin á húsið.

Nánari lýsing:
Íbúðin skiptist í forstofu, eldhús í alrými með stofu/borðstofu, 2 svefnherbergi, baðherbergi og þvottaherbergi. Útgengt á 43,4 fermetra verönd til suðurs úr stofu.

Allar nánari upplýsingar á heimasíðu verkefnisins: www.tgverk.is/vogabyggd/

Vogabyggð er skjólsæl perla á höfuðborgarsvæðinu í nálægð við hafið og náttúruna. Frábær kostur fyrir þá sem kjósa að búa í umhverfi sem býður bæði upp á borgarbrag og í senn sterka tengingu við náttúruna. Hjóla- og göngustígar liggja meðfram ströndinni sem og upp í Elliðaárdal. Þá er Laugardalurinn innan seilingar.

ÞG Verk hafa yfir 20 ára reynslu á byggingarmarkaði. Fyrirtækið leggur áherslu á vandaðar íbúðir, góða þjónustu og skil íbúða á réttum tíma. Áreiðanleiki, gæði og notagildi eru einkunnarorð ÞG verks og fyrirtækið kappkostar að eiga gott samstarf við viðskiptavini sína. 

BÓKIÐ SKOÐUN!
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR VEITA:
Hrafnkell P. H. Pálmason í síma: 690-8236 / HRAFNKELL@FASTLIND.IS
Diðrik Stefánsson í síma: 647-8052 / DIDDI@FASTLIND.IS

Heimir F. Hallgrímsson í síma: 849-0672 / HEIMIR@FASTLIND.IS

Innréttingar: Í eldhúsum og baðherbergjum eru frá þýska framleiðandanum Nobilia og fataskápar frá GKS smíðaverkstæði. Eldhúsinnréttingar eru mismunandi útfærðar eftir íbúðum. Lýsing undir efri skápum í eldhúsum. Speglaskápar eru á böðum. 

Eldhústæki: Íbúðunum fylgja vönduð eldhústæki af gerðinni Electrolux. Íbúðum er skilað með span helluborði, innbyggðum kæliskáp, innbyggðri uppþvottavél, blástursofni og viftu eða lofthengdum eyjuháfi þar sem það á við.

Hreinlætistæki: Salernisskál er vegghengd með innbyggðum vatnskassa. Sturtur eru með flísalögðum botni og hertu sturtugleri. Hreinlætistæki eru frá Grohe, hitastýrð eða einnar handar. Þvottahús eru ýmist innan baðherbergja eða í sér rými.

Seljandi áskilur sér allan rétt til að gera efnis-, tæknilegar- og útlits breytingar meðan á byggingaframkvæmd stendur.

Kaupandi greiðir skipulagsgjald sem nemur 0,3% af brunabótamati þegar það er lagt á.

Heimild seljanda til að breyta eignaskiptasamning sé þess þörf án þess þó að rýra eignarrétt kaupanda. Innréttingateikningar eru þær sem gilda ef misræmi er milli arkitektateikninga og innréttingateikninga og eru þær áritaðar og hluti samningsins.

Eignin afhendist skv meðfylgjandi skilalýsingu. 

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15