Hverfa 7, 806

Fjarlægð/Seld - Eignin var 31 dag á skrá

Verð 5,9
Stærð
Tegund Lóð/Jarðir
Verð per fm
Skráð 23.1.2023
Fjarlægt 24.2.2023
Byggingarár
mbl.is

101 Reykjavík Fasteignasala kynnir í einkasölu: Eignarlóð með fallegu útsýni steinsnar frá Geysi í Haukadal að Holtslóð úr landi Neðri -Dals. Lóðin er 7000,5 fm í rólegu sumarhúsahvefi. Fornminjar eru á Hverfu 7 ásamt lítilli manngerðri tjörn sem gerir lóð einstaka á svæðinu. Stór hluti lóðar er þakin kjarri og er svæðið þekkt fyrir veðursæld. Lóð er í nágrenni við margar af helstu náttúruperlum Suðurlands og stutt er inn á hálendi.

Gott aðgengi er að lóðinni, neysluvatn - frárennslislagnir ásamt rafmagni komið að lóðarmörkum. Sameiginleg rotþró er á svæðinu. 
Búið er að gera veg inn á lóð að byggingareit lóðar. Samkvæmt deiliskipulagstillögu má byggja allt að þrjú hús á lóð. Samanlagt byggingarmagn húsa má vera allt að 250fm, þar af má gesthús vera 40fm og geymsla eða smáhýsi 20fm. 

Mjög gott útsýni er að Bjarnarfelli og að Geysisvæði og náttúruperlum.
Afþreying í nágrenni er afar fjölbreytt, flúðasiglingar, hestaleigur, snjósleða og fjórhjólaleigur. Golfvellir og sundlaugar eru einnig í næsta nágrenni. Hverfa 7 er einungis í u.þ.b. þriggja km fjarlægð frá Geysi í Haukadal.

Lóðir á svæðinu munu hafa umgengisrétt og eignarétt 2,5% á um 20ha almennigns- og útvistarsvæði. Svæðið liggur umhverfis skipulagðar lóðir Holtslóðar.

Fornminjar eru á lóð, gamalt fjárhús og hlaða.
Innifalið í kaupaum á lóð, Zetor dráttarvél árgerð 1986 með snjótönn og malarskúffu að aftan ásamt nýuppgerðum heyvagni. 

Allar upplýsingar veitir Björg Kristín Sigþórsdóttir, bjorgkristin@101.is gsm: 771 -5501 eða Kristín Sigurey Sigurðardóttir lgf. kristin@101.is gsm: 820-8101. 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af fasteignamati (eða 0,4% við fyrstu-kaup kaupanda) eða 1.6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingagjald af hverju skjali kr. 2.500,-
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt um 1,0% af höfuðstól skuldabréfs.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu kr. 69.500,- með vsk

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. 101 Reykjavík Fasteignasala hvetur væntanlega kaupendur til að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015 um sölu fasteigna og skipa. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni en getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem eru ekki aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp, þak osfrv. 

 

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21