Vallarbraut 12, 260
Fjarlægð/Seld - Eignin var 29 daga á skrá
Verð |
42,0
|
Stærð |
84
|
Tegund |
Fjölbýli |
Verð per fm |
498
|
Skráð |
22.12.2020 |
Fjarlægt |
20.1.2021 |
Byggingarár |
2020 |
mbl.is |
|
Eignamiðlun Suðurnesja kynnir Vallarbraut 12, 260 Reykjanesbæ
Fallegar og vandaðar 3ja herbergja íbúðir, með sérinngangi, í nýju og glæsilegu 4ra hæða fjölbýlishúsi á frábærum stað í Reykjanesbæ.
Íbúðirnar afhendast fullbúnar með gólfefnum.
Allar innréttingar eru sérsmíðaðar frá Grindinni.
Geymslupláss fylgir hverri íbúð.
Sameiginleg vagna- og hjólageymsla er á 1. hæð.
Merkt bílastæði fyrir hverja íbúð.
Búið er að leggja raflagnir fyrir hleðslustöðvar bifreiða við eitt bílastæði hverrar íbúðar.
Svalalokun verður í öllum íbúðum - 13,3 fm yfirbyggðar svalir.
Áætluð afhending er í apríl - maí 2021.
Allar nánari upplýsingar á skrifstofu okkar að Hafnargötu 50, í síma 420-4050 og á netfanginu es@es.is
Íbúð 402
Íbúðin er skráð samtals 81,1 fm og skiptist í rúmgott anddyri, eldhús, stofu, borðstofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og góðar yfirbyggðar suður svalir sem eru 13,3 fm og eru ekki inni í skráðum fermetrum. Hiti í gólfum og aukin lofthæð. Frábær staðsetning þar sem afar stutt er í alla helstu þjónustu svo sem verslanir, skóla og leikskóla.
Nánari lýsing:
Komið er inn í rúmgóða flísalagða
forstofu með góðum skáp.
Björt og rúmgóð
stofa/borðstofa með gólfsíðum gluggum og vandaðri rennihurð út á
svalir. Svölum verður lokað með opnanlegu gleri.
Glæsilegt
eldhús með innbyggðum ísskáp og uppþvottavél, keramikhelluborði og vönduðum ofni í vinnuhæð.
Hjónaherbergi er rúmgott með góðum skápum og parketi á gólfi.
Rúmgott
herbergi með góðum skápum og parketi á gólfi.
Baðherbergi er með sturtu, góðri innréttingu og salerni. Gólf og veggir flísalagðir.
Inn af baðherbergi er vel búið
þvottahús með góðri innréttingu fyrir vélar í vinnuhæð.
Rúmgóður læstur
geymsluskápur fyrir hverja íbúð er í sameign á 1. hæð.
Íbúðum verður skilað fullfrágengnum, með sameign og lóð samkvæmt neðangreindri skilalýsingu:
Frágangur íbúða inni:
Íbúðum verður skilað með handslökkvitæki og reykskynjurum.
Gólf: Hágæða harðparket er á gólfum, flísar eru á gólfum baðherbergis/þvottahúss og anddyris. Gólf í geymslum eru með epoxy sem nær uppá veggi.
Veggir: Steyptir veggir eru spartlaðir og málaðir. Léttir innveggir eru spartlaðir og málaðir. Fyrirkomulag innveggja verður í samræmi við samþykkta byggingarnefndarteikningu. Veggir verða málaðir í ljósum lit. Baðherbergisveggir skilast flísalagðir að hluta.
Loft: Steypt loft eru slípuð, spörtuð og máluð í ljósum lit.
Innréttingar: Skápar og innréttingar eru útbúnir úr 16 m grá plasthúðuðu spónaplötuefni að innanverðu. Sýnilegi fletir eru útbúnir úr efni frá Innval/Egger. Black-Brown Thermo Oak H1199 ST12. Borðplötur eru úr kvarsi. Plast frá Innval/Egger light concrete F272 ST9. Höldur á frontum frá Innval/Egger svartar mattar Inréttingar eru framleiddar hjá Grindinni ehf Grindavík.
