Verð | 800,0 |
Stærð | 574 |
Tegund | Atv. |
Verð per fm | 1.395 |
Skráð | 23.5.2022 |
Fjarlægt | 10.6.2022 |
Byggingarár | 1974 |
mbl.is |
Lóðin að norðanverðu við Sundaborg 11-13 er malbikuð og með góðum bílastæðum. Stórt afgirt malbikað port í vesturenda lóðarinnar við Sundaborg 15. Portið er afgirt og með öryggishliði. Einnig er aðkoma og bílastæði sunnan megin hússins. Á neðri hæðinni eru innkeyrsludyr og göngudyr.
Í húsinu er öryggiskerfi sem er aðgangsstýrt. Loftræsikerfi er í húsinu. Upphitun er með blásurum í geymslurýmum en ofnar eru að mestu í skrifstofuhluta.
Hús nr. 11-13
Neðri hæð: Neðri hæðin tilheyrir tveimur fastanúmerum og telur alls um 599 fm. Hæðin nýtist í dag saman sem skjalageymsla. Góð lofhæð. Mögulegt væri að skipta neðri hæðinni upp í minni bil og setja innkeyrsludyr eða inngangsdyr á hvert rými.
Efri hæðin: Á efri hæð tilheyrir tveimur fastanúmerum og telur alls um 620 fm. þar er gott og bjart skrifstofurými með góðri lofthæð að mestu. Kaffistofa, tvö herbergi og stórt opið vinnurými. Á gólfum er dúkur. Rúmgott eldhús. Stórar geymslur, tvö herbergi, tæknirými þar sem er m.a. loftræsibúnaður, snyrtingar, ræstiklefi o.fl. Gluggar eru á allri norðurhlið rýmisins en einni eru þakgluggar sem hleypa birtu inn.
Hús nr. 15
Efrihæðin: Komið er inná efrihæðina frá sameiginlegum stigagangi. Gengið er í inn í öryggishólf og þaðan er komið inní stórt opið vinnurými. Innaf því rými er eldhús og svo annað vinnurými. Á hæðinni eru snyrtingar og sturtuaðstaða. Frá efrihæðinni er stigi niður í neðrihæðina.
Neðri hæðin: skiptist niður í nokkur hólf. Í tveimur hólfum eru innkeyrsludyr útí afgirt port.
Milli húsanna nr. 13 og 15 er snyrtilegt stigahús og er gengið inn bæði frá norðri og suðri. Stigahúsið er í eigu húsfélagsins.
Nánari upplýsingar veitir Óskar H. Bjarnasen lögmaður og löggiltur fasteignasali í síma 691-1931 eða ohb@miklaborg.is