Völuskarð 28, 221

Fjarlægð/Seld - Eignin var 3 daga á skrá

Verð 199,0
Stærð 417
Tegund Einbýli
Verð per fm 477
Skráð 30.1.2023
Fjarlægt 3.2.2023
Byggingarár 2022
mbl.is

Bókið skoðun - sýnum samdægurs, Helgi Jón Harðarson sölustj.s. 893-2233 eða helgi@hraunhamar.is  Sjón er sögu ríkari. Frábær staðsetning til framtíðar. 

***Frábært fjölskylduhús - möguleiki á tveimur útleigueiningum***(tvær íbúðir)

# Vönduð eign með glæsilegu útsýni

## Mikil lofthæð á efri hæð
### Gólfhiti, hljóðdúkur víða og sérsmíðaðar innréttingar
#### Miklir möguleikar á leigutekjum

Hraunhamar fasteignasala og Helgi Jón Harðarson sölustj.  s. 893-2233 kynna í einkasölu: Glæsilegt einbýlishús við Völuskarð 28 í Skarðshlíð í Hafnarfirði. Húsið er einstaklega vel staðsett, fyrir ofan götu, innarlega í botnlanga með sérlega glæsilegu útsýni. Um er að ræða 417,1 m² staðsteypt hús á tveimur hæðum að meðtöldum 59,8 m² bílskúr auk rúmlega 130 m² svala sem snúa til suðurs. Mögulegt er að vera með fleiri en eitt íbúðarrými og því tilvalið fyrir stórar fjölskyldur. Húsið er á einu fastanúmeri en miklir möguleikar eru á leigutekjum þar sem stór þriggja herbergja íbúð er á jarðhæð og þar að auki rými sem hægt væri að nýta sem stúdíó íbúð. 

Mikil lofthæð er á efri hæð, gólfhiti á báðum hæðum, sérsmíðaðar innréttingar frá KJK, sólstopp í gleri, sér rafmagnstafla fyrir auka íbúðarrými, hljóðdúkur víða og lagnaleiðir klárar á svölum fyrir heitan pott. Eignin afhendist með grófjafnaðri lóð og nánast fullkláruð að innan en þó án borðplatna, gólfefna á efri hæð, innihurða, hreinlætis- og eldhústækja. Járnstigi og handrið komið upp, ómálað og eftir að setja það efni sem verður í þrepunum. Þá á eftir að fara lokaumferð með málningu á allt húsið að innan.

Bókið einkaskoðun hjá Barböru Rut Bergþórsdóttur í síma s. 823-0339 eða með tölvupósti á barbara@hraunhamar.is - Skilalýsingu má nálgast hjá fasteignasala.


Nánari lýsing:
Neðri hæð:  Bjart og rúmgott anddyri. Inn af anddyri er gestasalerni með sturtu og rúmgott herbergi með góðum fataskápum. Einnig er tæplega 60 m² hjónasvíta þar sem er fataherbergi með rúmgóðum fataskápum og baðherbergi með baðkari og salerni. Einnig er sér rými með rúmgóðri innréttingu fyrir snyrtiaðstöðu. Mögulegt að nýta sem stúdíó íbúð þar sem sérinngangur er í rýmið. Neðri hæð skilast flísalögð með 80*80 flísum frá Álfaborg.

Auka íbúðarrými: Bjart og rúmgott með sérinngangi. Komið er inn í anddyri með fataskápum. Stofa og borðstofa er í björtu rými með stórum gluggum og eldhús með rúmgóðri innréttingu. Virkilega rúmgott hjónaherbergi með góðum fataskápum. Barnaherbergi einnig rúmgott með skápum. Baðherbergi með sturtu, innréttingu og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.

Efri hæð: Rúmgott og glæsilegt alrými með stórum gluggum, mikilli lofthæð og útgengi á rúmlega 130 m² flísalagðar svalir með glæsilegu útsýni. Eitt tæplega 20 m² herbergi sem býður upp á mikla möguleika. Tvö rúmgóð herbergi til viðbótar, bæði með fataskápum og annað þeirra með útgengi á viðarverönd bakvið hús . Mjög rúmgott baðherbergi með innréttingu, sturtu og útgengi á svalirnar. Gott þvottahús með rúmgóðri innréttingu.  Efri hæð skilast flotuð og tilbúin undir gólfefni að undanskildu baðherbergi og þvottahúsi sem hafa verið flísalögð.

Bílskúr: Rúmgóður 59,8 m² bílskúr með flísum á gólfi.

Afhending húsnæðis getur verið við kaupsamning.

Seljandi sem er verktaki er reiðubúinn að vera á húsinu þar til lokaúttekt á sér stað og aðstoða kaupendur við að klára það sem upp á vantar.

Um er að ræða spennandi tækifæri til að eignast glæsilegt einbýlishús á einstökum stað. Frábær staðsetning í nálægð við náttúruna auk þess sem skóli og leikskóli eru í göngufæri. Þá er búið að opna Ásvallabraut sem greiðir fyrir umferð til og frá hverfinu og tengir hverfið enn betur við önnur hverfi bæjarins.

Kaupendur greiða skipulagsgjald 0,3% af brunabótamati þegar það verður sett á. 

Allar nánari upplýsingar veita:
Helgi Jón Harðarson sölustj. s. 893-2233 eða helgi@hraunhamar.is

Hlynur Halldórsson, löggiltur fasteignasali, s. 698-2603, hlynur@hraunhamar.is

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21
Mynd 22
Mynd 23
Mynd 24
Mynd 25
Mynd 26
Mynd 27
Mynd 28
Mynd 29
Mynd 30
Mynd 31
Mynd 32
Mynd 33
Mynd 34
Mynd 35
Mynd 36
Mynd 37
Mynd 38
Mynd 39
Mynd 40
Mynd 41
Mynd 42
Mynd 43
Mynd 44
Mynd 45
Mynd 46
Mynd 47
Mynd 48
Mynd 49
Mynd 50
Mynd 51
Mynd 52
Mynd 53
Mynd 54
Mynd 55
Mynd 56
Mynd 57