Innihurðir: Hurðir verða með lykillæsingu og hurðarhúnar verða úr burstuðu stáli. Hurðir eru hvítlakkaðar, með felli þröskuldum og með yfirfelldum hurðarkörmum og gereftum.
Eldhús: Eldhús skilast fullbúin með tækjum frá AEG, þar með talið keramikhelluborð, bakaraofn, uppþvottavél og ísskáp. Stálvaskur er fræstur í borðplötu. Eldhúsinnrétting er sérsmíðuð frá Grindin ehf og er með mjúklokunarbúnaði, vaski og blöndunartækjum frá Grohe. Lýsing undir efri skápum þar sem við á.
Baðherbergi: Baðherbergisgólf eru flísalögð með ljósum flísum. Veggir að hluta til eru flísalagðir upp í loft með ljósum flísum. Í baðherbergjum er sérsmíðuð baðinnrétting með handlaug, blöndunartækjum og spegli. Klósett er vegghengt með innbyggðum vatnskassa. Stór sturta með ílöngu niðurfalli í gólfi, skilveggur úr hertu gleri. Vélrænt útsog er frá baðherbergi og þvottahúsi, með hljóðlátri viftu.
Þvottaherbergi: Gólf í þvottaherbergi er flísalagt með ljósgráum flísum. Innrétting fyrir þvottavél og þurrkara og sér innrétting með skolvaski.Í íbúð 0202 er gert ráð fyrir þvottavél og þurrkara í baðherbergi.
Hreinlætistæki: Öll hreinlætis- og blöndunartæki eru af viðurkenndri gerð og koma þar sem teikningar sýna.
Svefnherbergi: Í svefnherbergjum er harðparket á gólfum og fataskápur. Fataskápar eru þar sem teikningar sýna.
Raflögn: Raflögn er fullfrágengin. LED Ljós fylgja í eldhúsi, þvottahúsi, baðherbergi og anddyri í öllum íbúðum, ýmist ljóskúplar og innfelld lýsing.Í öðrum rýmum innan íbúðar er skilajós.
LED Útiljós eru á stigapalli og svölum, Uppsettur reykskynjari fylgir hverri íbúð. Ljósleiðaratenging er í hverri íbúð. Lagnaleiðir fyrir bílhleðslustöðvar eru frágengnar í jörðu fyrirhverja íbúð.
Forstofa: Í forstofu eru ljósar flísar á gólfum og fataskápur.
Geymslur: Hverri íbúð fylgir skápur í sameign. Gólf í geymslum verða lögð epoxy sem nær upp á veggi. Veggir (einangraðir léttir veggir) verða málaðir. Á 1.hæð sameiginleg hjóla- og vagnageymsla. Tæknirými er á 1. hæð með sérinngang.
Pípulögn Upphitun hússins er með gólfhita í ílögn. Hita- og neysluvatnslagnir eru lagðar skv. verkfræðiteikningum. Ljósleiðari eða nettenging verður tengd úr sameign inn í hverja íbúð og þaðan í tengil í stofu. Í öðrum herbergjum eru lagnaleiðir fyrir tölvu/síma og loftnet. Eldvarnir: Hver íbúð er sjálfstætt brunahólf. Reykskynjari og handslökkvitæki verður sett upp í hverri íbúð. Sameign samanstendur einvörðungu af geymslurými og inntaksrými húsanna. Sameign verður upphituð með ofnum og fullfrágengin.
Allar nánari upplýsingar á skrifstofu okkar að Hafnargötu 50, í síma 420-4050 og á netfanginu es@es.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% ef um er að ræða fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – mismunandi á milli lánastofnana. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, kr. 40.000 með vsk, sbr. kauptilboð.