Eskiás 5 íb 304, 210
Fjarlægð/Seld - Eignin var 3 daga á skrá
Verð |
92,9
|
Stærð |
112
|
Tegund |
Fjölbýli |
Verð per fm |
828
|
Skráð |
20.11.2023 |
Fjarlægt |
24.11.2023 |
Byggingarár |
2023 |
mbl.is |
|
Eignamiðlun kynnir:
Eskiás 5 er til afhendingar í ágúst 2024. Kaupendur taka íbúðir frá með kauptilboði, kaupsamningur þegar eignaskiptayfirlýsing liggur fyrir, lán eða aðrar greiðslur koma við afhendingu eignarinnar. Nokkrar íbúðir eftir í Eskiás 5.
Hafðu samband og bókaðu skoðun í sýningaríbúð:
Gunnar Bergmann í síma: 839-1600 eða gunnarbergmann@eignamidlun.isSmelltu hér til að skoða heimasíðu verkefnisFallegar íbúðir í nýju fjölbýli á góðum stað í Garðabæ. Allar íbúðirnar eru með sérinngangi, vönduðum innréttingum og sérgeymslu innan íbúðar.
Íbúð 304 á 3. hæð með 3 svefnherbergjum, 1 baðherbergi með þvottaaðstöðu, svölum og sérgeymslu innan íbúðar. Rúmgott alrými opið í eldhús. Fallegt útsýni.Íbúðirnar afhendast fullfrágengnar fyrir utan megingólfefni en flísar á baðherbergjum/þvottahúsi.
- Innréttingar í eldhúsi verða af vandaðri gerð frá NOBILIA og fataskápar frá Trésmiðju GKS.
- Eldhústæki verða; blástursofn, spanhelluborð og innbyggður ísskápur frá Whirlpool sem þjónustað er af Heimilistækjum.
- Baðherbergi/þvottahús eru forframleidd og hífð inn í hús samhliða uppsteypu húsanna. Söluaðili baðherbergjanna er Wilbergs/Bitter ehf. (Parki) og eru þau hönnuð af Boxen samkvæmt norskum stöðlum. Mikið er lagt upp úr vönduðum frágang og er allt efni og búnaður af þekktri og viðurkenndri gerð.
- Öll hreinlætistæki eru að vandaðri gerð frá Grohe.
- Ljósleiðarar frá OR og Mílu eru í hverri íbúð.
- Rafbílahleðslukerfi verður fyrir hendi.
Nánari upplýsingar:Gólfefni: Íbúðum verður skilað með flotuðum gólfum án gólfefna nema á baðherbergjum/þvottahúsi þar sem að veggir og gólf eru flísalögð upp í loft.
Frágangur utanhúss: Útveggir verða einangraðir að utan og klæddir með svartri álbáru, kopargrænum sléttum plötum (Alpolic FR 4mm) og jarðlituðum sementsplötum (Equitone). Allt klæðningarefni og undirkerfi klæðninga kemur frá Málmtækni. Svalahandrið eru úr stáli klædd lóðréttum bambus renningum. Útiljós og rafmagnstengill er á svölum.
Rafbílahleðsla: Gert verður sérstaklega ráð fyrir fjölda rafhleðslustæða og möguleikum til að auka fjölda þeirra þegar þörf krefur.
Skipulagsgjald: Kaupandi greiðir skipulagsgjald (0,3% af endanlegu brunabótamati) til sýslumanns þegar það verður verður innheimt.
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook